Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1887, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.08.1887, Blaðsíða 4
að sjá svo um að ungmennin festist einmitt í sunnud. skólanum ineð fermingunni. það þarf að skoða fermingarspursmálið vand- Icga í öllum vorum söfnuðum, og þessi kirkjufélagsfundr vor ætti meðal annars að gefa almenningi safnaðanna sterka hvöt til að halda því á lofti.—Fjársamskot í sunnud.skólunum þeim sjálfum til styrktar liafa hvergi komizt á þar sem þau voru ekki í fyrra, og það er afsakanlegt fremr en flest annað, sök- um peningaleysis hjá almenningi út til sveita á þessum síðustu tímuin. Að því er prestmál kirkjufélagsins snertir, þá eru enn. í félaginu að eins þessir tveir prestar, sem voru í fyrra. En gjörð hefir þó á ári þessu verið tilraun til þess að bœta úr presta- skorti vorum. Fyrir tillögur uiínar sendu söfnuðurnir í Ar- gyle-nýlendunni hér vestr í fylkinu einum inikilsmetnum presti á íslandi, prófasti séra Magnúsi Andréssyni á Gilsbakkka, köllunarbréf um nýársleytið. Hafði hann getið þess í bréfi til mín, að hann væri eigi ófús á að koma hingað yfir um og starfa fyrir kirkju vora hér. Og því hvatti eg þessa söfnuði til að biðja hanu um að gjörast prestr sinn, og lofuðu þeir honum ákveðnum launurn. En því miðr voru ástœður hans svo, þá er hann við kornu köllunarbréfsins fór að virða þær vandlega fyrir sér, að hann sá sér eigi fœrt að rífa sig upp að heiman. —Að því er prestmál safnaðanna í Nýja íslandi snertir, sem ársfundrinn í fyrra út af áskoran til hans frá þeirn söfnuðum fói formanni á hendr, þá reit eg í fyrra suniar forstöðumanni prestaskólans í Reykjavík, séra Helga Hálfdanarsyni, og bað hann í mínu nafni og kirkjufélags vors að reyna tií að út- vega oss lieima á Islandi hœfan mann, helzt ungan og einhleyp- an, til þess að koma vestr og takast á hendr prestskap fyrir Ný-Islendinga gegn ákveðnum árslaunum, sem söfnuðir þeirra höfðu skuldbundið sig til að veita presti þeim, er þeim kynni að verða ráðinn. Síðar fól eg öðrum manni heima, séra Jens Pálssyni að Utskálum, þetta sama á hendr í sambandi við séra Helga. Og fékk eg frá þeim báðum loforð um að þeir skyldi í þessu efni gjöra það, sem þeim væri unnt, en þess var þó um leið getið, að naumast myndi á þessu ári nokkurt prestsefni að fá Ný-Islendingum til handa, og líklega ekki fyr en á næsta sumri, þá er þeir, sem þá eiga að ljúka sér af á prestaskólanum,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.