19. júní - 19.06.1977, Síða 42
Landsfundur KRFI 1976
Kjórða hvert ár er haldinn landsfundur
K.R.F.l. og er hann sóttur af fulltrúum
aðildarfélaganna. Fundurinn var settur
að kvöldi 18. júní að Hótel Sögu en
framhaldið tvo næstu daga að Hall-
veigarstöðum. Aðalumræðuefni fundar-
ins var: „Uppeldi og starfsval á
jafnréttisgrundvelli."
Frummælendur voru: Marta
Sigurðardóttir, fóstra, og Herdís Egils-
dóttir, kennari, er ræddu um frum-
bernsku og forskólaskeið. Kristín
Tómasdóttir, kennari og Kristján J.
Gunnarsson, fræðslustjóri, fjölluðu um
skyldunámsstigið og Guðrún Halldórs-
dóttir, skólastjóri, um menntun og
starfsval.
Að framsöguerindunum loknum
skiptust fundarmenn í þrjá starfshópa og
ræddu þessi málefni frá ýmsum hliðum,
skiluðu áliti er lögð voru fyrir sameigin-
legan fund landsfundarfulltrúa og að
lokum samþykkt í þeirri gerð er hér birt-
ist.
Niðurstöður frá starfshópi um: RFS-
FRUMBERN SKU OG
OG FORSKÓLASKEIÐ
Lagalegt jafnrétti karla og kvenna er
nær algert hér á landi (sbr. lög um
skólakerfi, 1974/lög um jafnrétti kvenna
og karla, 1976 o. fl.). Við leggjum rika
áherslu á að foreldrar ali börn sín upp á
jafnréttisgrundvelli frá frumbernsku, að
telpur og drengir fái sömu hvatningu í
leik og námi og þau verði alin upp til að
verða sjálfstæðir þjóðfélagsþegnar.
Bernskan er mikilvægasta mótunar-
skeiðið, þess vegna teljum við nauðsyn-
legt að veita á grunnskólastigi fræðslu
um hlutverk foreldra og heimilis í anda
jafnréttis og jafnstöðu.
Við teljum það rétt barna að þau séu i
umsjá foreldra a. m. k. fyrstu þrjá mán-
uðina eftir fæðingu og að fæðingarorlof
verði fellt inn í tryggingakcrfið.
d'aka ber fullt lillit til þarfa barna í
þjóðfélaginu m. a. með sveigjanlegum
vinnutíma forráðamanna jreirra og að
þeir eigi þess kost að annast börn sín í
veikindum þeirra.
Við teljum það rétt allra barna i nú-
tímasamféiagi að ciga kost á dviil á góðu
dagvistarheimili (leikskóla eða dag-
hcimili). I'æplega er unnt að tala um
jafnan rélt og jafna stöðu karla og
kvénna hér á landi nú ef tekið er mið af
ástandi í dagvistarmálum. Við skorum á
stjórnvöld að þessi mál fái algeran for-
gang og að gerð verði könnun um land
allt á raunverulegri þörf fyrirslík heimili.
í samræmi við niðurstöður þeirrar könn-
unar verði gerð áætlun, sem endurskoðuð
verði að fimm árum liðnum. Markmiðið
sé að þörfinni fyrir dagvistun verði full-
nægt á þróunaráratug Sameinuðu þjóð-
anna (1975— 1986) um málefni kvenna.
Nauðsynlegt er að móta framtíðar-
stefnu, sem tengi betur en nú er dag-
vistarheimili og grunnskóla. A dag-
vistarheimilum verði unniö eftir starfs-
áætlun og þau felld að hinu almenna
fræðslukcrfi. Börnin njóti þar kennslu
eftir þroska t. d. í lón- mynd- og verkmenntun
til að fullnægja sköpunarþörf sinni.
Fundurinn skorar á fræðsluyfirvöld og
fjárveitingarvald að lengja dvöl barna í
sex ára bekk úr einni og hálfri klukku-
stund í fjórar á dag og í viðbótar-
tímanum verði lögð áhersla á þær grein-
ar, sem nefndar hafa veriö hér að framan.
Við styðjum þá kröfu þeirra, sem við
fóstrustörf eru að fá ákveðinn tíma á viku
hverri til að undirbúa daglegt starf og til
fundahalda með starfsfólki heimilanna
og forráðamönnum barna, er við teljum
mjög mikilvægt.
