Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1886, Page 8

Sameiningin - 01.12.1886, Page 8
—152- kirkju í Litlu-Asíu, þá er Páls postula missti viS, og vitran hans er stýluö til hinna 7 þar lendu aðalborga-safnaða, sem upp eru taldir í 9. lexíukaflanum. þó að stórmikið sé óskiljanlegt í Op- inberunarbókinni, og þó að það sé hreinn og beinn barnaskapr að ætla sér að geta sagt, hvað hvert einstakt atriði í vitran þess ari eigi að þýða, þá liggja þó óteljandi lexíur fyrir lífið opnar fyrir oss einmitt í þessari myrku leyndardómabók. I kaflanum, sem er 9. lexían, úr 1. kapítulanum er t. a. m. það ómissandi hugvekja, þar sem í 6. versinu er tekið fram, að frelsarinn haíi gjört kristna menn að kennimönnum guðs. Allir kristnir menn eru kallaðir til að boða lærdóm drottins um synd og náð með lífi sínu og daglegu tali. Ekki að eins þeir, sem sér- staklega eru til þess settir að prédika guðs orð opinberlega á safnaðarsamkomum, eiga að breiða kristindóminn út frá sér- Allir kristnir menn eiga að gjöra það, og auðvitað kenna þeir allir eitthvað. það getr hver maðr með kristnu nafni tekið til sín það, sem vort gamla og góða sálmaskáld segir : „þú guðs kennimann, þenk um það: þar mun um síðir grennslazt að, hvernig og hvað hér kenndir.“ Hvað kennir þú ?—það er lexía fyrir lífið, þegar sagt er : „Sjá; hann kemr“, og svo þar því við bœtt, að hvert auga muni sjá hann, eins þeir, er hann gegn um stungu, og enn fremr, að menn muni skelfast. það er dórnr í vændum, og sú vissa ætti þó að fækka spjótstungunum, sem kristnir menn gefa hver öðrum og þar með drottni himnanna.—það er lexía fyrir lífið, þegar minnzt er á 7 ljósastikur í samhandi við hina 7 söfnuði, og enn fremr 7 stjörnur í hendi þess, er sást á meðal ljósastiknanna. Hvar sem kristinn söfnuðr er, þar sem orði drottins er á lofti hald- ið, þar er þó himneskt ljós sýnilegt, þó annars sé koldimm nótt synda og sorga. það er kirkjan hin kristilega, sem heldr uppi ljósinu, hinu eina ljósi, er lýsir í gegn um dauðamyrkr- ið. Ef kirkjan fellr, þá er það ljós slökkt. Hvað á að lýsa liinni komandi kynslóð þjóðar vorrar, ef allir söfnuðir vorir yrði niðr brotnir ? Næsti lexíukafli, -hinn 10., er 5. kapítuli Opinberunarbókar- innar allr. Jóhannes sá himininn opinn og guð í dýrðarhásæti sínu. Frá því er sagt í 4. kap. Svo tekr lexía vor við, er seg-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.