19. júní


19. júní - 19.06.1994, Side 30

19. júní - 19.06.1994, Side 30
Fréttir úr starfi KRFÍ MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA Fyrri stofnfundur Mannréttindaskrifstofu var haldinn þann 12. mars en að skrifstof- unni standa Amnesty International, Barna- heill, Biskupsstofa, Félag Sameinuðu þjóð- anna á Islandi, Hjálparstofnun kirkjunnar, Kvenréttindafélagið, Lögmannafélagið, Rauði kross íslands og Skrifstofa jafnréttis- mála. Framhaldsstofnfundur verður hald- inn 17. júní. LEIKHÚSFERÐ Þann 18. mars var hópferð í Þjóðleikhúsið á Seið skugganna eftir Lars Norén. Leik- ritið fjallar um fjölskyldutengsl og átök í samskiptum bandaríska leikskáldsins Fuge- ne O’NeiIl við eiginkonu sína og syni af fyrri hjónaböndum. Þátttaka varð þó ekki nægileg til að unnt væri að hafa umræður að lokinni sýningu. FRAMSÖGUERINDI GEFIN ÚT Fundurinn, sem haldinn var þann 13. apríl með konum sem voru í framboði til sveitar- stjórnarkosninganna, tókst mjög vel og sóttu hann um 100 konur. Framsöguerindi fluttu þær Ólína Þorvarðardóttir, Elín Ólafsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Kristjana Bergsdóttir og Stefanía Traustadóttir. Fundarstjóri var Sigríður Stefánsdótdr. Fundargestum og þeim sem komust ekki á fundinn er bent á að á næstunni verður hægt að fá erindin fjölrituð á skrifstofu KRFÍ. NORDISK I ORIJM Undirbúningsfundur var haldinn 17. maí með þeim konum sem ætla á Nordisk For- um á vegum Kvenréttindafélagsins en um 60 konur hafa látið skrá sig. Hulda Karen Ólafsdóttir, Jónína Guðnadóttir og Guð- rún Árnadótdr eru í forsvari fyrir hópinn, en Guðrún er jafnframt fulltrúi KRFÍ í undirbúningsnefnd. Hansína B. Einars- dóttir mætti á fundinn og kynnti framlag KRFÍ. Annar fundur er fyrirhugaður áður en lagt verður af stað. KVENNAMESSA Kvennamessa verður haldin á gervigrasvell- inum í Laugardal að morgni 19. júní í til- efni 50 ára afmælis lýðveldisins. Sex konur eru í undirbúningsnefnd messunnar, þær Sigrún Sturludóttir og Sólveig Alda Péturs- dóttir frá Kvenfélagasambandi íslands, Gerður Steinþórsdóttir og Valgerður Katr- ín Jónsdóttir frá Kvenréttindafélagi Islands og Auður Eir Vilhjálmsdótdr og Elísabet Þorgeirsdóttir frá Kvennakirkjunni. Búist er við að allir kvenprestar landsins taki þátt í messunni, auk þess verða söng- og tón- listaratriði og fyrirhugað er að um 100 konur úr kvennakórnum syngi nokkur lög. GRÓDURREITLR í HEIÐMÖRK Þann 4. júní fóru nokkrir félagar ú KRFÍ til vinnu í gróðurreit félagsins í Heiðmörk en þar hefur ekkert verið unnið um margra ára skeið. í reitnum er nokkur trjágróður, aðallega greini og birki, en þó vantar mildð upp á að reiturinn sé sá sælureitur sem hann ætti að vera. Félagar eru hvattir til að skoða reitinn en KRFÍ hyggst efna til ann- arrar vinnuferðar þangað síðar í sumar. Reiturinn er rétt við gatnamót Hrauns- og Heiðarvegar, þ.e. suðaustan Hraunsvegar. Félaginu hefur verið lofað að hann verði merktur á ný en gamla skiltið var orðið lúið og þurfti endurnýjunar við. □*] ÍSLENSK mM MATVÆLI ICEFOOD 30

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.