19. júní


19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 10

19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 10
það gera það engir aðrir fyrir þá. Það verða konur að skilja. Það verður að breyta launakjörum í landinu. Þessum lágu laun- um sem konur eru fyrst og fremst á verður að breyta. Réttur fólks til vinnu fyrir laun- um sem virðingu þess eru samboðin eru þau mannréttindi sem allir eiga að fá not- ið. Konum er fyrst ýtt út af vinnumarkaði og inn á heimilin ef atvinnuleysi er. Það eiga konur ekki að láta gerast. Það væri að stíga stórt skref aftur á bak. Þær eiga ekki að láta skáka sér til vegna hagfræði stjórn- málamanna. Það er svo stór hluti af virð- ingu fólks að hafa fjárráð. Konur á mínum aldri þekkja margar hverjar hvað það er að afla sér ekki peninga og hafa þar af leið- andi takmörkuð fjárráð á heimili sínu. Konur þurfa að halda áfram að mennta sig. Vel menntuð kona er kona framtíðarinnar. Konur eru að verða mjög sýnilegar og þær mega ekki hverfa, ekki draga sig í hlé. Konur þurfa að styðja hver aðra, en það finnst mér oft hafa brugðist. Ég hef viljað að ungt fólk og þá einkum stúlkur kynni sér rétt sinn í hjúskap. Fjár- mál eru mikilvæg í sambúð kynja. Það er vitað mál að konur eiga sáralídð af auðæf- um jarðarinnar, þau eru ekki skráð á kon- ur. Þetta er atriði sem þarf að gefa gaum að og einkum þurfa konur að huga að sameig- inlegum fjárhag í sambúð. Ennþá bera konur mesta ábirgð á upp- eldi barna sinna og heimilishaldi. Það er erfið staða og ég hef sagt að það verði ekki bæði sleppt og haldið. Mér kemur í hug sagan um selakonuna. Hún kom í hóp annarra sela á land og þar skiptu þeir um hami, urðu að mönnum um stund. Maður gekk fram hjá og sá hamina, tók einn, fór með hann heim og lokaði ofan í kistu. Síð- an fór hann aftur á sama stað og þá sat þar nakin kona, grátandi. Hún hafði misst haminn sinn og ekki komist í burtu. Mað- urinn tók hana heim með sér og þau bjuggu saman, eignuðust börn sín. Eitt sinn náði konan í lykilinn að kistunni, náði í haminn og fór til sjávar. Bóndinn og börnin voru eftir og syrgðu móður sína og konu. Þegar bóndinn fór á sjó kom oft að bátnum hans selur og hann sá ekki annað en selurinn gréti. Hann þóttist vita að þetta væri konan hans. Orlög hennar voru að eiga sjö börn í sjó og sjö á landi. Það eru örlög margra kvenna að þurfa að velja. Það er oft erfitt að sameina vinnu og ef til vill mikla ábyrgð í starfi utan heimilis og sinna börnum og heimili eins og ábyrgar konur vilja. Þess vegna má ekki krafan niður falla um aukna gæslu barna með dagheimilum og einsetnum skóla, þannig að foreldrar geti verið öruggir um börn sín meðan þeir eru að sinna störfum sínum utan heimilis. En fyrst og síðast, stöndum saman og styðjum hver aðra. Afram stelpur. „Konur máttu ekki skara fram úr“ Else Mia Einarsdóttir bókasafns- fræðingur er norsk, kom hingað til lands eftir að hún kynntist manni sínum, Hjörleifi Sigurðs- syni listmálara, í París, en þar var hún við nám í bókmenntum. Hún seg- ist hafa haft áhuga á kvenréttindamálum frá því hún man eftir sér. „Móðir mín var hjúkrunarkona og mikil kvenréttindakona. Og síðar er ég fór í nám í bókasafnsfræð- um í Tunsberg nam ég hjá Inger Baardseth sem var ein af frumkvöðlum almennings- bókasafna í Noregi. Inger var frjálslynd, vel menntuð, fróðleiksþyrst manneskja og hún var einnig mjög dug- leg að rniðla öðrum af þekkingu sinni. Við vorum tvær stúlkur í náminu og hún gerði miklar kröfur til okkar, var í senn skemmtileg og ströng. Hún kenndi okkur að hugsa gagnrýnt. Hún var alin upp á millistríðsárunum og upplifði ár framfara og uppbyggingar eftir stríð í Noregi. Heimspekileg hugsun var ekki í mildum metum á þessum tíma, en Inger lagði áherslu á að við hugsuðum um það á hvaða tíma við lifðum og þá fyrst gerðum við okkur grein fyrir ýmsu. Þegar ég kom svo hingað til lands að námi loknu var ég svo heppin að kynnast Önnu Sigurðardótt- ur sem nú er „grand old lady“ í kvennasög- unni. Hún kom úr allt öðru umhverfi en Inger, en þessar tvær konur hafa haft mest áhrif á viðhorf mín auk móður minnar. Anna fékk mig til að fara með sér á fund í Kvenréttindafélaginu. Ég tel mig hafa verið mjög heppna að fá að kynnast þeim, það er t.d. ekki svo fátt sem við Anna höfum rætt og hugsað upphátt um kvennasögu." - Hvaða breyting- um hefur kvennabar- áttan skilað, þegar þú lítur yfir farinn veg? „Mér finnst vera borin meiri virðing fyrir konum nú en áð- ur og konur eru um- burðarlyndari gagnvart öðrum konum. Hér áður fyrr mátti engin kona skara fram úr. Það eru sögulegar skýringar á því. Við höfum séð innbyrðis baráttu þeirra sem eru kúgaðir í gegnum sög- una, þrælaslagur hefur þekkst frá örófi og mannlegt eðli virðist lítið breytast. Konur eru sennilega meira friðelskandi en karlar. Þegar sumir segja að konur séu verri en karlar ef þær ná ákveðinni stöðu í samfé- laginu segi ég alltaf að karlar séu mjög miskunnarlausir hver við annan í 'sínum hópum; við þekkjum þetta úr stjórnmál- unum og svo eiga þeir í færri tilfellum ná- inn vin en konur. Ég hef kynnst afar mörgum konum um ævina og man ekki eftir neinni sem ekki átti a.m.k. eina eða fleiri nánar vinkonur. En tímarnir eru að breytast að ég held og ég sé að ungir karl- menn eru að eignast vini og vilja ekki fórna fjölskyldulífi fyrir starfið eins og algengt hefur verið.“ - Þú segir að konur séu ekkert betri en karlar. Beita þær ef til vill öðrum aðferð- um? „Konur færa meira af tilfinningalífi sínu á aðra. Þær eru að mínum dómi tilfinn- ingalega þroskaðri en karlar. Þær eiga auð- veldara með að setja sig í spor annarra, hugsanir þeirra, langanir og tilfinningalíf. Þegar þær særa aðra vita þær alltaf ósköp vel hvað þær eru að gera. Þær eiga auðveld- ara með að vorkenna öðrum og eru vel meðvitaðar um það þegar þær meiða aðra. Veiðimennskan er þeim t.d. ekki í blóð borin. Konur hafa til að bera mikla seiglu og það er einn þeirra mesti styrkur, enda hafa konur unnið öll verk heima fyrir, alið upp börnin, ræktað jörðina og búið um fjölskyldurnar í hýbýlum sínum." - Þú sagðir áðan að nútímakonur væru umburðarlyndari gagnvart öðrum konum en áður. Hvað áttirðu við með því? „Hér áður fyrr var kvenímyndin miklu Viötal: Valgerður Katrín Jónsdóttir 10

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.