Fréttablaðið - 06.12.2010, Page 2

Fréttablaðið - 06.12.2010, Page 2
2 6. desember 2010 MÁNUDAGUR LÖGREGLA Maður, sem var með hlað- inn riffil og fíkniefni, var handtek- inn á skemmtistað í Reykjavík um helgina. Á þriðja tímanum aðfaranótt sunnudags barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um að sést hefði til manns með byssu á skemmtistað í miðborginni. Maður- inn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Vitni gátu þó gefið greinargóða lýsingu á manninum og hóf lögregla þegar leit að honum. Um klukkustund síðar handtók lög- regla manninn inni á skemmtistað og í ljós kom að hann var með hlað- inn riffil meðferðis sem og nokk- urt magn skotfæra. Einnig fundust á manninum fíkniefni sem ætla má að hann hafi ætlað að selja. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði hann ekki hleypt af skoti og gekk greiðlega að handtaka mann- inn. Hann veitti ekki mótspyrnu og beitti ekki skotvopninu við handtök- una. Maðurinn var færður í fanga- geymslur um nóttina og var yfir- heyrður í gær. - rat Lögregla handtók vopnaðan mann á skemmtistað í Reykjavík: Með hlaðinn riffil og eiturlyf LÖGREGLAN VIÐ STÖRF Aðfaranótt sunnudags handtók lögreglan vopnaðan mann inni á skemmtistað í Reykjavik. Jóel, er nýja platan bara eitt- hvert jarm? „Nei, ég ber jarm mitt í hljóði.“ Saxófónleikarinn Jóel Pálsson tileinkar íslensku sauðkindinni tvö lög á nýrri sólóplötu sinni, Horn. Jóel rekur jafnframt fyrirtækið Farmers market sem vinnur með íslenska ull í fatnað. SAMFÉLAGSMÁL Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í gær verðlaun í ratleik Forvarna- dagsins 2010 við athöfn á Bessa- stöðum. Verðlaunahafarnir í ár koma frá Árskóla á Sauðárkróki, Flúðaskóla á Flúðum og Valla- skóla á Selfossi. Bandalag íslenskra skáta, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélag Íslands standa að Forvarnadeg- inum en markmið dagsins er að efla forvarnastarf í skólum og hvetja unglinga til að draga sem lengst að neyta áfengis og ann- arra fíkniefna. - rat Forvarnadagurinn 2010: Verðlaun á Bessastöðum EFNAHAGSMÁL Hagsmunasam- tök heimilanna eru ekki aðili að viljayfirlýsingu stjórnvalda um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna sem tilkynnt var um 3. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn samtakanna hefur sent frá sér. Í ályktuninni ítreka samtökin einnig kröfur sínar um almenna leiðréttingu lána og fordæma þá stefnu stjórnvalda að ætla sér ekki að grípa til frekari aðgerða. Það beri í besta falli vott um alvarlegt vanmat á stöðunni, í versta falli hafi ríkisstjórnin gefist upp og verði þá að víkja. - rat Fordæma stefnu stjórnvalda: Stjórnin víki í versta falli LÖGREGLA Árekstur varð á gatna- mótum Miðhúsabrautar og Mýr- arvegar á Akureyri í gærmorgun vegna hálku. Engin meiðsl urðu á fólki en báðir bílarnir eru ónýtir. Þá varð annað óhapp sem rekja má til hálkunnar í gær á Akur- eyri en ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Hlíðarbraut með þeim afleiðingum að hann lenti á ljósastaur. Ökumaður slapp með skrekkinn en bæði bíllinn og ljósastaurinn skemmdust mikið. Á Sandsvegi við Húsavík missti ökumaður stjórn á jeppa vegna hálku. Bíllinn valt en engin slys urðu á fólki. - rat Umferðaróhöpp vegna hálku: Ók bifreið