19. júní


19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 23

19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 23
Kærunefnd jafnréttismála I þessum mánuöi lýkur kærunefnd jafn- réttismála fyrsta starfstímabili sínu, en hún var skipuð af félagsmálaráöherra í júní 1991 til þriggja ára. Nefndina skip- uöu þau Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Siguröur Helgi Guðjóns- son, hæstaréttarlögmaður og Margrét Heinreksdóttir, sýslufulltrúi. Á þessu tímabili hefur nefndin fengið til meðferðar 42 kærumál og er 35 þeirra lokið. Af þessum 42 málum eru 36 frá konum. Algengast er að óskað sé eftir áliti nefndarinnar á því hvort at- vinnurekandi hafi brotið jafnréttislög við ráðningu eöa skipun í starf eða viö stööuhækkun. Erindi vegna meints launamisréttis hafa verið fá en fer nú fjölgandi. Þegar kærunefndin hóf störf mótaöi hún sér starfsreglur og má segja aö fljótlega hafi starfsemi nefnd- arinnar falliö t nokkuð fastar skorður. Álitsgerðir kærunefndar eru ekki bindandi fyrir málsaðila en það er eitt af þeim atriöum sem nefndarmenn telja aö þarfnist endurskoðunar og fundin veröi leiö til að gefa álitsgeröum nefnd- arinnar meira vægi en nú er. í jafnréttis- lögum segir að telji kærunefnd að um þrot á lögunum hafi verið að ræöa skuli hún beina tilmælum um úrbætur til hlutaöeigandi aðila. Sé ekki fallist á úr- bætur sé nefndinni heimilt aö höfða mál. Nú hefur verið höföað eitt slíkt mál hjá héraðsdómi Reykjavíkur og er þaö fyrsta málshöfðun kærunefndarinnar. Við lok fyrsta starfstímabils kæru- nefndar jafnréttismála er hollt aö staldra viö og líta yfir farinn veg og sþyrja hvort kærunefnd jafnréttismála eigi rétt á sér eða hvort eitthvað annað form sé betra. Hver sé árangur af starfi okkar og ef einhver, hvernig sé hægt að mæla hann. Við vitum aö því miöur rtkir ekki fullkomiö jafnrétti með kynjunum á öllum sviðum íslensks samfélags. Mér detta stundum í hug ummæli eins þing- manns sem hann viðhafði þegar jafn- réttislögin voru til meöferðar á Alþingi, en þau voru eitthvað á þá leið aö þaö væri dapurlegt að við skyldum þurfa lagasetningu um jafnrétti kynjanna því svo sjálfsagt ætti að vera að allir þegn- ar þjóöfélgsins nytu sömu réttinda. Hefur hin nýstofnaða kærunefnd ver- ið jafnréttinu til framdráttar og hefur hún stuðlað að framförum í þessum efnum? Ég tel það ótvírætt vera og tel að sjá megi jákvæð teikn á lofti. Mikil fjölgun á kærum hefur orðið sem þýðir vonandi ekki að fólk sé oftar beitt mis- rétti en áður, heldur að fólki sé orðiö Ijósara að til er leið til að koma kvörtun- um sínum í þessum efnum á framfæri og ná fram rétti sínum. Við höfum einn- ig orðið þess vör að atvinnurekendum þykir miður aö fá þaö álit frá kærunefnd aö þeir hafi gerst brotlegir við jafnréttis- lög og þótt þeir bæti ekki ávallt fyrir brotið er trúlegt að þeir reyni að forðast að lenda í slíku aftur. Umfjöllun fjöl- miöla hefur örugglega einnig haft sín áhrif og get ég sagt fjölmiðlum það til hróss aö þeir hafa gert mörgum álits- gerðum nefndarinnar góð skil. Það er þvt mjög líklegt að álit nefndarinnar hafi varnaðaráhrif. Nú hefur félagsmálaráðherra skipað nýja kærunefnd jafnréttismála. Sú breyting varð á þeirri nefndarskipan að Sigurður Helgi Guöjónsson baðst und- an setu í nefndinni og í hans stað var skipaður Sigurður Tómas Magnússon, settur héraðsdómari. Ragnhildur Benediktsdóttir. Meimtasmiðja kvenna á Akureyri Sumarið 1994 sótti jafnréttisfulltrúi um styrk í 60 milljóna sjóö félagsmálaráð- herra til að stofna menntasmiöju fyrir atvinnulausar konur, að danskri fyrir- mynd. Styrkur fékkst að upphæð 2 milljónir og var þá hafist handa við und- irbúning þessa þróunarverkefnis. Pál- ína Guðmundsdóttir, myndlistar- og málvísindakona, var ráðin í stöðu verkefnisfreyju í apríl s.l. og um miöjan júní er gert ráð fyrir að ganga frá ráðningu tveggja ann- arra starfskvenna/leiðbeinenda, sem jafnframt munu sinna ráögjöf og skrifstofustjórn. Verkefniö var tilnefnt af menntamálaráöuneyt- inu sem framlag Islands til nor- ræna fulloröinsfræösluverkefnis- ins VOKS NÆR. Þar er unnið að þróun í fullorðinsfræðslu með því að tengja saman starfsmenntun og almenna fullorðinsfræðslu byggöa á lýðfræðsluhugmyndum. Þessa dagana er unnið að því aö finna hentugt húsnæöi fyrir Menntasmiðjuna og leita eftir samstarfi viö skóla og stéttarfélög á Akureyri. Áætlað er að verkefnið verði á vegum jafnréttisnefndar til áramóta en að þá veröi leitað eftir formlegu samstarfi við ýmsa aöila um sjálfstæöan rekstur verkefnisins. Stefnt er að því að hefja starfsemi Menntasmiðjunnar haustið 1994. U.þ.b. 20 konur munu þá stunda nám þar eina önn (16 vikur). Atvinnulausar konur munu þar hafa forgang. Það verð- ur þó ekki skilyrði að þær séu á at- vinnuleysisskrá, þar sem vitað er að margar konur eru án vinnu, án þess að eiga rétt á bótum, t.d. eftir að hafa ver- ið heimavinnandi um skeið. Námið verður samþætting hagnýtra námsgreina, sjálfstyrkingar og listrænn- ar tjáningar. Ekki er um beina starfs- menntun aö ræða en námið mun geta nýst sem undirbúningur fyrir ýmis störf. í Danmörku hefur árangur Kvenna- dag háskólans verið sérstaklega góður. Um 30% nemenda fá vinnu að loknu námi, þriðjungur fer I frekara nám og þriðjungur gerir annað, en nær allar verða virkari I daglega lífinu. Jafnréttisnefnd Akureyrar hefur I starfi sínu lagt áherslu á að virkja bæjarbúa, halda námskeiö, veita styrki til jafnréttisverkefna og vekja umræðu um ýmis mál með opnum fundum og fjölmiðlaumræöu. Menntasmiðjan er án efa stærsta verkefni nefndarinnar til þessa en er I raun rökrétt framhald sjálfstyrk- ingamámskeiöanna sem haldin hafa verið síðustu tvö ár. Glfurlegt atvinnuleysi kvenna á Akureyri kallar llka á uppbyggilegar aðgerðir og eðlilegt aö jafnréttisnefndin taki þar á málum. VHB 23

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.