Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1886, Page 15

Sameiningin - 01.12.1886, Page 15
159— —Prestaskóli Anti-Missourimanna norsku synódunnar í North- field, Minn., byrjaði í iniSjum September. Yið það er enn meira djúp staðfest en áðr miili hinna tveggja andstœðu flokka þess kirkjufélags. —Bretland hið mikla hefir yfir 12 þúsundir bindindisfélaga fyrir unglinga. Tala unglinganna í öllum þessum félögum er hálf önnur milíón. —Bindindislýðr Rússlands sendi fyrir tveim árum auðmjúka beiðni til keisarans um að mega halda opinbera fundi. Sú bœn er nú loks heyrð. —Axel Gustafson, sœnskr maðr, sem er orðinn frægr fyrir það, sem hann hefir ritað um og starfað fyrir bindindi í Svíþjóð, hefir fyrir skömmu ferðazt til þessa lands og meðal annars komið fram á stórfundi bindindismanna í Hamilton, Ontario, í síðast liðnum Ágústmánuði. Hann hefir sagt, að heima í sínu landi hafi áfengir drykkir fyrst verið til búnir á prestsetrunum. að brennivín sé þar einatt kallað „kirkjudrykkr“, og að brenni- vínsdrykkjan eigi sína harðsnúnustu talsmenn meðal prestanna, Nýlega ritaði líka einn pre.str í Norvegi bœkling, þar sem hann reynir að sanna, að bindindi sé synd. NÝJAR BŒKR „Almenn kirkjusaga frá upphafi kristninnar til vorra tíma“ eftir séra Heiga Hálfdanarson, for- stöðumann prestaskólans í Reykjavík, er verk, sem ætti að fá útbreiðslu meðal kirkjulega hugsánda fólks af þjóð vorri hér í Aineríku eigi síðr en heima á Islandi. Barátta kirkjunnar fyr- ir sannindum trúar vorrar, sem rit þetta auðvitað hljóðar um> þarf endilega að verða sem flestum kunn í frjálsum og sjálf- stjórnandi söfnuðum. Næst þekking á sjálfri ritningunni er þekking á sögu kirkjunnar kristnum almenningi mest áríðandi. Á undan þessari kirkjusögu séra Helga, sem er vandað rit að öllum frágangi og all-umfangsmikið, er eiginlega ekkert sams kyns til á íslenzkri tungu, nema et' telja skyldi hið litla safn af kirkjusögulegum atburðum aftan við Horsters „Ágrip af historíum heilagrar ritningar“, er nær til ársins 1837, svo önnur eins bók og þessi kirkjusaga séra Helga er nokkuð alveg nýtt í íslenzkum bókmenntum. Árið 1883 kom út fyrsta heítið af riti þessu, en annað heftið, sem oss er nýlega sent af hinum heiðraða höfundi, í fyrra, hvort um sig 10 arkir í 8 bl. broti>

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.