Sameiningin - 01.06.1886, Page 8
—56—
§ 13. Hver lúterskr söfnuör íslendinga í Vestrheimi, sem sam-
þykkir kirkjufélagslög þessi a lögmætum safnaðarfundi og sein
svo skýrir formanni fólagsins skrLflegft frá því, er með því reglu-
lega genginn í kirkjufélagið.
«<«----►- — 'it»ii ——< )»»
LEXÍUR FYRIR SUNNUDAGSSRÖLANN.
——----------
ANNAR ÁRSFJÓRÐUNGR 1886.
Sunnud. 4. Apr.: „Orðið varð hold“........(Jóh. 1, 1-18).
---- 11. Apr.: Fyrstu lærisveinarnir... .(Jóh. 1, 35-52).
---- 1.8. Apr.: Fyrsta kraftaverkið.........(Jóh. 2,1-11).
---- 25. Apr.: Jesús og Nikodemus..........(Jóh. 3,1-18).
---- 2. Maí : Jesús við brunninn..........(Jóh. 4, 5-26).
---- 9. Maí : Sáning og uppskera.....(Jóh. 4,27-42).
---- 16. Maí : Sonr konungsmannsins.. ..(Jóh. 4,43-54).
---- 23. Maí : Jesús við Betesda-laug......(Jóh. 5, 5-18).
---- 30. Maí : Jesús mettar 5000 manns... .(Jóh. 6, 1-21).
---- 6. Júní: Jesús er lífsins brauðið... .(Jóh. 6, 22-40).
---- 13. Júní:Jesús er Kristr................(Jóh. 7, 37-52).
---- 20. Júní: Jesús og Abraham(Jóh. 8, 31-38 og 44-59).
---- 27. Júní: Yfirlit.
LEXÍURNAR FYRIR LÍFIÐ.
Frásagan um mettan hinna fimm þúsunda í eyðibyggðinni
í Perea austan Genesaret-vatns andspænis Kapernaum og um
Jesúm ganganda á vatninu er 9. lexía ársfjórðungsins. jiegar
Jesús fór yfir um vatnið frá Galílea, þá fylgdi honum fjöldi
fólks á landi, meðfram norðrströnd vatnsins, og þetta fólk var
jafnvel komið á staðinn, þar sem bátr hans lenti, á undan hon-
um (sbr. Matt. 14, 13 og næstu vers, Mark. 6, 32 o. n. v., Lúk.
9, 10 o. n. v., þar sem frá sama kraftaverkinu er sagt). það, sem
kom fólki þessu á stað á eftir Jesú, voru teiknin, sem hann
gjörði á mönnum í líkamlegu tilliti. Ef allir áhangendr frels-
arans ætti þess vísa von að losna við allt jarðneskt böl og
jarðneskan skort, að eignast það, er hverjum þætti girnilegast af
þessa heims gœðum, þá myndi menn ekki lengi hugsa sig um að
vera með honum, þá myndi ekki þurfa yfir því að kvarta, að
fólk fengist ekki til að ganga í kristinn söfnuð. En sá, sem