á ljósastaur en slapp ómeiddur STJÓRNMÁL Samfylkingin bað íslensku þjóðina afsökunar á mis- tökum flokksins í aðdraganda hrunsins á flokksstjórnarfundi á laugardag. Flokkurinn segist við- urkenna ábyrgð sína og heita því að „hlusta með opnum hug á gagn- rýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins“ til að koma í veg fyrir að mistökin endurtaki sig. Álykt- un þess efnis var samþykkt á fund- inum. Meginefni fundarins var umfjöll- un um niðurstöður umbótanefndar flokksins, sem var skipuð í apríl. Skýrslu nefndarinnar var skipt niður í sex hluta og eru tillögur að úrbótum við hvern hluta. Komst nefndin að þeirri nið- urstöðu að flokkurinn hafi verið veikari aðili samstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn. Andvaraleysi og síðar afneitun hafi því einkennt afstöðu flokksins í aðdraganda hrunsins. Nefndin segir að innra starf Samfylkingarinn- ar sé veikt og standi ekki undir væntingum flokks- manna. Flokkurinn hafi ekki tekist á við ágrein- ingsmál með markviss- um og öguðum hætti. Þá séu aðildarfélög flokksins ekki nógu öflugar eining- ar og ekki nýttar sem skyldi. Lítið sé leitað til þeirra. F lokkurinn gætti ekki nægilega að vali á framboðs- lista þannig að frambjóðend- ur vinni ekki gegn hver öðrum og hagsmunum flokks- ins, að mati nefndarinnar. Þá hafi Samfylkingin gert alvarleg mis- tök með því að leyfa þá þróun að kostnaðarsöm kosningabarátta væri nauðsynleg. Flokkurinn og frambjóðendur hafi þegið styrki sem séu í mótsögn við reglu stjórnmála- flokka um að forðast hagsmuna- tengsl sem geti rýrt trúverðug- leika þeirra. Þá segir í niðurstöðum umbóta- nefndarinnar að flokknum hafi ekki tekist að losa um hefðir sem stjórni ráðherravali, en það byggi á kjördæmasjónarmiðum. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segist Samfylkingin viðurkenna ábyrgð sína og heit- ir því að hlusta með opnum hug á gagnrýni og takast á við umbætur til að koma í veg fyrir að mistökin endurtaki sig. Samfylkingin ætlar að efna til funda um allt land á næstu vikum þar sem fjallað verður um niður- stöður og tillögur nefndar- innar. Stefnt er að því að tillögur um áþreifanleg- ar aðgerðir verði lagðar fram fyrir næsta lands- fund flokksins, að því er segir í ályktuninni. thorunn@frettabladid.is Samfylking biður þjóðina afsökunar Samfylkingin viðurkennir ábyrgð sína í aðdraganda hrunsins og biðst afsökun- ar. Umbótanefnd gagnrýnir andvaraleysi og afneitun í samstarfi við Sjálfstæð- isflokkinn. Voru gerendur en ekki fórnarlömb, segir formaðurinn. Ekki fórnarlömb óheillaþróunar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar telur að nefndinni „hafi tekist vel til og skili allt í senn uppbyggjandi og gagnrýninni niðurstöðu“. Margar athyglisverðar og framsýnar tillögur til úrbóta á vinnubrögðum og flokksstarfi komi fram í skýrslunni. Hún segir Samfylkinguna ekki hafa verið fórnarlamb óheillaþróunar fyrir hrun. „Við vorum gerendur sem þátttakendur í ríkisstjórn og meirihluta- samstarfi á Alþingi og þegar litið er í baksýnisspegilinn blasir við að við hefðum getað gert mun betur,” sagði Jóhanna. Hún sagði jafnframt mikil- vægt að þjóðin væri beðin afsökunar á mistökum flokksins, enda hafi þau reynst afdrifarík. Afsökunarbeiðnin ætti ekki að koma