Fréttablaðið - 06.12.2010, Qupperneq 14
14 6. desember 2010 MÁNUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Í umræðum fyrir borgarstjórnarkosning-ar sl. vor var það almennt viðhorf að vel
hefði verið haldið á fjármálum Reykjavík-
urborgar kjörtímabilið 2006-10 og að staða
borgarsjóðs væri góð. Umræður snerust
því öðru fremur um hvernig tryggja ætti
áframhaldandi góða fjárhagsstöðu. Nú er
lögleyft hámarksútsvar 13,28% af launa-
tekjum en á síðasta kjörtímabili var sú
stefna mörkuð undir forystu sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn að miða ekki við það
hámark heldur 13,03%.
Í því sambandi voru frambjóðendur oft
spurðir um það í fjölmiðlum og á kosn-
ingafundum sl. vor hvort nauðsynlegt yrði
að hækka útsvar og aðrar álögur á Reyk-
víkinga á nýju kjörtímabili.
Athyglisvert er að sjá hvernig oddvit-
ar stjórnmálaflokkanna svöruðu þessum
spurningum í kosningabaráttunni.
•Sjálfstæðisflokkurinn hvikaði ekki frá
þeirri stefnu að útsvarsprósentan skyldi
ekki hækkuð. Flokkurinn fékk fimm borg-
arfulltrúa kjörna.
•Vinstri græn hvikuðu ekki frá þeirri
stefnu sinni að útsvarsprósentan skyldi
ætíð vera í hámarki. Framboðið kom
einum borgarfulltrúa að.
•Samfylkingin svaraði út og suður og
þar með var ljóst að flokkurinn stæði
við fyrri stefnu um að útsvarsprósentan
skyldi hækkuð. Flokkurinn fékk þrjá borg-
arfulltrúa.
•Besti flokkurinn lofaði því að hækka
ekki útsvarsprósentuna og oddviti hans,
Jón Gnarr, bætti um betur og var eina
borgarstjóraefnið, sem sagði vafninga-
laust að hann vildi beinlínis lækka hana.
Flokkurinn fékk sex borgarfulltrúa kjörna
og var ótvíræður sigurvegari kosning-
anna.
Vilji kjósenda var skýr: Þeir flokk-
ar, sem vildu hækka útsvarið, fengu 26%
fylgi og fjóra borgarfulltrúa kjörna. Þeir
flokkar, sem vildu ekki hækka útsvarið
fengu 68% fylgi og ellefu fulltrúa kjörna.
Það tók borgarfulltrúa Samfylkingar-
innar aðeins nokkra mánuði að heilaþvo
óreynt borgarstjórnarlið Besta flokksins
og sannfæra það um að bráðnauðsynlegt
væri að færa meira fé frá fólkinu til Kerf-
isins. Meirihluti þessara flokka hefur nú
samþykkt hækkun útsvarsprósentunnar
og þannig brotið vilja mikils meirihluta
Reykvíkinga á bak aftur. Vinstri meiri-
hlutinn í Reykjavík lítur greinilega á
skattgreiðendur sem auðlind, er nýta eigi
til hins ýtrasta.
Borgarbúar vilja ekki hærri skatta
Borgarmál
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
S
kýrslur bandaríska sendiráðsins á Íslandi, sem Wikileaks
komst yfir og íslenzkir fjölmiðlar hafa sagt frá undanfarna
daga, eru um margt áhugaverðar þótt þar séu ekki upp-
ljóstranir sem skekja samfélagið. Skýrslurnar veita fyrst
og fremst innsýn í hvernig utanríkisþjónusta stórveldis
vinnur og á köflum er fróðlegt að skoða hvernig mat starfsmenn
sendiráðsins leggja á menn og málefni á Íslandi. Vinnubrögðin eru
ekki frábrugðin því sem gerist annars staðar; íslenzkir sendimenn
erlendis senda heim svipaðar skýrslur um stjórnmálaástand og sam-
ræður sínar við áhrifamenn í löndum þar sem þeir starfa.
Hins vegar eru þessi skrif ekki
ætluð fyrir almenningssjónir
fyrr en eftir einhverja áratugi.
Þess vegna er birting gagnanna
nú vandræðaleg fyrir bandarísk
stjórnvöld.
Þeir sem ræða við erlenda
sendimenn hljóta líka að hugsa
sinn gang, nú þegar orðið er
algengara en áður að slík gögn leki út. Rifja má upp þegar norsk-
ir fjölmiðlar birtu upplýsingar úr frásögn norska sendiherrans á
Íslandi af fundi með forseta Íslands með erlendum sendimönnum
skömmu eftir hrun, þar sem hann dembdi sér yfir Breta og ýjaði
að því að réttast væri að bjóða Rússum herstöð á Íslandi. Líklega
er gott að hafa í huga það sem Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, sagði í Ríkisútvarpinu um helgina, að í samtölum við
erlenda sendimenn eigi menn ekki að segja meira en þeir treysta
sér til að standa við opinberlega.
