Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 57
FÖSTUDAGUR 10. desember 2010 5
Hin árlega jólaskemmtun Kram-
hússins verður haldin í Íslensku
óperunni á morgun.
Nemendur Kramhússins stíga á
svið annað kvöld í Íslensku óper-
unni og bjóða upp á alþjóðleg-
an menningarkokkteil undir for-
merkjum dansins. Þetta er í 27.
skiptið sem jólaskemmtun húss-
ins er haldin og lofar Þórunn
Ásdís Óskarsdóttir verkefnastjóri
Kramhússins, fjölbreyttri sýningu
þar sem mikið er í lagt. „Þetta
er tveggja tíma prógram með
vel hressu yfirbragði og óvænt-
um innkomum þar sem leynd-
ir hæfileikar úr íslenskum veru-
leika verða afhjúpaðir af hinum
íslensku hversdagsstjörnum.“
Boðið verður upp á afródans,
nútímadans, tangó, breikdans,
bollywood, magadans, hiphop,
balkan, bellybolly; leikfimishóp-
urinn „fimmfimmtán“ verður með
beitt atriði og Morgunmeyjarnar
svokölluðu verða með sitt óvænta
atriði.
Kynnir í ár er Kolbrún Hall-
dórsdóttir, en verkefnið ætti ekki
að vefjast fyrir henni þar sem hún
hefur haldið um stjórnartaumana
á jólaskemmtuninni öll hin 26 árin
sem hún hefur verið haldin. „Að
sumu leyti er þetta mjög hefð-
bundið en að öðru leyti er alltaf
eitthvað nýtt og ferskt. Við erum
mjög metnaðarfull en blessunar-
lega laus við alla fullkomnunar-
áráttu. Þetta er eiginlega svona
skemmtilega hressandi á aðvent-
unni, en um leið slakandi.“
Jólagleði Kramhússins hefst í
Óperunni á morgun klukkan 20.
Miðaverð er 1.800 krónur fyrir
fullorðna, en 1.000 krónur fyrir
12 og yngri. tryggvi@frettabladid.is
Dansandi jólagleði
Þórunn Ásdís Óskarsdóttir segir jólaskemmtun Kramhússins árvissan viðburð hjá
mörgum. FRETTABLADID/VALLI
„Við vonum að fólk gefi sér tíma
til að mæta á blokkflautupopp-
djass með þjóðlagablæ, svona rétt
fyrir jólin,“ segir Gísli Helgason
tónlistarmaður með meiru. Hann
er forsprakkinn í Föruneyti G.H.,
skemmtibandi sem stofnað var
fyrr á þessu ári og efnir til tón-
leika í félagsheimilinu Miðgarði í
Garði á morgun sem hefjast klukk-
an 16. Þeir falla inn í listahátíðina
Ferskir vindar í Garði sem sett
verður í dag. Hún byggist meðal
annars á því að fjölda listafólks,
bæði íslensku og erlendu, hefur
verið boðið að dvelja og vinna í
Garðinum næstu vikurnar.
„Markmiðið er að auðga and-
ann, segir Ásmundur Friðriksson
bæjarstjóri. „Listaveislan dreifir
ávöxtum sínum til samfélagsins
alls og vonandi njóta hennar sem
flestir,“ Ásmundur segir listafólkið
koma úr mörgum greinum og nefn-
ir hönnuði, tónlistarfólk, dansara,
myndlistarfólk, kvikmyndagerð-
arfólk, leikara og rithöfunda sem
dæmi um það. Forsetafrúin Dorrit
Moussaieff er verndari listaveisl-
unnar og Mireya Samper listakona
er meðal þeirra sem halda utan um
verkefnið.
Ásmundur bæjarstjóri á rætur
að rekja til Vestmannaeyja og það
eiga flestir liðsmenn Föruneytis
G. H. líka. Þó ekki gítarleikarinn,
Ársæll Másson en Gísli Helgason
segir hann hafa verið „ættleidd-
an“. „Það hefur komið til tals að
ættleiða Hilmar Sverrisson líka,
hann spilar stundum með okkur,
það hefur bara ekki komist í verk,“
segir Gísli glettnislega.
„Í bandinu eru ágætis spilar-
ar og við höfum gaman af þessu
sem við erum að gera,“ segir Gísli
og upplýsir að þetta verði fimmtu
tónleikar sveitarinnar. Þeir fyrstu
hafi verið á þjóðlagahátíðinni
Reykjavík Folkfestival í mars,
aðrir í Þjóðmenningarhúsinu á
menningarnótt í ágúst, þriðju á
Kaffi Rósenberg í október og þeir
fjórðu og bestu hingað til á Safna-
nótt í Eyjum í nóvember.
