19. júní


19. júní - 19.06.1994, Síða 16

19. júní - 19.06.1994, Síða 16
Það sem nikótínið gerir m.a. er að skerða súrefnisflutningsgetu blóðs en minnkað framboð súrefnis til vefja fósturs er talið hafa fjölþætt áhrif á efnaskipti hjá fóstrinu. Öll efni sem fara um blóðrás móðurinnar fara mjög auðveldlega um fylgjuna og yfir í blóðrás fóstursins. Styrkleiki nikótínsins verður meiri í blóði hins agnarsmáa barns en í blóðrás móðurinnar og það er lengur að skiljast út frá fóstrinu. Þetta þýðir að hver sígaretta virkar margfalt sterkar á ófædda barnið en móðurina! Óbeinar reykingar hafa líka ili áhrif Alveg nýlega komu fram niðurstöður úr kanadískri rannsókn sem sýna svo ekki verður um villst að óbeinar reykingar hafa áhrif á hin ófæddu börn! Það er því ekki nóg að kona hætti sjálf að reykja - hún verður að forðast aðra sem það gera á með- an hún gengur með barn! Efni úr tóbaksreyk mælist í hárum fóstra í móðurkviði bæði hjá reykingakonum og hinum. Samansafnaður sígarettureykurinn hefur langvarandi áhrif á fóstrin og gerir líkamskerfi þeirra varnarlaust gegn eitur- efnum og getur því haft veruleg áhrif á heilsu barnsins — sérstaklega síðustu mán- uðina fyrir fæðingu og fyrstu mánuðina eftir fæðingu. Enda hafa rannsóknir marg- sannað að barn reykingakonu vex og dafn- ar hægar í móðurkviði en hinna - og sama á við eftir að það er fætt; einnig til lang- frama því tóbaksreykur seinkar tauga- þroska og dregur úr námsárangri. Ekki má gleyma því að reykingar á með- göngu eru ekki síður hættulegar móður- inni en hinu ófædda barni. I réttu hlutfalli við reykingar móður eykst hættan á fóstur- láti, að barn fæðist andvana og meiri hætta er talin á vöggudauða. Reykingakonur eru einnig í mun meiri hættu á að fá blæðingar á meðgöngu, fylgjulos og að fæða fyrir tímann; allt er þetta hættulegt fyrir barnið — og konuna. Og enn ein nýleg könnun hefur sýnt að barnabarn reykingakonu er í meiri hættu að fá ýmis af þessum sjúklegu afbrigðum á meðgöngu - jafnvel þótt þessi kona reyki ekki. Eflaust eiga óbeinar reykingar hér ein- hvern hlut að máli en kjarni málsins er að í viðbót við allt hitt þá er reykingakona jafnvel líka að skaða ófætt barnabarn sitt! Þetta leiðir hugann að því að margar íslenskar konur eru áhyggjufúllar yfir því að svo virðist sem nú sé komin upp kynslóð kvenna sem virðist vera sérlega hætt við krabbameini - varla líður svo dagur að ekki sé í Morgunblaðinu minn- ingargrein um konu sem dáið hefur í blóma lífsins - og þegar mæður þeirra gengu með voru reykingar í tísku hjá konum og enginn áróður fyrir því að reykingar væru hættuleg- ar. . . þetta eru þó aðeins óábyrgar hugleið- ingar en hver veit hvað framtíðarrannsóknir eiga eftir að Ieiða í ljós. Að hælta að reykja; hjálparmeðul eingöngu lyrir liina cfnameiri? Vonandi ákveða einhverjar konur að hætta að reykja eftir þennan lestur - eða af einhverjum öðrum ástæðum. En margar treysta sér ekki til þess nema með utan- aðkomandi hjálp og helst verður makinn að hætta líka. Þeim sem virkilega vilja hætta er m.a. boðið upp á námskeið í að hætta að reykja, plástra sem hjálpa líkam- anum að venja sig af nikótínþörfinni, nik- ótíntyggjó og nú er komið á markaðinn sérstakt efni í úðabrúsa sem úðað er upp í nefið. Betri árangur er talinn nást ef fleira en eitt þessara meðala er notað samtímis en mörgum finnst óheyrilega dýrt að hætta að reykja. Hvers vegna er það svona dýrt? Þessi spurning var lögð fyrir Ingileif Ólafs- dóttur hjá Krabbameinsfélagi íslands. - „Það er vitleysa að það sé dýrt að hætta að reykja! Fólk þarf að hugsa um þetta út frá lengri tíma, t.d. ári, og þá lítur dæmið allt öðru vísi út. Þegar nikótínlyfin eru verðlögð er ein eining látin samsvara verði einnar síg- arettu. Þarna er líka haft í huga að ef nikó- tínlyfin eru ódýrari en sígaretturnar þá er einhver hætta á að fólk fari að kaupa þau frekar og ánetjist þá þeim í staðinn. Þeir sem nota nikótínplástra nota kannski nikótíntyg- gjó líka en það á eingöngu að nota þegar fólki finnst það þurfa á „nikótínskoti" að halda, t.d. til að létta á álagi. Komið hefúr til tals að afgreiða nefúða eingöngu gegn lyfseðli - og er þá verið að hugsa um unglingana. Námskeiðin sem við höldum standa í fimm vikur og kosta 5000 krónur. Það má auðvitað líta á það sem viðbótarkostnað en ef sá kostnaður sem hlýst af því að nota hjálparmeðul til að hætta að reykja - nám- skeið í 5 vikur og plástra í 3 mánuði - er borinn saman við það að reykja í eitt ár þá sést fljótt að miklir peningar hafa sparast.