Í gögnunum eru hins vegar líka upplýsingar, sem íslenzk stjórn-
völd hljóta að þurfa að bregðast við. Þar ber hæst grunsemdir banda-
rískra sendimanna um að Kínverjar stundi iðnnjósnir hér á landi,
sem Fréttablaðið sagði frá á laugardaginn. Í skýrslum þeirra er
meðal annars fullyrt að iðnnjósnirnar beinist að fyrirtækjum á sviði
erfðagreiningar og læknisfræðilegra rannsókna.
Þetta kemur út af fyrir sig ekki á óvart. Það er á margra vitorði
að Kínverjar stunda umfangsmiklar iðnnjósnir í vestrænum ríkjum
og heilu iðngreinarnar í Kína byggjast á stuldi á viðskiptaleyndar-
málum. Íslenzk fyrirtæki eru í fararbroddi á heimsvísu á sumum
sviðum, til dæmis Íslenzk erfðagreining. Það þarf því heldur ekki að
koma á óvart að Kínverjar sýni slíku fyrirtæki áhuga, þótt auðvitað
sé ekkert sannað um að þeir hafi njósnað um það.
Sú spurning vaknar eðlilega hvað íslenzk stjórnvöld ætli að gera
í málinu og hvernig þau hyggist vernda hagsmuni íslenzkra fyrir-
tækja. Krafa Íslenzkrar erfðagreiningar um athugun lögreglu er
sjálfsögð og eðlileg. En hvernig er lögreglan í stakk búin að fylgjast
með útlendingum sem kunna að vilja stela leyndarmálum íslenzkra
fyrirtækja? Hvaða heimildir hefur hún til eftirlits með þeim?
Svör þeirra tveggja ráðherra sem hafa tjáð sig um málið, þeirra
Ögmundar Jónassonar og Össurar Skarphéðinssonar, benda til að
þeir taki það ekki mjög alvarlega. Kannski er það til merkis um að
það sé rétt mat hjá bandarískum sendimönnum að Íslendingar séu
fremur áhugalausir um að taka ábyrgð á eigin öryggi og vörnum.
Grunsemdir um iðnnjósnir á að taka alvarlega.
Hver verða
viðbrögðin?
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Áttu pening?
Bjarna Benediktssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, finnst lítið koma
til fréttaflutnings af fyrirspurn þeirri
um farareyri fyrir utanríkismálanefnd
Alþingi fyrir ferð vestur um haf sem
hann sendi bandaríska sendiráð-
inu í nóvember í fyrra og lekasíðan
Wikileaks hefur undir höndum. Bjarni
segir á Facebook-síðu sinni markmið
ferðarinnar tvíþætt, að koma á fram-
færi miklum vonbrigðum
og gagnrýni vegna áhrifa
Breta og Hollendinga á
Alþjóðagjaldeyrssjóðinn í
tengslum við endurskoðun
efnahags áætlunar sjóðs-
ins og Íslands og að efla
samskipti Bandaríkjanna
og Íslands eftir brotthvarf varnarliðs-
ins.
Skjótum sendiboðann
Bjarna finnst óskiljanlegt hvernig gera
megi fréttamat um beiðni um farareyri
utanríkismálanefndar, sem hafi
takmarkaðar fjárheimildir til utanferða.
„Getur verið að samskipti Íslands og
Bandaríkjanna séu komin á þetta stig,
eða hefur málið ef til vill bara
með viðkomandi starfsmann
sendiráðsins að gera?“ spyr hann.
Ég líka!
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, prófessor
í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands,
hefur verið í sambandi við bandaríska
sendiráðið. Hannes segir frá því í pistli
sínum á Pressunni að hann hafi snætt
hádegisverð með Carol van Voorst
sendiherra og kvöldverð í tvígang með
Neil Klopfenstein, stjórnmálafulltrúa
sendiráðsins. Bandarískt hvítvín hafi
verið reitt fram með hádegisverði
Voorst eitt skiptið, en hann því miður
ekki getað drukkið nema eitt glas
því hann hafi þurft að sinna brýnum
erindum síðdegis. „Fróðlegt væri að
lesa skýrslu um samtalið, ef skrifuð
hefur verið,“ skrifar Hannes um
hádegisverðinn og bætir við að
sömuleiðis væri fróðlegt að lesa
um kvöldverðina með Klopfen-
stein. Hvorugt hefur hann séð á
prenti. jonab@frettabladid.is