19. júní - 01.03.1994, Blaðsíða 25
Framkvœmdastjórn og varamenn í aðalstjórn KRFÍ: Neðri röð frá vinstri: Btyndís Hlöðversdóttir, nýkjörin varaformaður, Lilja Ólaftdóttir,
fráfarandi gjaldkeri, Inga Jóna Þórðardóttir, formaður, Jónína M. Guðnadóttir, fi-áfarandi varaformaður en hún hefitr verið í stjórn KRFI
hátt á annan áratug, Ellen Ingvadóttir og Guðný Befiediktsdóttir. Efri röð frá vinstri: Edda H. Steingrímsdóttir, framkvœmdastjóri KRFI,
Oddný Vilhjálmsdóttir, Hidda K. Ólaftdóttir, nýkjörin í stjórn, Valgerður K. Jónsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir og Ragtihildur Vigfúsdóttir.
A myndina vantar nokkrar konur í stjórn og varastjórn.
Fréttir úr starfi
Mynd kvcnna í Ijölniiðliim
Af starfi félagsins skal þess fyrst getið að
haldinn var mjög fjölsóttur fundur í
Kornhlöðunni í Bankastræti þann 24.
nóv. þar sem rnynd kvenna í íslenskum
fjölmiðlum var tekin til umfjöllunar. Jó-
hanna Vigdís Hjaltadóttir flutti erindi um
sjálfsmynd íslenskra fjölmiðlakvenna og
Eyja Margrét Brynjarsdóttir talaði um
fjölmiðla og kvenlega fegurð. Hrefna
Guðmundsdóttir og Elín Arna Þorgeirs-
ðóttir kynntu úttekt á þætti kvenna í
sjónvarpsfréttum. Steinunn Óskarsdóttir
gaf yfirlit yfir umfjöllun fjölntiðla um
konur í stjórnmálum. Einnig svöruðu
fjórir frétta- og blaðamenn spurningunni:
Hvernig fjalla fjölmiðlar um konur?
Umræður voru líflegar og var viðhorf
fundarmanna í heild á þá lund að hallað
v*ri á konur í umfjöllun fjölmiðla. Hlut-
ur þeirra væri rýr í fréttum og þær ntinna
áberandi en karlar. Þær raddir heyrðust
líka að ein af ástæðunum væri sú að kon-
ur veigruðu sér við að koma fram. Konur
KRFI
væru oftast tregari til að láta hafa viðtöl
við sig og segja skoðun sína en karlarnir.
Leikhúsferð
I nóvember var leikrit Steinunnar Jó-
hannesdóttur, Ferðalok, skoðað og á eftir
sátu höfundur og leikstjórinn, Þórhallur
Sigurðsson, fyrir svörum. Gestir luku lofi
á leikritið og umræður á eftir voru líflegar.
Jólaluiiduiiiin . . .
. . . var með hefðbundnu sniði og vel
sóttur. Meðal dagskráratriða var söngur
Þorbjargar Guðmundsdóttur læknis við
undirleik SofHu Guðmundsdóttur. Svo
var að venju upplestur úr nýútkomnum
bókum. Jóhanna Kristjónsdóttir las úr
bók sinni Perlur og steinar — árin með
)ökli, Sigríður Erlendsdóttir las kafla úr
nýútkominni sögu félagsins og Guðrún
Helgadóttir las upp úr bók sinni Litlu
greyin.
Fuiidur á Akureyri
Brugðið var út af vananum með að halda
fund í Reykjavík á afmæli félagsins, 27.
janúar. Þess í stað fóru tveir stjórnarmenn
KRFÍ til Akureyrar og hittu að máli kon-
ur sem vinna að sveitarstjórnarmálum þar
í bæ ásamt jafnréttisfulltrúa Akureyrar. A
Akureyri er jafnréttismálum sinnt betur
en víða annars staðar. Staða jafnréttis-
fulltrúa á án efa sinn þátt í að svo er.
Konur úr öllum stjórnmálaflokkum kornu
á fundinn. Fram kom m.a. að konurnar
hafa hist og rætt saman og að verið væri
að undirbúa námskeið fyrir konur um
sveitarstjórnarmál.
Slarlshópur 11111
sveitarstjórnarmál
Akureyrarfundurinn var liður í starfi
hópsins, sem orðinn er allfjölmennur og
hefur hist reglulega frá áramótum. Meðal
25