Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1887, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.08.1887, Blaðsíða 17
—81— Nefndin, er út nefnd var í kirkjuagamálinu, lagSi fram álit sitt. Framsögumaðr Friðjón Friðriksson las það upp á þessa leið: „Tillaga vor er sú, að söfnuðirnir í kirkjufélaginu taki inn í safnaðarlög sín svo látandi fyrirmæli um kirkjuaga : Brjóti einhver lög safnaðarins eða óvirði söfnuðinn með breytni sinni, skal safnaðarráðið áminna hann á bróðurlegan hátt, samkvæmt guðs orði; láti hinn kærði ekki skipast við ítrekaðar áminningar, skal málið lagt fyrir almennan safnaðar- fund; ef hann þá ekki lætr sér segjast við áminningar þess fund- ar, só hann rækr úr söfnuðinum, ef fimm sjöttu hlutar atlcvæðis- bærra safnaðarlima á fundinum finna hann sekan oo- jrreiða at- kvæði með útrekstri hans. Kannist hann við brotið og bœti ráð sitt, þá má þó aftr taka hann í söfnuðinn“. Fr. Friðriksson. þ. G. Jónsson. S. J. Jóhannnesson. Eftir ýmsar umroeður með og móti þessu máli stakk M. Pálsson upp á því, að í staðinn fyrir nefndarálitinu komi: „TV‘- Borið undir atkvæði og fellt með meira hluta atkvæða. Eftir nokkrar umrœður kom tillaga fram og var samþykkt um að umrœðum væri hætt í málinu. Yar frumvarpið þá borið undir atkvæði og fellt. En samt sem áðr lá kirkjuaga- málið enn fyrir fundinum. E. H. Bergmann gjörði þá uppástungu, að málinu væri frestað til næsta dags, og var það samþykkt. þá var tekið fyrir aukalagamálið. Samkvæmt fyrirspurn forseta ákvarðaði fundrinn með atkvæðagreiðslu, að grundvallarlaganefndin, sem kosiu var á síðasta kirkjufélagsfundi hefði enn þá ekki að öllu leyti af lokið ætlunarverki því, sem henni var á hendr falið, og álit- ist hún því enn þá standandi nefnd í þeim málum, sern hún ekki hefði enn leyst af hendi, og var aukalagamálinu því vísað til þeirrar nefndar. E. H. Bergmann stakk upp á: „Fundrinn þakki nefnd- inni fyrir störf þau, er hún hefir svo ágætlega leyst af hendi, með því að standa á fœtr.“ Samþykkt í einu hljóði. M. Pálsson stakk upp á því að 3 manna nefnd væri kos- in til að íhuga, hverjar breytingar á grundvallarlögunum væri nú þegar löggildar. Samþykkt. Forseti út nefndi þessa menn í nefnd: Vilhelm Pálsson, Jakob Líndal og Ólaf Ólafsson.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.