Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 90
66 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
EM kvenna:
Ísland-Svartfjallaland 23-26 (10-14)
Mörk Íslands (skot): Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
8/1 (16/1), Rut Jónsdóttir 4 (5), Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 4/4 (7/5), Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 3 (3), Rebekka Rut Skúladóttir 2 (4), Rakel
Dögg Bragadóttir 1 (3), Þorgerður Anna Atladóttir
1 (3), Sólveig Lára Kjærnested (1), Ásta Birna
Gunnarsdóttir (2), Karen Knútsdóttir (6).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 6 (11, 55%),
Berglind Íris Hansdóttir 6 (26/1, 23%).
Hraðaupphlaup: 3 (Rebekka Rut 1, Hrafnhildur
Ósk 1, Anna Úrsúla 1).
Fiskuð víti: 6 (Rut 2, Anna Úrsúla 2, Rakel Dögg
1, Þorgerður Anna 1).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Svartfjallalands (skot): Jovanka Radicevic 6
(7), Maja Savic 6 (7), Sandra Nikcevic 4 (5), Mil-
ena Knezevic 3 (5), Jelena Markovic 3 (7), Marija
Jovanovic 3 (8), Andjela Bulatovic 1/1 (3/2),
Radmila Miljanic (1), Suzana Lazovic (1).
Varin skot: Sonja Barjaktarovic 11 (24/3, 46%),
Marina Vukcevic 4/1 (13/2, 31%), Mirjana
Milenkovic 0 (1/1).
Hraðaupphlaup: 5 (Radicevic 3, Savic 1, Knezevic
1).
Fiskuð víti: 2 (Radicevic 1, Savic 1).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Kjersti Arntsen og Ida Cecilie Gullaks-
en, Noregi.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Hrafnhildur Ósk Skúla-
dóttir átti stórleik með íslenska
landsliðinu gegn Svartfjallalandi
í gær og skoraði átta mörk. Það
dugði þó ekki til þar sem Ísland
tapaði leiknum, 26-23.
Hrafnhildur átti erfitt uppdrátt-
ar gegn Króatíu í fyrstu umferð
riðlakeppninnar á EM í Noregi og
Danmörku en kom tvíefld til baka
í gær.
„Ég steig upp og er að sjálfsögðu
ánægð með það. Ég ætlaði ekki að
fara aftur heim til að gleyma þessu
móti um leið,“ sagði hún og brosti.
„Ég var staðráðin í að gera betur
og ég gerði það – alveg eins og ég
vissi að ég myndi gera.“
Hún segir að það þýði ekkert að
vera rög við að skjóta á markið.
„Öðruvísi skora ég ekki. Ég lít þá
ekki á skotin sem mistök, heldur
tilraunir.“
Hún sagðist vera svekktust með
misnotuðu dauðafærin hjá Íslandi
í gær. „Við vorum fjórum mörkum
undir í leiknum og það eina sem
skildi á milli var að við vorum að
misnota dauðfærin en þær ekki.
Leikurinn átti því að vera mun
jafnari. Þær voru aðeins heppnari
en við í leiknum, rétt eins og þær
króatísku voru.“
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
var vitanlega svekkt með tapið.
„Þetta er miklu meira svekkjandi
en í síðasta leik. Við vissum þá að
við sýndum ekki okkar réttu hlið-
ar en í dag náðum við að gera það,“
sagði hún.
Varnarleikur Íslands var lengst
af mjög góður í gær en Anna
Úrsúla sagði að það hefði ýmislegt
mátt fara betur. „Þær voru stund-
um að skora af fimmtán metra
færi. Ég var ekki að fara út, ná í
þær og brjóta á þeim. Það er dýrt.
En við vorum miklu betri í vörn-
inni í þessum leik og það er tals-
vert skemmtilega að spila þegar
varnarleikurinn gengur vel. Við
sýndum í dag að við eigum eitthvað
í þessi lið og það er gott að fólkið
heima hafi fengið að sjá það.“ - esá
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eftir tapið gegn Svartfjallalandi í gær:
Ætlaði ekki að gleyma þessu móti við heimkomu
GÓÐAR SAMAN Hrafnhildur sendir hér inn á Önnu Úrsúlu. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
HANDBOLTI Júlíus Jónasson lands-
liðsþjálfari sagði að íslenska liðið
hefði spilað miklu betur gegn
Svartfjallalandi í gær en í fyrsta
leiknum gegn Króatíu. Ísland tap-
aði þó í gær fyrir Svartfellingum,
26-23, eftir hetjulega baráttu.
