Sameiningin - 01.08.1887, Blaðsíða 7
—71
Hin standandi nefnd, sem í fyrra var kosin til yfir-
skoSunar grundvallarlaganna og fieira, leggr sitt álit fyrir fund-
inn.
Um k a u p íslenzkra guðsorðabdka, sem ársfundr-
inn í fyrra fól kirkjufélagstjórninni, er það að segja, að allar
þær bœkr, er söfnuðirnir höfðu fyrirbinn ákveðna tíma(lö. Agúst
síðast liðið sumar) tilkynnt mér að þeir vildi fá, voru pantað-
ar, og flestar, sem um var beðið frá Islandi, komu fyrir nýár,
og eru mi að mestu út gengnar, en borgun fyrir sumt af þeicn
kom seint. Hr. Árni Friðriksson hefir mest haft á hendi út-
býting þeirra. Biblíur og nýja testamenti, sem pantað var frá
biblíufélaginu brezka og erlenda í London, komu ekki fý-r
en rétt nýlega og eru fyrir ákveðið verð að fá hjá mér. Af
því að nálega ekkert var pantað af bókurn hjá oss frá söfnuðun-
um í Dakota, var alit það af bókum, er um var beðið, beinlín-
is sent hingað til Winnipeg.
Yiðvík jandi b i n d i n d i s m á 1 i n u, þá áttu embættismenn
safnaðanna samkvæmt ályktan síðasta ársfundar að gefa for-
mauni fyrir þennan ársfund skýrslu um árangrinn af bindind-
isstarfseminni innan safnaðanna bæði í sunnudagasskólunum og
utan þeirra. í spurningum þeim víðvíkjandi sunnudagsskólunum.
sem samkvæmt áðr sögðu er ætlazt til að formanni sé send svör
upp á við lok hvers ársfjórðungs, er ein um það, hvort nokkr-
ir sé þar inn ritaðir í bindindi og ];á hve margir. Hverju hef-
ir verið svarað upp á það sést í áðr nefndum skýrslu-ágripum
i „Sam“. Að öðru leyti hefir mér eigi verið send nein skýrsla
um það, hvernig þetta mál stendr í söfnuðunum, nema frá Frí-
kirkjusöfnuði, og er hún einnig ný-útkomin í „Sam“. það
eru tiltölulega mjög fáir í bindindi enn lijá oss, og ekki nærri
allir þeir, er á ársfundi í fyrra ályktuðu að unnið skyldi fyr-
ir málið. Hvernig eiga embættismenn safnaðanna að gangast
fyrir stofnan bindindis í sínum söfnuðum meðan þeir sjálfir eru
andstœðir bindindi, eða að minnsta kosti andstœðir því að
vera sjálfir í bindindi ?
Síðan í fyrra hefir sii b r e y t i n g orðið á safnaðaskip-
an í Pembina County í Hakota, að Tungársöfnuðr og Austr-
Sandhæðasöfnuðr, sem voru, liafa sameinazt, og þar við bœtzt
hópr fólks á svo kölluðum Yestr-Sandliæðum, er áðr stóð fyr-