Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1887, Page 26

Sameiningin - 01.08.1887, Page 26
—90— 16. Hve margir flokkar (classes) í sd.skólanum ? 17. Hve langan tima stendr skólinn á hverjum sunnudegi ? 18. Hver hefir kennt á skólanum ? eða hverjir ? 19. HvaS hefir verið kennt á skólanum ? (biblíusaga, „kver- ið“ eða lexíur í sjálfri biblíunni). 20 Hve möra; alveg’ ólæs börn gengið á skólann ? o o o o 21. Hvað hefir þeim verið kennt ? 22. Hve mikil fjársamskot á sd.skólanum á þessu tímabili ? 23. Hve margir þeirra, er á skólanum voru við lok árs- fjórðungsins, reglulega inn ritaðir í bindindi ?“ Síðan stakk séra Jón Bjarnason upp á því, að þessar spurn- ingar væri samþykktar sem form til skýrslna um ástand sunnu- dagsskóla safnaðanna í kirkjufélaginu. Samþyklct í einu hljóði. M. Pálson stakk upp á því, að sunnudagsskólaspurning- arnar væri prentaðar á lausum eyðublöðum fyrir kennara þeirra. Samþykkt. Yilhelm Pálsson, framsögumaðr nefndarinnar í að yfir líta, hvað af breytingum á grundvallarlögum félagsins hafi þegar öðlazt lagagildi, lagði fram álit nefndarinnar á þessa leið: „Vér, sem neíndir vorum til að athuga, hverjar breytingar á grundvallarlögum kirkjufélagsins hafi á þessu kirkjuþingi náð lagagildi, álítum, aö það sé að eins breyting sú á 6. gr., er ákveör, að embættismenn kirkjufélagsins eigi setu á ársfundi/ V. Pálsson. Jakob Líndal. Ólafr Ólafsson. Samþykkt í einu hljóði. Næst var tekiö til umroeðu prentun á fundarreglum fé- lagsins. Séra Jón Bjarnason stakk upp á, að fundarreglurnar verði prentaðar á kostnað kirkjufélagsins sem sérstakt rit, er svo verði selt fyrir hœfilegt verð. Samþykkt. Eftir litlar umrœSur um þaS, á hvern hatt fundargjörningr þessi skyldi prentaðr, var með meira hluta atkvæða samþykkt, að hann skyldi prentaðr eins og hann kœmi staðfestr frá fund- armönnum orð fyrir orð í „Sameiningunnr1, að undan teknum fundarreglunum. þá voru lögð fram tilboð um, hvar næsta kirkjuþing sé haldið, frá Víkrsöfnuði, FríkirkjusöfnuSi, Pembinasöfnuði og Brœðrasöfnuði.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.