19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 11
einhæfari. Móðir mín var t.d. lærð hjúkr-
unarkona en efdr að hún gifti sig kom ekki
til greina að hún ynni utan heimilis. Eg sá
frá unga aldri að móðir mín og vinkonur
hennar fengu peninga til að reka heimilin
en þær gátu ekki ráðstafað þeim að vild.
Sumar þurftu að færa nákvæmt bókhald og
gera grein fyrir því hvernig þær ráðstöfuðu
peningunum. Frá 12 ára aldri var ég aldeil-
is ákveðin í því að ég ætlaði að vinna fyrir
mér. Raunveruleikinn var þó mun erfiðari
en ég hélt. Ég hef oft átt fullt í fangi með
að sjá fyrir mér, bókasafnsfræðingar fá ekki
há laun.
í dag eru kvenímyndirnar miklu fleiri.
Forsetinn okkar er kona, forseti Alþingis
sömuleiðis en annars eru örfáar konur
komnar í toppstöður. Stuðningur fjöl-
skyldunnar er konum ntjög mikilvægur ef
þær eiga að ná árangri út á við. Margar
konur fá stuðning vinkvenna sinna og ná
ákveðnum árangri en þegar þær eru komn-
ar í toppstöður hættir sá stuðningur og þá
skiptir öllu máli hvort fjölskyldan stendur
einhuga bak við konuna. Sjálf hef ég sem
betur fer verið mjög heppin í mínu fjöl-
skyldulífi og börn mín og barnabörn eru
bestu vinir mínir. Eins og Bjarnveig
Bjarnadóttir sagði við mig einhverntíma og
ég hef alla tíð haft í huga, þá eru börn okk-
ar bestu vinir sem við getum eiginast um
ævina. Maður er alla ævi að þroskast og
breytast. Það að vera manneskja er því
mjög spennandi og sérstaklega það að vera
kona.“
- Hvaða augum lítur þú framtíðina?
„Ég lít mjög björtum augum fram á við,
það hefur svo margt jákvætt gerst á undan-
förnum árum. Ég held að mörgum ungum
stúlkum í dag finnist það alveg sjálfsagt að
þær hafi öll formleg réttindi á við karla og
halda jafnvel að það hafi ekki kostað neina
baráttu. Þær vænta mikils af lífinu og mega
gæta sín á því að sofna ekki á verðinum því
þær munu svo sannarlega ekki fá neitt fyr-
irhafnarlaust. Ég held að eftir 10-15 ár
verði aftur þörf fyrir kvenréttindafélag og
þá verður ef til vill barist fyrir því að konur
fái einnig að njóta sín sem tilfinningaverur.
Þær þurfa ekki endilega alltaf að vera vel til
hafðar, það verður ekki lögð jafn mikil
áhersla á lagninguna! Ég held líka að ungar
konur í dag velji sér frekar menn sem
koma til með að styðja þær og gera aðrar
kröfur til makans en áður. Ég vona að sá
tími sé kominn að það sem við köllum
kveneðli fái að sýna sig í stjórnun, bæði
stjórnun fyrirtækja og stofnana. Meðvituð
móðir fær það besta út úr börnum sínum
og slíka eiginleika þarf góður stjórnandi að
hafa. Ég vona líka að sá tími sé kominn að
karlar þori að sýna þegar þeir eru hræddir
og einmana því innst inni eru þeir örugg-
lega tilfmningaverur engu síður en konur.
Þá verður skemmtilegt að lifa.“
Einstakur tónlistarviðburður:
íslenska Einsöngslagið í 150 ár:
Tónleikar Gerðubetgs
í Borgarleikhúsinu
Fimmtudaginn 18. ágúst kl. 20:00
GAR.ÐAR CORTES
KOLBEINN KETILSSON
KRISTINN SIGMUNDSSON
RANNVEIG BRAGADÓTTIR
SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR
SÓLRÚN BRAGADÓTTIR
SVERRIR GUÐJÓNSSON
JÓNASINGIMUNDARSON
FLYTJA ÍSLENSKAR EINSÖNGSPERLUR
Þjóðbúningasilfur
Handunnið víravirki - Sérstceðir skartgripir úrgulli og silfri
Berjamynstur Hannað af Jóni Dalmannssyni
Upphlutsborðar Hannaðir og smíðaðir af Dóru Jónsdóttur
-Sendum ípóstkröfu-
^P’CíullkÍstan
CltDAI ITeDlnAXfCDCI I IKI
SKRAUTGRIPAVERSLUN
JÓNS DALMANNSSONAR
FRAKKARSTlG 10 SlMI 13160
11