19. júní


19. júní - 19.06.1977, Síða 43

19. júní - 19.06.1977, Síða 43
það, að slikt nám geti aukið starfsréttindi í einhverri mynd. Fundurinn hvetur enn fremur til samvinnu að þvi sameiginlega markmiði að efla starfsþekkingu, endur- menntun, þar sem hennar er þörf og stuðla þannig að aukinni lifsfyllingu fólks, jafnt karla sem kvenna. Landsfundur K.R.F.I. leggur til að aukin verði fræðsla á vegum atvinnuveganna og fólki þannig gert kleift að fylgjast með nýjungum í starfi. Fundurinn leggur áherzlu á rétt einstaklingsins til atvinnu alla starfsævi sína og að fólki, sem þarfnast endurmenntunar, gefist kostur á tímabundnum leyfum frá störfum án tekjuskerðingar, til þess að afla sér henn- ar. Fundurinn leggur einnig til að ríkis- fjölmiðlarnir auki upplýsingar um rétt- indi og skyldur, sem fylgja aðild að stéttafélögum og geri fólki ljósa félags- lega stöðu sina. Landsfundur K.R.F.Í. skorar á konur að hasla sér völl á öllum sviðum þjóðlífsins og vinna ótrauðar að því að þjóðfélagið taki breytingum, er geri öllum ein- staklingum fært að velja lifsstarf við sitt hæfi og stunda það samhliða umönnun þeirra er landið eiga að erfa. A landsfundinum var samþykkt að senda eftirfarandi áskorun: Landsfundur Kvenféttindafélag íslands, haldinn að Hallveigarstöð- um i Reykjavik dagana 19. til 20. júní 1976, skorar á Skólarannsóknadeild Menntamálaráðuneytis og Rikisút- gáfu námsbóka að láta endurskoða allt kennsluefni á grunnskólastigi með tilliti til jafnstöðu kynjanna. Jafntframt skorar fundurinn á Menntamálaráðuneytið að fella inn i námskeiðahald fyrir kennara við grunnskóla sérstök námskeið um jafnréttis- og jafnstöðumál. Á landsfundinum starfaði sérstakur hópur er ræddi um innra starf félagsins og framtiðarverkefni þess, hvort nafn þess ætti lengur rétt á sér, nafnið á ársriti félagsins væntanlegt 70 ára afmæli K.R.F.f. i janúar 1977 og hvort ekki væri aðkallandi að skrá sögu þess. Niður- stöðum af umræðu hópsins var beint til stjórnarinnar til athugunar og úrvinnslu. Á landsfundinn kom Sigríður J. Magnússon, er lengi var formaður félagsins og fulltrúi þess í stjórn alþjóða- samtaka kvenna (I.A.W.) og hefur viða komið fram erlendis fyrir hönd þess. Hún er nú heiðursfélagi og var hyllt af fundarmönnum og þökkuð störf í þágu K.R.F.f. Sigriður lagði til að félagið endur- nýjaði við póstmálayfirvöld fyrri tilmæli um útgáfu frímerkis með mynd Brietar Bjarnhéðinsdóttur. Föt - tíska - föt Framhald af bls. 33 hár. Efnismikil pils og blúndu- lögð undirpils auka umsvif í klæðaframleiðslu og támjóu skórnir hafa verið endurvaktir og munu glæða viðskiptin joví þannig skór endast mun skemur en þeir sem falla eðlilega að fætinum. Litavalið er einnig að breytast, pastellitir eru komnir aftur og hvít föt eru mikið fram- leidd, en þetta kallar auðvitað á stóraukið viðhald. Fyrirmyndir virðast oft sóttar til áranna i kring um 1950, og á slíkt reyndar við á fleiri sviðum en í klæðaburði. Agæt aðferð til að athuga hvað er að gerast og hvert stefnir er að grafa upp svo sem 4 — 5 ára gam- alt kvennablað og bera það sam- an við annað nýtt. Hér á landi apa blöð flest sitt eftir útlendum blöðum, en stór erlend tímarit, svo ekki sé talað um fata- og snyrtivöruframleiðendur, nota ekki happa- og glappaaðferðina þegar þeir setja framleiðslu sina á markaðinn. Gerðar eru margvís- legar athuganir á þjóðfclags- ástandinu á hverjum tíma og framleiðslu og sölutækni bcitt í samræmi viö niðurstöðurnar. Útlits- og tískuforskriftir, handa- vinnu- og mataruppskriftir hafa orðið þvi flóknari og fyrirhafnar- meiri eftir þvi sem efnahags- örðugleikar iðnaðarrikjanna hafa vaxið og atvinnuleysið aukist. Á næstunni þarf því almenningur, og þó einkum og sér í lagi konur, ekki aðeins að standa vörð um afkomu sina og atvinnuöryggi heldur einnig likama sinn og heilbrigði. Á támjóum skóm með pinnahælum leggjum við varla í gönguna miklu, hvað þá að von sé til að okkur miði nokkuð áfram. ram. Elisabet Gunnarsdóttir. Þarf að ala stráka ... Framhald af bls. 23 beint að móðurinni, en frá föðurnum t.d. i flestum barnabókum.“ — „Ábyrgðin af börnunum látin hvíla á móður eða þær taka hana á sig. Það þarf að skipta ábyrgðinni milli foreldra." Hvernig haldið þið að staðan í jafnréttismálum verði t.d. þegar þið verðið um fimmtugt? Þeim finnst óratimi þangað til og þá verði aðrir tímar. — „Kon- ur eru svo deigar á vinnu- markaðinum núna og sætta sig við lág laun fyrir mikla vinnu. Kannske munum við stíga skref í átt til meira jafnréttis í atvinnulífinu.“ — „Svona umræður eru gagnlegar. Ætti að setja af stað umræðuhópa og vekja konur til umhugsunar um sjálfar sig.“ — „Það hræðilegasta sem gæti komið fyrir mig væri ef ég settist bara inn í eitthvert hús og léti karlinn vinna fyrir mér.“ — „Mamma er að brjótast út úr þessu.“ 41

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.