19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 26
Morgunverdarfundur Jafnréttisráðs
Eins og flestum mun kunnugt tekur
Jafnréttlsráö þátt í Norræna jafnlauna-
verkefninu þar sem viðfangsefnið er
launamyndun og launamunur kynjanna
auk þess sem verkefninu er ætlaö aö
benda á leiðirtil aö útrýma kynþundinni
launamismunun. í því
sambandi hefur mikið ver-
iö horft til starfsmats en
þaö eru einkum Kanada-
menn sem hafa náö góö-
um árangri í að beita því
gegn launamismunun. Um
þessar mundir er á vegum
Jafnréttisráðs unnið aö
umfangsmikilli könnun á
þessum málum og er niö-
urstaöna aö vænta á miöju sumri.
Til aö fá nýtt sjónarhorn á umræðuna
um launamun kynjanna bauö Jafnréttis-
ráö til morgunverðarfundar á Hótel
Sögu 6. maí sl. en gestur fundarins var
Beverley Jones, lögfræöingur frá Belf-
ast á írlandi. Beverley Jones hefur eink-
um fengist viö mál er varöa vinnulög-
gjöf, jafnréttislög og Evrópulöggjöf. Hún
hefur afar víötæka reynslu af launamis-
réttismálum og hefur rekið um þúsund
slfk mál fyrir dómstólum í heimalandi
sínu. í erindi sínu fjallaði hún um meg-
inregluna um jöfn laun fyrir
jafnverömæt störf og um
aðferðir til aö minnka
launabilið milli kvenna og
karla. Reglan er hluti af
Rómarsáttmálanum, sem
er einskonar stjórnarskrá
Evrópusambandsins, og
jafnframt er hana að finna
í 69. gr. samningsins um
evrópska efnahagssvæð-
iö. Þaö má því segja aö samningurinn
hafi að geyma ágætis tæki í baráttunni
gegn kynbundnu launamisrétti. Bever-
ley kom einnig inn á starfsmat sem leiö
til að endurmeta heföbundin kvenna-
störf og rjúfa þá kyrrstööu í launamál-
um sem þar rikir. Starfsmat hefur einn-
ig reynst nauösynleg aðgerö til aö
skera úr um þaö fyrir dómstólum hvaö
séu jafnverðmæt störf, en meö því móti
er hægt aö bera saman ólík störf og
jafnvel ólíka menntun. í máli sínu rakti
hún einnig nokkur mikilvæg prófmál
sem hafa komiö til kasta Evrópudóm-
stólsins en á þeim vettvangi hefur veriö
tekin grundvallarafstaða í mikilvægum
ágreiningsmálum er varða kjör kvenna
og karla á vinnumarkaði. Þessi mál
munu hafa fordæmisgildi í dómsmálum
hér á landi.
Síöar um daginn átti Beverley Jones
fund meö nokkrum aðilum sem fást við
fæðingarorlofsmál, en í júní mun hún
flytja prófmál fyrir Evrópudómstólnum
þar sem tekist er á um fæðingarorlof og
réttindi launafólks í þeim efnum. Þeir
sem hafa áhuga á að kynna sér nánar
þessi mál geta keypt Ijósrit af erindi
Beverley Jones á Skrifstofu jafnréttis-
mála.
RH
Kirkjan í góðum málum
Fyrir nokkrum vikum barst Skrifstofu
jafnréttismála Árbók kirkjunnar en þar
greinir frá starfsemi íslensku þjóökirkj-
unnar fyrir áriö 1993. Þar kennir ýmissa
grasa og meö jafnréttisgleraugun á nef-
inu las undirrituð af miklum áhuga kafla
sem heitir Stjórnir og starfsnefndir.
Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla
íslands hefur hlutur kvenna sem braut-
skráðra nemenda guöfræðideildar verið
yfir 30% allt frá árinu 1987. Því hefur
veriö haldiö fram aö þegar þaö kyniö
sem hefur veriö í minnihluta í viökom-
andi starfsgrein nái 30% hlutfalli, megi
búast viö breytingum á heföbundnum
viöhorfum til og jafnvel inntaki starfans.
Ef þessi fullyröing er rétt ættu menn aö
hafa oröið varir viö breytingar innan
kirkjunnar og meöal starfsmanna henn-
ar. Það hafa margir gert og fylgst af
áhuga með stofnun og viðgangi
Kvennakirkjunnar. Fyrir ári fullvissaði
séra Auöur Eir lesendur 19. júní um að
aðstandendur kvennakirkjunnar væru
allar innan þjóðkirkjunnar og ætluöu aö
vera þaö. Þær vildu vinna aö framgangi
kvennaguðfræðinnar og boðskapar
hennar innan þjóðkirkjunnar og á þann
hátt gæta þess að straumar kvenna-
hreyfingarinnar, og þá um leiö konur,
héldust innan þjóökirkjunnar.
Þaö skal tekið fram aö í stjórnum og
starfsnefndum kirkjunnar sitja ekki ein-
ungis starfsmenn. Þar eru leikmenn
töluvert fyrirferöarmiklir svo og einstakl-
ingar sem eru þar vegna starfs síns.
Samkvæmt upplýsingum Árbókarinnar
eru 218 einstaklingar í stjórnum og
starfsnefndum kirkjunnar. Þaö skal tek-
iö fram aö einhverjir geta verið marg-
taldir vegna þess aö þeir eru í fleiri en
einni starfsnefnd eða stjórn. Þar af eru
62 konur og 156 karlar í 42 nefndum
og stjórnum. Hlutur kvenna er því
28,4% sem er töluvert hærra en verald-
leg stjórnvöld geta státaö sig af. í 8
nefndum gegna konur formennsku eöa
í tæplega fjóröungi þeirra.
í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar-
innar um aðgerðir til aö ná fram jafn-
rétti kynjanna og samþykkt var á vor-
þingi 1993 kemur fram aö dómsmála-
ráðuneytiö setur sér aö beina þeim
tilmælum til biskupsstofu aö staöa
kvenna innan kirkjunnar veröi skoöuö
sérstaklega og einkum horft til hlutfalls
þeirra í nefndum og ráöum innan kirkj-
unnar. Þessi einfalda talning úr Árbók
kirkjunnar bendir til aö staöa þessara
mála sé nokkuð góð og ber aö fagna
því. S.T.
26