“ Að lokum má benda á að líkamsrækt og útivera hvers konar hjálpar mörgum til að leiða hugann frá reykingum. Flestum sem hugsa vel um líkamann er einnig annt um heilsuna og því er félagsskapur þessa fólk mjög æskilegur fyrir þær sem vilja hætta að reykja. Það fylgir því sérstök vellíðan að hafa farið í góðan göngutúr eða út að skokka í hreinu og heilnæmu lofti eða eftir að hafa teygt vel á Iíkamanum í sundi eða Iíkams- rækt. Tilfinning heilbrigðis. Hvernig er eig- inlega hægt að skemma þessa tilfinningu með því að fá sér sígarettu? Meiri andstæður er vart hægt að hugsa sér! Reykingakona - hættu við sígarettuna! Dragðu heldur fram gönguskóna og farðu út! Þú veist að þú átt ekkert dýrmætara en góða heilsu! PUNKTA- FRÉTTIR Hjálmanotkun »Á meðan við veltum barna lögleidd? ™nsum yfir lögfræði- legum vandamálum og „viðkvæmni foreldra“ slasast börn alvarlega á götum borgarinnar,“ segir landlæknir og spyr hvað dvelji aðgerðir gegn höfuðslysum barna og unglinga. Landlæknir bendir á að um 10 ár séu nú liðin frá því fyrst var óskað eftir róttækum aðgerðum hér á landi, þ.e. lögbindingu á hjálmanotkun barna og unglinga. Um 360 börn voru lögð inn á sjúkrahús á ár- unum 1987-1991 vegna höfuðáverka. Rúmlega helmingur þeirra 300 barna sem lögð voru inn á Borgarspítalann slösuðust á reiðhjóli. Og tiltölu- lega hátt hlutfall barna undir fimm ára aldri verður fyrir höfuðáverkum. Mörg þessara barna ná seint fullri heilsu og önnur aldrei. Því má spyrja hvers vegna hjálmar séu ekki lögleiddir hið snarasta. Viljum ekki skipta um þjóðsöng Meirihluti lands- manna er á móti því að skipta um þjóð- söng og vill halda í þann sem við nú eigum. Þetta kom fram í skoðanakönnun meðal lands- manna, 18-67 ára, um miðjan apríl þar sem 57,8% þeirra sem tóku afstöðu eru á móti því að skipta um þjóðsöng en 42,8% eru því fylgj- andi. Áfram verður því hátíðarsöngur íslendinga lofsöngurinn sem Matthías Jochumsson orti 1874 og nefndi Lofsöng í tilefni íslands þúsund ára og Sveinbjörn Sveinbjörnsson samdi lag við. Árið 1983 var staðfest með lögum að lofsöngur- inn skyldi vera þjóðsöngur íslendinga og heita Ó, guð vors lands. Almenningi hefur löngum þótt hann erfiður til söngs en því hátíðlegra að hlýða á hann vel fluttan. Mafíukonur í Á Ítalíu hefúr að und- kröfugöngu anförnu verið 8ert átak til að uppræta mafíuna og víðtæk völd hennar. Ekki hefur farið hjá því að margir eigi nú um sárt að binda þeg- ar mafíuforingjar sem áður voru voldugir eru komnir bak við lás og slá og óvíst um framtíð þeirra og fjölskyldna þeirra. Samkvæmt nýrri löggjöf má halda þeim innilokuðum, án alls sambands við sína nánustu og umheiminn, og þá var eiginkonum margra þeirra nóg boðið. Eiginkonur fangelsaðra mafíuforingja í Napólí, sem ekki alls fyrir löngu höfðu gaman af því að láta sjá sig í hátískukjólum þar sem þær voru að njóta hins ljúfa lífs, tóku sig til í vor og þrömm- uðu um götur borgarinnar til að mótmæla þessum ósvífnu lögum. Þeim þótti nú við hæfi að vera tötrum klæddar og bera sig illa vegna slæmrar af- komu með fyrivinnuna atvinnulausa. En krafan sem þær gerðu var sú að afnema þessi nýjustu mafíulög sem hafa gert mörgum „annars og þriðja flokks“ mafíósanum kleift að svíkja foringja sinn í hendur réttvísinnar og þiggja sjálfir laun fyrir og nýtt líf undir nýju nafni á nýjum stað þar sem þeir vona að fyrrverandi félagar þeirra finni þá ekki. „Upprætum nýju svikamenninguna,“ æptu konurnar og vonuðu að ná eyrum nýrrar ríkis- stjórnar Berlusconis. Síðast þegar fréttist höfðu konurnar engan hljómgrunn fengið, nema helst hjá erlendum fréttamönnum sem sögðu frá enn einu skrýtna afbrigðinu í ítölskum stjórnmálum. 16

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.