Niðurstöður frá starfshópi um:
SKYLDUNÁMSSTIGIÐ.
Starfshópur, er fjallaöi um skyldu-
námsstigið lagði áherslu á, að skólastarf
miði að því aö nemendur verði sjálf-
stæðir hugsandi einstaklingar, er geti
lifað í og aðlagast sibreytilegu þjóðfélagi,
þar sem æ ríkari kröfur eru gerðar til þess
að hver einstaklingur geti notiö réttinda
og uppfyllt skyldur.
Til að grunnskólinn verði þessu hlut-
verki vaxinn er m. a. þörf á eftirfarandi:
1. Endurskoðun og endurnýjun náms-
efnis (bækur: texti/myndir — svo og
öll önnur kennslugögn) með tilliti til
fullrar jafnstöðu og jafnréttis kynj-
anna.
2. Sama námsefni skal vera fyrir bæði
kynin: drengir ogstúlkur vcrði saman
í öllum kennslustundum í verklegum
og bóklegum greinum, heimilisfræði
og íþróttum.
3. Verklegar greinar skulti á sama hátt
og bóklegar vera skylda fyrir alla
nemcndur jafnt.
4. Námsskrá i leikfimi ber að endur-
skoða með lilliti til þess að drcngir og
stúlkur verði saman í leikfimi og
íþróttum — la-ri sömu æfingar og
þjálfi mýkt og þol.
5. Foreldrar og forráðamenn barna og
unglinga skulu ásamt kennurum
þegar i upphafi skólagöngunnar
vinna saman að uppeldi, er miði að
jafnrétti og jafnstöðu kynjanna og sé
timi ætlaður til þess i starfsáætlun
skóla.
6. Stefna skal að því aö dagleg skóla-
ganga verði hæfilega löng og sam-
felld, að nemendur eigi kost á nær-
ingu i skólanum og geti undirbúiö sig
þar fyrir næsta dag.
Starfshópurinn beinir þvi til stjórnar
Kvenréttindafélags íslands, að hún vinni
að þvi að rikisfjölmiðlar taki upp fræðslu
um jafnrétti og jafnstöðu i skólum sé og
annars staðar i samfélaginu.
Niðurstiiður frá starfshópi um:
STARFSMENNTUN OG STARFS-
VAL.
Landsfundur K.R.F.Í. hvetur foreldra og
forráðamenn barna til sem mestrar sam-
vinnu um uppeldi og umönnun barna
þeirra og bendir á nauðsyn þess að börn
venjist sem fyrst þeirri hugsun að karlarog
konur hafi sörnu skyldur við þjóðfélagið og
sama re'tt til náms og starfs. Fundurinn
hvetur foreldra til að veita börnum sin-
um jafna uppörvun til að afla sér
menntunar og velja sér lifsstarf, er svari
sem bcst til hæfileika þeirra og getu.
Fundurinn brýnir fyrir uppalendum að
vinna gegn þvi viðhorfi að stúlkur velji
sér nám og starf með hliðsjón af hugsan-
legum hjúskap og barneignum.
Landsfundur K.R.F.I. skorar á sam-
félagið í heild að stuðla að þvi i reynd, að
báðum kynjum verði gert kleift að sam-
ræma nám og starf barnauppeldi og
umönnun; m. a. mcð sveigjanlegum
vinnutima, auknum möguleikum á dag-
vistun fyrir börn, skóladagheimilum og
einsetningu skóla. Fundurinn leggur
eindregiö til að börnum verði sem fyrst á
skólagöngu sinni gefið færi á að kynnast
hinum ólíkustu starfsgreinum svo að þau
geti betur gert sér grein fyrir þvi hverra
kosta er völ i námi og starfi. Enn fremur
aö verklegri og bóklegri menntun sé gert
jafn hátt undir höfði og að efld verði
námsráðgjöf og leiðbeiningar um starfs-
val. Það er álit fundarins, að með breyttri
tilhögun iðnnáms og annarrar verk-
menntunar væri unnt að fjölga mjög
valkostum karla og kvenna til náms og
starfs.
Landsfundur K.R.F.Í. telur brýnt að
auka fræðslu fyrir fólk á öllum aldri í
sjónvarpi, útvarpi, bréfaskólum, náms-
flokkum og á vegum ýmissa félagssam-
taka. Fundurinn telur að miða verði við
40