Föruneytið flytur eigin lög
ásamt ýmsu öðru efni sem liðs-
mönnum þess líkar og hugnast
svo sem Bítlalög. Eyjalög eiga að
sjálfsögðu til að laumast inn líka,
að sögn Gísla. „Í Miðgarði flytj-
um við jólalag eftir mig og það
er okkar frumflutningur á því en
ég lofa ekki að við syngjum það.
Þótt við séum miklir söngmenn, að
eigin áliti, þá flíkum við því ekki
mjög,“ segir hann sposkur. „En við
hefjum samt upp raustir okkar í
öðrum lögum.“ gun@frettabladid.is
Höfum gaman af þessu
Skemmtibandið Föruneyti G.H. verður með tónleika í Miðgarði í Garði á Reykjanesi á morgun.
Tónleikarnir eru liður í alþjóðlegri listahátíð sem hefst í dag og nefnist Ferskir vindar í Garði.
Skemmtisveitin Förunautar G. H.: Þórólfur Guðnason, Hafsteinn Guðfinnsson, Árni
Áskelsson, Ársæll Másson, Hilmar Sverrisson og Gísli Helgason. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Það hefur komið til tals að ættleiða Hilmar Sverrisson
líka, hann spilar stundum með okkur, það hefur bara
ekki komist í verk.“
EasyTone skórnir frá Reebok eru sér-
hannaðir til þess að skapa örlítinn
óstöðugleika og mýkt í hverju skrefi
sem veldur auknu álagi á vöðva í rassi,
lærum og kálfum og styrkir þá sérstak-
lega. Álagið á vöðvana getur verið allt
að 30% meira en í venjulegum skóm.
Loftpúðarnir í sólum EasyTone
skónna eru afrakstur ítarlegrar rann-
sóknarvinnu. Loft flæðir milli púða í
sólanum svo að þegar skórnir eru not-
aðir er eins og stöðugt sé verið að gera
jafnvægisæfingar. Jafnvægisæfingar
styrkja djúplæga kvið- og bakvöðva
sem gerir það að verkum að bakverkir
geta minnkað.
Skórnir eru ætlaðir til daglegra nota,
hvort sem er í vinnu, skóla eða göngu-
túra. Þeir henta vel fyrir þá sem þurfa
að standa mikið en sólinn er sérstak-
lega mjúkur. Ef þú vilt þægilega, flotta
og góða skó sem gefa flottari rass og
læri eru EasyTone skórnir eitthvað
fyrir þig.
Það vakti mikla athygli þegar danska
fyrirsætan Helena Christensen sat fyrir
nakin í EasyTone skónum einum í tíma-
ritinu Vogue. Þar lofaði hún EasyTone-
skóna og sagði þá gera henni kleift að
styrkja rass, læri og kálfa á sama tíma
og hún sinnir daglegum störfum: „Ég
er óþolinmóð og þegar ég prófa eitthvað
nýtt vil ég sjá afraksturinn strax. Ég
fann að þessir skór virkuðu um leið og
því hélt ég áfram að nota þá.“
Konur sem hafa prófað EasyTone skóna hafa þetta að segja um þá:
Ég viðra tíkina mína á hverjum degi og þá koma EasyTone skórnir mínir að góðum
notum því þeir virka allt öðruvísi en venjulegir íþrótta- eða gönguskór. Rassvöðv-
arnir styrkjast og álagið minnkar þar af leiðandi á mjóbakið. Þessir skór svínvirka!
Ellý Ármanns, fjölmiðlakona
Easytone skórnir eru algjör snilld og bylting fyrir konur. Fyrstu skiptin sem ég
notaði EasyTone fékk ég væga strengi í aftanverð læri og kálfa sem sagði mér að
skórnir eru klárlega að virka. Ómissandi eintak fyrir konur sem vilja tóna og styrkja
fætur allan daginn.
Hrafnhildur Halldórsdóttir, einkaþjálfari og fitnesskeppandi
Ég er með slæm liðbönd í ökklum en síðan ég byrjaði að nota EasyTone finn ég
hvað liðböndin hafa styrkst. Mér finnst mjög þægilegt að ganga í þeim og þeir
eru búnir að vekja mikla athygli, enda mjög nettir og ekki of íþróttalegir í útliti svo
maður getur verið í þeim við hvert tækifæri.
Margrét Hulda Karlsdóttir, bikarmeistari í módelfitness 2010
Göngutúrarnir verða ennþá skemmtilegri í Easytone, því maður bókstaflega svífur
um í þeim.
Marta María, Pressan
Ummæli ánægðra notenda
Kynning
Nýtt frá Reebok: EasyTone skór
Viltu flottari rass og læri? Þú færð meira út úr hverju skrefi í EasyTone.