„Þegar á heildina er litið er ég
ánægður og sérstaklega voru síð-
ustu 20 mínúturnar mjög góðar.
Svartfellingar ætluðu greinilega
að fara rólega í gegnum hann á
einföldum göngubolta en það kom
bara ekki til greina. Við unnum
þann leikkafla 9-6 og spiluðum
gríðarlega vel, bæði í vörn og
sókn.“
Hann segir þó að liðið hafi enn
svigrúm til að bæta leik sinn en
lokaleikur Íslands í riðlinum verð-
ur gegn Rússum á laugardaginn.
„Við fórum í dag illa með dauða-
færin og töpuðum miklu á því.
Varnarleikurinn var mun grimm-
ari en í síðasta leik en á tímabili
hefðum við átt vera jafnvel enn
grimmari. Ég geri mér þó grein
fyrir því að við förum aldrei í
gegnum heilan leik án þess að fá
á okkur mark af níu metrunum.
Markvarslan og ýmsar sóknar-
útfærslur hefðu mátt vera betri í
kvöld og eru þetta allt vandamál
sem við erum að reyna að finna
lausnir á.“
Júlíus segir að hrósa beri leik-
mönnum fyrir hugarfar. „Þær eru
með óbilandi baráttuvilja og eiga
risastórt hrós skilið fyrir það. Þær
eru sífellt að reyna að finna lausn-
ir inni á vellinum, á hliðarlínunni
með okkur og inni í klefanum í
hálfleik. Þær gefast aldrei upp og
það sáum við í kvöld.“
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir átti
stórleik í gær og skoraði átta mörk.
Allt annað var að sjá til hennar en
í fyrsta leiknum, þar sem hún átti
erfitt uppdráttar.
„Hún hefur átt erfitt síðan í
fyrsta leiknum og við höfum rætt
við hana um hann. En það var líka
alveg ljóst að hún myndi koma til
baka og það var gríðarlega sterkt
að sjá hana svona öfluga í dag,“
sagði hann.
„Rut átti líka fínan leik og spil-
aði meira núna en í fyrsta leiknum.
Það er óhætt að segja að leikmenn
eins og Rakel, sem spila fyrst
og fremst í vörninni, vilja falla í
skuggann en hún stóð sig mjög vel
í vörninni eins og hún gerir lang-
oftast. Rebekka átti góða innkomu
og Þorgerður nýtti sínar mínútur
vel eins og í síðasta leiknum. Þetta
er því mikið af ungum leikmönn-
um sem eru að fá afar dýrmætar
mínútur og það kemur til með að
hjálpa okkur mikið í framtíðinni.
Við erum að taka skref fram á við
og ég er ánægður með það.“ - esá
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari var stoltur af stelpunum eftir tapið gegn Svartfjallalandi í gær:
Stelpurnar eru með óbilandi baráttuvilja
FAGNAÐ Júlíus og Harpa Sif á bekknum. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
HANDBOLTI Íris Björk Símonar-
dóttir átti líklega bestu innkom-
una af bekknum í gær. Hún lék
síðasta stundarfjórðunginn og
varði helming þeirra skora sem
hún fékk á sig.
„Mér fannst Berglind Íris einn-
ig standa sig vel í þessum leik og
við stigum báðar upp í dag. Við
ætluðum að gera betur eftir síð-
asta leik en við vorum afar ósátt-
ar eftir þann leik,“ sagði Íris.
„Vörnin var mikið betri í dag
og það munar miklu fyrir okkur
í markinu að það sé þó aðeins
komið við andstæðinginn. Við
hefðum sennilega unnið leikinn
hefðum við fengið tíu mínútur í
viðbót og við sýndum undir lokin
og á köflum í öllum leiknum að
við eigum erindi á þetta mót. Nú
eigum við að halda þessu áfram
og bara vinna næsta leik, gegn
Rússunum.“ - esá
Íris Björk Símonardóttir:
Ætlum að
vinna Rússana
BARÁTTA Þorgerður Anna brýst hér í
gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
HANDBOLTI Dragan Adzic, lands-
liðsþjálfari Svartfellinga, hrós-
aði íslenska liðinu sérstaklega á
blaðamannafundi eftir leikinn í
gær.
„Mér fannst íslenska liðið spila
miklu betur en í fyrsta leiknum.
En þetta var gríðarlega mikil-
vægur sigur fyrir okkur því við
vildum fylgja eftir sigrinum á
Rússlandi,“ sagði hann.
