19. júní


19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 4

19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 4
kosningarétti kvenna og svo aftur á fyrri hluta áttunda áratugarins þegar Rauð- sokkahreyfingin var upp á sitt besta. Þessar tvær stóru jafnrétdsbylgjur færðu íslenskar konur vel fram á veg. Sú fyrri veitti konum þau grundvallarréttindi að hafa áhrif á stjórnmál landsins og verða þannig afl sem þurfti að taka tillit til og mátti hræðast. Síðari bylgjan skall óvægi- lega á stöðnuðum viðhorfum, fordómum og rótgrónum venjum um hvað hvoru kyni bæri og sæmdi að gera, hugsa, segja og vilja. Hrikti víða í hjónabandsstoðum geta leyft sér að hafa. Við viljum líka að þeir taki þátt í öllu. Engan sér lúxus fyrir suma hér. Eitt rekur sig á annars horn. Karlar hafa verið tregir til að láta af ýmsum dekursiðunt sem mæður þeirra létu eftir þeim og þeir sáu feður sína njóta. Smábörn og krefjandi vinna á framabraut keppa sí- fellt um krafta foreldranna. Konurnar þurfa að leggja sig tvöfalt fram til að keppa við karlana um tækifæri og þeirn finnst öll spjót standa á sér. Konum finnst þær oft útundan í hópi starfsbræðra. Körlunum líður oft best í sínum hópi. Það á jafnt við um karla sem yfirmenn og karla sem sam- starfsmenn. Mörgum þeirra veldur það óþægindum að fá konur í hópinn og þeir kunna ekki að umgangast þær eins og jafn- ingja. Þegar vinna dregst saman missa kon- urnar hana oft á undan körlunum. Astæð- urnar má oft finna í skekktri samkeppnis- stöðu kynjanna vegna þeirra atriða sem talin eru upp hér á undan. Uff, þvílíkt ástand. Allt ómögulegt! Há- værar raddir um bakslag og að verið sé markvisst að koma konunum út af vinnu- nrarkaði. En er það svo? Er raunverulegt bakslag í jafnréttisbaráttunni á Islandi? Getur ekki verið að þetta sé sama, gamla nöldrið yfir göllum ríkjandi ástands? Við skulurn reyna að líta til baka og skoða ástandið á nokkr- um tímabilum. Upphar jainréttislireyringar Vesturlanda Árið 1840 stóðu bandarískar konur í fylkingarbrjósti við hlið karla í baráttu fyrir réttindum blökkumanna. Noklerar þeirra tóku sér ferð á hendur alla leið til Englands til að sitja heimsþing þeirra er beittu sér fyrir afnámi þrælahalds. Þar urðu þær fyrir þeirri reynslu að vera meinað að sitja þing- ið einungis á þeim forsendum að vera ekki karlar. Eftir mikið þref fengu þær að sitja bak við tjöld og hlýða á málflutning karl- anna en urðu sjálfar að þegja og máttu ekki sjást. Sú fullkomna fyrirlitning sem þær upplifðu á heimsþingi höldnu til bar- áttu fyrir frelsi minnihlutahóps (ef til vill hafa hvítu karlarnir aðeins ætlað sér að af- nema þrælahald á svörtum körlum) varð til þess að þær stofnuðu átta árum síðar sam- tök til að berjast fyrir réttindum kvenna. Þær settu pólitísk réttindi á oddinn, því að þau voru lykillinn að áhrifum á samfélagið. Um baráttuna skrifar Shulamith Firestone: The history of the struggle for suffrage alone is an account of tooth and nail opposition from the most reactionary forces in America. (Firestone, Shulamith: „The Women’s Rights Mo- vement in the U.S.: A New View. “ Woices from Womens Liberation, bls. 436.) Þegar kom að því að konurnar krefðust Á fiiiimtugsafinæli I ár er lýðveldið okkar fimmtugt. Rétt eins og flestir menn staldra við á slíkum tímamótum og spyrja sjálfa sig hversu vel þeim hafi tekist til það sem af er og hvort þeir séu ánægðir með stöðu sína í lífinu lít- ur þjóðin nú yfir farinn lýðveldisveg. Það líður líka að aldamótum og því ekki úr vegi að líta um öxl yfir tuttugustu öldina sem senn er að baki. Konur hafa verið að sækja fram á flest- um sviðum alla öldina og náð nokkuð góðum árangri. Sóknin hefur þó ekki stað- ið jafnt og þétt allan tímann heldur hafa komið tímabil stórra framfara en lægðir og lygnur á milli. Hæst reis jafnrétdsumræðan í upphafi aldarinnar þegar barist var fyrir þegar tekist var á um hefðbundin yfirráð karlsins og nývakið sjálfstæði konunnar. Konur slitu sig allvel lausar úr viðjum vanans. Vopnaðar menntun og getnaðar- vörnum og brynjaðar nýjum viðhorfum gerðu þær tilkall til þátttöku á öllum svið- um þjóðlífsins, undanbragðalaust. Eftir Lilju Ólafsdóttur, aðstoðarmann forstjóra Skýrr Við viljuin allt Að venju sjá menn gallana á því sem þeir hafa en ímynda sér framtíðina í rós- rauðum bjarma ef sýnilegum vanda væri rutt úr vegi. Það reynist sjaldan svo og eins fór hér að ný vandamál skutu upp kollin- um. íslenskar konur láta ekki segja sér að velja á milli fjölskyldu og starfsframa eins og víða annars staðar á Vesturlöndum. Við viljum allt, að minnsta kosti allt sem karlar Kvennahreyfing á breytingaskeiði? 4

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.