Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
FJÁRMÁL „Þetta er sanngjarn samn-
ingur,“ segir Lee C. Buchheit, for-
maður samninganefndar Íslands,
um ný samningsdrög í Icesave-
deilunni. Nýr samningur er mun
hagstæðari en sá sem felldur var í
þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars.
Allir sem Fréttablaðið ræddi við
í gærkvöldi eru sammála um að
samningsdrögin séu mun hagstæð-
ari en samningurinn sem var felld-
ur. Vaxtakjör hafa lækkað í þrjú
prósent úr 5,5 prósentum. Heildar-
kostnaður ríkisins er metinn á tæpa
50 milljarða á móti 162 milljörðum
samkvæmt fyrri samningi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
tekur samningnum þó með fyrir-
vara og leggur til að málinu verði
skotið til þjóðarinnar eins og fyrri
samningi. Óeðlilegt sé úr því sem
komið er að Alþingi eigi síðasta
orðið.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir samn-
inginn vissulega betri en þann fyrri.
Hins vegar þurfi að vega og meta
hvort þjóðin hafi hagsmuni af því að
ljúka málinu með samningum, þrátt
fyrir að engin lagaskylda hafi verið
til að greiða innstæðutryggingar.
Fyrsta vaxtagreiðslan, 26 millj-
arðar, verður greidd strax á næsta
ári, öðlist nýi Icesave-samningur-
inn gildi. Tuttugu milljarðar króna
koma frá Tryggingasjóði innstæðu-
eigenda. Sex milljarðar verða
greiddir úr ríkissjóði.
Ýmis lagaleg skilyrði breytast
frá fyrri samningi. Þyngst vegur að
úrlausn ágreiningsmála er flutt úr
lögsögu breskra dómstóla og undir
regluverk Alþjóðagerðardómstól-
inn í Haag. Fari svo að máli vegna
samninganna verði vísað til dómsins
er tryggt að Ísland á þar fulltrúa.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
hefur stofnað mál á hendur íslenska
ríkinu vegna Icesave-málsins. Ef
samningar takast ekki má búast
við að endi með málshöfðun fyrir
EFTA-dómstólnum. Ef niðurstaða
verður Íslandi í óhag gæti ríkið
verið skaðabótaskylt og EES-samn-
ingurinn verið í uppnámi, að mati
samninganefndar Íslands.
Lárus Blöndal hæstaréttar-
lögmaður, sem tilnefndur var af
stjórnar andstöðuflokkunum í samn-
inganefndina, segir að upplýsinga-
gjöf til stjórnarandstöðunnar hafi
verið góð allan tíman sem samn-
ingaviðræðurnar stóðu yfir. „Ég
tel að stjórnarandstaðan hafi haft
sömu upplýsingar og stjórnin,“ segir
Lárus.
Formenn stjórnarflokkanna vildu
ekki tjá sig um niðurstöðuna í gær.
- shá, sh / sjá síður 6 og 8
Föstudagur
skoðun 26
10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Söngnemendur í Listaskóla Mosfellsbæjar halda tónleika
á jólamarkaðnum í Kjarna í dag klukkan 17.30. Þeir munu
flytja sígild jólalög við undirleik Sigurjóns Alexanderssonar.
Jólamarkaðurinn verður opinn á föstudögum fram að jólum
en þar verður á boðstólum allt frá kínverskum silkislæðum
yfir í íslenskt handverk.
A rnþór Ásgrímsson er nýkrýndur bikarmeist-ari í Fitness. Hann þarf að hafa mikið fyrir því að koma sér í form fyrir keppni en undirbúningurinn skiptist í uppbyggingartímabil og niður-skurð. „Ég æfi tvisvar á dag og á uppbyggingartímabilinu borða ég fjögur til fimm þúsund kalorí-ur á hverjum degi. Niðurskurðar-tímabilið hefst um það bil 14 til 16 vikum fyrir mót en þá fer ég að draga úr hitaeiningafjöldanum. Ég borða engin kolvetni sex daga vikunnar en hef svo einn kolvetna-hleðsludag í hverri viku. Fjórum til fimm vikum fyrir mót fer ég svo í algert kolvetnasvelti. En gerir þetta líkamanum gott? „Ég borða hollan mat en vitanlega er álagið frekar mikið síðustu tværvikurnar fyrir k
hann góður próteingjafi. „Á niður-skurðartímabilinu borða ég aðal-lega kjúkling, nautakjöt, olíur, majones, hnetusmjör hll
ekki tíma til að sinna fjölskyldu, vinnu og æfingum. Það er því lítiðum kjúkli
Mataræði Arnþórs Ásgrímssonar er úthugsað og skilar honum góðum árangri.
Arnþór er nýkrýndur bikarmeistari í fitness. Í niðurskurðinum fyrir mót borðar hann 400 grömm af kjúklingi á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 Holta kjúklingabringa½ rauðlaukur 10 sveppir
1 lófi kasjúhnetur1 matskeið gróft hnetu-smjör (lífrænt) 1 matskeið olía
spínat blöð
krydd á kjúklinginn: ítölsk hvítlauksblanda og tandoori
Skerið kjúklinginn í
litla bita og eldið á pönnu upp úr olíunni. Saxið sveppi og rauð-lauk og bætið út á kjúklinginn. Slökkvið á hellunni og bætið hnetusmjörinu út á pönnuna. Leyfið því að bráðna saman við kjúklinginn og meðlætið. Hellið kasjú-hnetum yfir og berið
fram með spínatblöð-um. Þau má líka elda á pönnunni með hinu meðlætinu.
HNETUSMJÖRSKJÚKLINGURmeð spínati og kasjúhnetum FYRIR 1
Borðar kjúkling á hverjum degi
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan is H i
Verð 8.290 kr.Tilboð mánudaga-miðvikudaga 7.290 kr.
Jólahlaðborð
b d b
18. nóvem er - 30. esem erHið óviðjafnanlega jólahlaðborð Perlunnarer hafið. Það borgar sig að panta borðið þitt strax –enda eitt vinsælasta jólahlaðborð á landinu!
Skötu- og jólahlaðborð PerlunnarÞorláksmessa, í hádeginu
Nýárskvöldverður1. janúar 2011
Gefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!
Það borgar sig að panta skötuna snemma!
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 10. desember 2010
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
Frá Póllandi til Íslands
Pawel Bartoszek er meðal
fulltrúa á stjórnlagaþingi.
Æskan í Póllandi hefur
áhrif á viðhorf hans til
þjóðfélagsmála.
föstudagsviðtalið 24
veðrið í dag
10. desember 2010
290. tölublað 10. árgangur
Pabbi
Mamma
Afi
Amma
Jólabæklingur
Vodafone fylgir
með blaðinu
Ný smáréttabók eftir Nönnu Rögnvaldardóttur
Ótal hugmyndir fyrir matarboðin, saumaklúbbana og partíin
Fáðu vatn í munninn!
FÓLK Ólafur Elíasson verður ein
af stjörnum sérstakrar Ólympíu-
listahátíðar sem blásið verður til
í London árið
2012. Ólafur er
í góðum hópi
listamanna því
meðal þeirra
sem koma
fram eru Cate
Blanchett,
Damon Albarn
og Jude Law.
Listahátíð-
in verður sett
hinn 21. júní og er ætlað að
standa þar til Ólympíuleikum
fatlaðra verður slitið hinn 9.
september. Ekki liggur fyrir
hvaða verk Ólafur ætlar sér að
sýna við þetta tækifæri og má
gera ráð fyrir því að það eigi að
koma á óvart. - fgg / sjá síðu 70
Ólafur Elíasson sýnir í London:
Ein af stjörnum
Ólympíuhátíðar
Miklar vinsældir
Rithöfundurinn Þorgrímur
Þráinsson á tvær af mest
seldu bókum landsins.
fólk 56
VINDASAMT Í dag verða vestan
10-18 m/s. Skýjað og dregur úr
vætu vestan til eftir hádegi. Hiti á
bilinu 0-10 stig.
VEÐUR 4
6
6
7
6
5
Betri leikur en samt tap
Stelpurnar okkar sýndu
mikinn baráttuvilja gegn
Svartfellingum í gær.
sport 66
ÓLAFUR ELÍASSON
VIÐSKIPTI Nýtt fyrirtæki sem fram-
leiðir osta sem búnir eru til úr
mjólk utan greiðslumarkskerfisins
hefur tekið til starfa. Fyrirtæk-
ið heitir Kú og er fjölskyldufyrir-
tæki Ólafs M. Magnússonar. Hann
stýrði áður mjólkurvörufyrirtæk-
inu Mjólku.
Í viðtali við Ólaf í Fréttablaðinu
í dag kemur fram að fyrsta kastið
einbeiti fyrirtækið sér að fram-
leiðslu osta að franskri fyrirmynd.
Fyrstu tveimur ostunum verður
dreift í verslanir um helgina, hvít-
mygluostinum Ljúflingi og hvít-
og blámygluostinum Öðlingi.
Alls starfa sex manns að fram-
leiðslu ostanna, fjórir í verksmiðju
fyrirtækisins í Hafnarfirði og
tveir við mjólkurframleiðslu á
kúabúi fjölskyldu Ólafs í Kjós.
„Við köllum síðan til aukamanns-
kap þegar gera þarf átak í pökk-
un,“ segir Ólafur. - óká / sjá síðu 18
Framleiðir utan greiðslumarks:
Fyrstu ostarnir
frá Kú í búðir
SAMNINGSBROS Lee C. Buchheit, formaður íslensku Icesave-samninganefndarinnar, var brosmildur þegar hann kynnti nýjan
samning við Breta og Hollendinga í Iðnó í gærkvöldi. „Þetta er sanngjarn samningur,“ sagði Buchheit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kostnaður ríkisins
mest 50 milljarðar
Kostnaður ríkisins vegna Icesave lækkar um 110 milljarða frá fyrri samningi, að
mati samninganefndar Íslands. Vonir standa til að greiðslum verði lokið árið 2016.
Meðal -
vextir
á tíma-
bilinu 2009-2016, að teknu
tilliti til vaxtahlés og lækkunar
höfuðstóls. GREINARGERÐ
SAMNINGANEFNDAR
ÍSLANDS
2,64%