frá henni eða öðrum einstaka forystumönnum heldur flokknum í heild. Dagur B. Eggertsson varaformaður tók í sama streng í ræðu sinni og sagði ekki hægt að einskorða ábyrgðina við fáeina einstaklinga sem hafi verið í eldlínunni í hruninu. DAGUR B. EGGERTSSON JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR EGYPTALAND Þýsk kona lést eftir að hákarl beit hana þar sem hún var að kafa í Rauða hafinu við strend- ur Egyptalands. Þetta kemur fram á fréttavef BBC en fyrr í vikunni höfðu hákarlar sært fjóra á sömu slóðum. Tveir hákarlar voru þá veiddir á svæðinu og lýstu yfirvöld strendurnar öruggar. Strandsvæðinu, Sharm el- Sheikh, hefur nú aftur verið lokað og leita sjávarlíffræðingar skýringa á endurteknum árásum hákarla á einni vinsælustu ferða- mannaströnd Egyptalands. - rat Hákarl banar ferðamanni: Hákarl banar ferðamanni STJÓRNMÁL Stjórnvöld eru í meg- inatriðum tilbúin með svar til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave-málsins. Frestur til að skila svarinu rennur út á morgun. Stjórnvöld hafa ekki óskað eftir frekari frestun. Drög að nýju samkomulagi um Icesave hafa verið kynnt þing- flokkum stjórnarandstöðunn- ar, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 um helgina. Samkvæmt þeim kynnti Lárus Blöndal, full- trúi stjórnarandstöðunnar í samn- inganefnd Íslands, framvindu málsins fyrir flokkunum. Enn standa nokkur atriði út af borðinu í samningavið- ræðunum og er unnið að því að fækka þeim þessa dagana. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 eru með- altalsvextir 2,78 prósent í nýju drögunum. Í upphaflegu samn- ingunum voru þeir 5,5 prósent. Drögin hafa verið kynnt fyrir Samtökum atvinnulífsins og forystumönnum Landsvirkjun- ar meðal annarra. Forystumenn úr atvinnulífinu hafi því verið fengnir til liðs við fjármálaráðu- neytið til að þrýsta á þingmenn stjórnarandstöðunnar að styðja samningsdrögin. Málið fer ekki fyrir Alþingi fyrr en vissa er um að mikill meirihluti þingmanna styðji það. Þingmenn stjórnar- andstöðunnar vilja hins vegar sjá lokaniðurstöðu áður en ákvörðun er tekin um stuðning. - þeb Nýtt samkomulag og svar til Eftirlitsstofnunar EFTA tilbúið í meginatriðum: Ný Icesave-drög verið kynnt LÁRUS L. BLÖNDAL DÓMSMÁL Húsgagnafyrirtæki hefur verið sýknað af rúmlega hálfrar milljóna króna skaða- bótakröfu konu sem datt af kolli, svonefndum „gíraffa“, sem hún hafði keypt hjá fyrirtækinu. Konan steig upp á kollinn til að ná tilteknum húsbúnaði ofar- lega í eldhússkáp. Hún sagði eina löppina hafa bognað við þetta þannig að hún hafi fallið í gólfið. Við það úlnliðsbrotnaði hún og þurfti að vera í gifsspelku í sex vikur. Aðð fengnu áliti verkfræðings á álagsþoli „gíraffans“ taldi dóm- urinn ósannað að kollurinn hafi verið með galla sem leiða ætti til bótaskyldu fyrirtækisins. - jss Tapaði skaðabótamáli: „Gíraffinn“ var ekki gallaður Ógnaði fólki með hnífi Lögreglan handtók mann í Hafnarfirði um helgina sem hafði ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var færður í fangageymslur og yfirheyrður en ekki fengust frekari upplýsingar um málið. LÖGREGLUFRÉTTIR FORSETI ÍSLANDS Ólafur Ragnar Gríms- son afhenti í gær verðlaun fyrir ratleik. SPURNING DAGSINS ®

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.