Fréttablaðið spurði hann af
hverju hann hefði ákveðið að
hvíla Bojönu Popovic, sem er
einn besti leikmaður heims.
„Til að gefa henni hvíld fyrir
síðasta leikinn í riðlinum. Það
er gríðarlega mikilvægur leikur
fyrir okkur. En það eru allir leik-
menn í okkar liði mikilvægir og
þær fengu dýrmætar mínútur
inni á vellinum í kvöld.“ - esá
Þjálfari Svartfellinga:
Hrósaði ís-
lenska liðinu
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Árósum
eirikur@frettabladid.is
HANDBOLTI Ísland hefur tapað
sínum fyrstu tveimur leikjum á
EM í handbolta. Í gær töpuðu stelp-
urnar okkar fyrir Svartfellingum,
26-23, og þurfa nú að leggja sjálfa
heimsmeistarana í lokaumferðinni
til að komast upp úr riðlinum. Þær
geta þó gengið til þess leiks beinar
í baki og með rífandi sjálfstraust
eftir leikinn í gær.
Allt annað var að sjá til íslenska
liðsins strax í fyrri hálfleik í gær.
Ísland byrjaði í 5+1 vörn og sóttu
varnarmennirnir nú mun meira
út í skytturnar. Þær sóttu síðan
hratt fram og án þess þó að tapa
mörgum boltum. Það var einnig
mikil breyting frá leiknum gegn
Króatíu.
En markvörður Svartfellinga
fann sig vel í upphafi leiksins og
þá byggðu andstæðingarnir upp
forystu sem Ísland náði aldrei að
brúa aftur. Ísland náði þó að ógna
forystunni nokkrum sinnum með
öflugum varnarleik og liprum
sóknar leik á köflum og minnka
muninn í tvö mörk þegar minnst
var, 12-10. En það sem varð Íslandi
að falli í þessum leik voru dauða-
færin sem fóru forgörðum. Alls
sluppu stelpurnar fjórum sinn-
um í gegn í hraðaupphlaupum án
þess þó að ná að skora. Það ligg-
ur í augum uppi hversu dýrkeypt
það var.
Einnig vantaði nokkuð inn á
markvörsluna en Íris Björk átti þó
glæsilega innkomu og varði gríðar-
lega vel á síðasta stundarfjórðungi
leiksins. Berglind Íris hefur marg-
sinnis sýnt hversu góður mark-
vörður hún er og hrekkur vonandi
í gang gegn Rússum á laugardag-
inn.
Síðari hálfleikur byrjaði ekki
nógu vel og náðu Svartfellingar
að síga fram úr, hægt og rólega.
Mestur varð munurinn sjö mörk,
23-16, þegar þrettán mínútur voru
eftir af leiknum.
En íslensku leikmennirnir gef-
ast aldrei upp og það gerðu þær
ekki heldur þá. Með mikilli bar-
áttu tókst stelpunum að minnka
muninn í þrjú mörk þegar tæpar
fimm mínútur voru eftir og gal-
opnuðu í raun leikinn. Íris varði
allt sem á markið kom og Hrafn-
hildur fékk tvívegis tækifæri til
að minnka muninn í tvö mörk en
allt kom fyrir ekki. Svartfellingar
skoruðu og Íslendingar, þrátt fyrir
allan sinn baráttuvilja, féllu ein-
faldlega á tíma.
Hrafnhildur fann sig vel í sókn-
inni og sýndi að frammistaðan í
fyrsta leiknum var aðeins tilvilj-
un. Rut Jónsdóttir sýndi glæsileg
tilþrif, oft þegar mest þurfti á að
halda. Þorgerður Anna átti góða
innkomu og Anna Úrsúla stóð
fyrir sínu. Fleiri stóðu sig vel en
það mátti einnig sjá að liðið á enn
mikið inni fyrir lokaleikinn. Það
verður vel hægt að stríða heims-
meisturum Rússa þá.
Baráttan og viljinn dugðu ekki til
Ísland sýndi stórbættan leik gegn Svartfjallalandi á EM í handbolta í gær. Niðurstaðan var þriggja marka
svekkjandi tap gegn afar sterku liði sem hafði lagt sjálfa heimsmeistarana í fyrstu umferð mótsins.
MÖGNUÐ Rut Jónsdóttir sýnir hér flott tilþrif en hún átti virkilega fínan leik fyrir íslenska liðið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN