Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 2
2 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR TRÚFÉLÖG „Þetta er alveg eins og að segja þjóðkirkjunni að vera með Vottum Jehóva,“ segir Sal- mann Tamimi, forstöðumaður Félags múslima, sem kveður það ekki koma til greina að félagið byggi mosku sameiginlega með Menningarsetri múslima eins og borgaryfirvöld vilja. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að bæði félögin vildu lóð frá borg- inni undir mosku. Borgin segir ekki hægt að útvega nema eina lóð fyrir slíkt. Full- trúar félaganna tveggja fund- uðu um málið með fulltrúum skipulagsyfir- valda og Önnu Kristinsdóttur, mannréttinda- stjóra Reykja- v í k u r, 3 0 . september síð- astliðinn. Anna segir að í fyrrnefnda félaginu séu 373 skráðir meðlimir en 218 í því síðara. Þegar svo fámennir hópar sæki um lóðir fyrir tilbeiðsluhús sé eðlilegt að athuga hvort mögu- legt sé að samnýta lóðir. „Það er auðvitað ekki verið að fara fram á það að trúfélög- in sameinist en við höfum spurt hvort menn gætu sameinast um einhvers konar regnhlífar- samtök um byggingu moskunn- ar sem slíkrar,“ útskýrir Anna, sem kveðst hafa túlkað fundinn þannig að báðir hópar teldu að ef moska yrði byggð myndi hún nýt- ast öllum múslimum. Eins og sagði í Fréttablaðinu í gær segir Karim Askari, vara- formaður stjórnar Menningar- setursins, það ekki andvígt sameiginlegri mosku. Menningar- setrið, sem meðal annars var stofnað af fyrrverandi meðlimum Félags múslima, sótti fyrst nýlega um lóð. Salmann Tamimi segir Félag múslima hafa haft lóðaum- sókn í gangi í nærri tólf ár. „Okkar umsókn er alveg aðskil- in þeirra málum. Þetta er alveg eins og að segja þjóðkirkjunni að vera með Vottum Jehóva,“ segir Salmann um útspil borgarinnar. Anna Kristinsdóttir ítrekar hins vegar að borgin eigi fáar lóðir sem henti undir bænahús. „Það er ekki þannig að hver 200 eða 300 manna söfnuður í borg- inni geti komið og sagt: Nú viljum við að fá lóð. Mér finnst mjög eðli- legt að menn segi á einhverjum tímapunkti að nú geti þeir ekki lengur, án greiðslu, fengið úthlut- að svona takmörkuðum gæðum. En ég geri mér alveg grein fyrir því að ef það er úthlutað lóð til annars félagsins er ekki hægt að ganga framhjá hinu félaginu held- ur,“ segir mannréttindastjórinn. gar@frettabladid.is Neita að reisa mosku með nýja trúfélaginu Þrátt fyrir fund fulltrúa múslimafélaganna tveggja með mannréttindastjóra Reykjavíkur sýnist útilokað að félögin byggi sameiginlega mosku. Fái annað fé- lagið lóð verður ekki gengið framhjá hinu félaginu, segir mannréttindastjórinn. ANNA KRISTINSDÓTTIR SALMANN TAMIMI Okkar umsókn er alveg aðskilin lóðaumsóknum annarra, segir forstöðumaður Félags múslima, sem tekur ekki í mál að byggja mosku með öðru trúfélagi múslima. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Páll, er þessi plata made in sveitin? „Nei, kannski ekki alveg. Þetta eru frekar perlur frá gamalli tíð. Þjóðar- sálin að vissu leyti.“ Páll Rósinkranz stórsöngvari gaf nýlega út plötuna Ó hvílík elska. Hann sagði þar að finna ákveðna sveitarómantík. FÓLK Jón Gnarr borgarstjóri opn- aði Jólabæinn á Hljómalindarreit við Laugaveg við sérstaka athöfn í gær. Þetta er í annað sinn sem jólabærinn er starfræktur á þessum stað og þykir hann setja sannan jólavip á Laugaveginn. Í jólabænum eru sölubásar þar sem ýmis varningur verður til sölu auk þess sem boðið verður upp á fjölbreyttar uppákomur og viðburði þar, sem og víðar í mið- borginni, fram að jólum. Eftir að borgarstjóri opnaði Jólabæinn formlega tók Karla- kórinn Fóstbræður nokkur lög auk þess sem hálftröll og jóla- sveinar heimsóttu jólabæinn. - þj Jólabærinn opnaður: Borgarstjórinn tendraði ljósin JÓLASTEMNING Borgarstjóri opnaði Jólabæinn formlega og sést hér í góðum félagskap með Helgu Jónu Ásbjarnar- dóttur og einum jólasveinanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MANNRÉTTINDI Íslandsdei ld Amnesty ítrekar áskorun til stjórnvalda um að undirrita og fullgilda bókun Sameinuðu þjóð- anna við alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menn- ingarleg réttindi. Tvö ár eru í dag frá því að alls- herjarþing SÞ samþykkti bókun- ina. „Hún er mikilvægt skref í þeirri viðleitni að tryggja aðgang að réttlæti fyrir þolendur mann- réttindabrota,“ segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmda- stjóri Íslandsdeildar Amnesty í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. „Fullgilding bókunarinnar er raunhæft skref í átt að útrýmingu fátæktar bæði heima og heiman,“ segir Jóhanna. Sjá síðu 32 Íslandsdeild Amnesty: Stjórnvöld full- gildi bókun SÞ DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Tomasz Burdzan fyrir að hafa nauðgað konu á heimili sínu í júlí 2009. Konan kærði manninn. Hún greindi frá því að erlendur maður hefði boðið henni heim til sín en hún hefði þurft að hringja símtal. Í herbergi hans hefði hann hrint henni þannig að hún hefði fallið á skáp eða hillu. Hún hefði vankast og hann nauðgað henni. Konunni voru dæmdar 1,5 milljónir króna í skaðabætur. - jss Nauðgunardómur staðfestur: Þrjú og hálft ár fyrir nauðgun DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fimmtugan karlmann fyrir að brjótast inn í bifreið sem stóð í fjöru í landi Hafnar í Hvalfjarðarsveit. Úr bílnum stal maðurinn haglabyssu og riffli, ásamt skotum í bæði skotvopnin. Maðurinn er ákærður fyrir Héraðsdómi Vestur- lands, en brotin sem hann er ákærður fyrir áttu sér stað á 2009 og á þessu ári. Manninum er enn fremur gefið að sök vopnalaga- brot með því að hafa átt þrjá riffla án þess að hafa til- skilin skotvopnaleyfi. Þá er hann ákærður fyrir að hafa geymt tvær haglabyssur og þrjá riffla, svo og skotfæri í þau, auk loftbyssuskota, óaðskilin og í ólæstum hirslum. Loks fann lögregla hnúajárn við húsleit. Fjórum sinnum hafði lögregla svo afskipti af mann- inum þar sem hann ók bifreið, án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Í eitt skiptanna var bíllinn sem hann ók þar að auki ótryggður. Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmd- ur til refsingar og að skotvopnasafn hans og skotfæri, svo og hnúajárnið, verði gerð upptæk. - jss VOPNABÚR Maðurinn var vel vopnum búinn. MYND ÚR SAFNI. Tæplega fimmmtugur maður ákærður fyrir þjófnað, vopnalagabrot og fleira: Án byssuleyfa með vopnasafn EFNAHAGSMÁL Verklagsreglur fyrir ný úrræði vegna skuldavanda heim- ilanna verða væntanlega tilbúnar hinn 15. þessa mánaðar. Eftir þann tíma ætti almenningur að geta borið sig eftir öllum þeim lausnum sem í boði eru. Eftir margra vikna viðræður hagsmunaaðila komust stjórnvöld, lánastofnanir og lífeyrissjóðir að samkomulagi sem var undirritað fyrir réttri viku. Það kvað meðal annars á um að skuldarar í yfirveð- settum íbúðum gætu beðið bankann um að færa eftirstöðvar niður í 110 prósent af verðmæti fasteignarinnar eða að öðrum kosti sótt um sértæka skuldaaðlögun. Fyrrgreindir kostir eru þegar aðgengilegir hjá bönkum, en eftir 15. desember verða einnig í boði ný úrræði tengd vaxtabótum og sér- stökum vaxtaniðurgreiðslum. Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Umboðsmanns skuld- ara, segir í samtali við Fréttablaðið að embættið muni áfram leiðbeina þeim sem snúi sér til þess til ráð- gjafar vegna sértækrar skuldaað- lögunar. Þá aðstoði það einnig fólk sem hafi ekki verið ánægt með þau svör sem það fái frá bönkum. - þj Úrræði vegna skuldavanda heimilanna að skýrast: Verklag til reiðu í næstu viku RÁÐGJÖF Hægt er að snúa sér til banka um niðurfærslu skulda og skuldaaðlögun, en ekki verða öll úrræði vegna skuldavanda komin á hreint fyrr en í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ALÞINGI Fjármálaráðherra lagði í gær fram frumvarp á Alþingi um farþegagjald og gistinátta- gjald sem inn- heimt verður af ferðamönnum á Íslandi, bæði innlendum og erlendum. Markmið laganna er að afla tekna til að stuðla að upp- byggingu, við- haldi og vernd- un fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Ferðaþjónustuaðilum verður gert að greiða gjald fyrir hvern farþega. Upphæðin fer eftir því hversu langt að menn koma, en gjaldið er á bilinu 65 til 390 krón- ur. Þá mun ríkissjóður innheimta 100 króna gjald fyrir hverja gistinótt á hótelum, en 50 krón- ur fyrir hverja gistinótt á annars konar gististöðum. - jhh Auknar tekjur í ferðaiðnaði: Gjald lagt á ferðamenn STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON BRETLAND Óeirðir brutust út við þinghúsið í London í gær eftir að meirihluti breska þingsins sam- þykkti frumvarp sem heimilar hækkun skólagjalda. Samkvæmt frumvarpinu geta skólagjöld allt að því þrefaldast. Þúsundir námsmanna mótmæltu og kom til átaka milli mótmæl- enda og lögreglu. Þá réðust mót- mælendur á bifreið Karls Breta- prins og Camillu, eiginkonu hans, þegar þau óku um miðborgina. Rúða í bílnum var brotin og máln- ingu skvett á hann. Nokkrir mót- mælendur og lögreglumenn hafa slasast í átökunum. - th Skólagjöld hækkuð í Bretlandi: Átök í London SPURNING DAGSINS AÞENA - HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ HAÍTÍ? EFTIR MARGRÉTI ÖRNÓLFSDÓTTUR HVAÐ ER MÁLIÐ? Aþena (ekki höfuðborgin í Grikklandi ;) FJÖRUVERÐLAUNIN Í FLOKKI UNGLINGA BÓKA ★★★★ „vandað til í ei nu og öllu.“ Kristín Heiða K ristinsdóttir, Morgunblaðið ★★★★„Fjörlega skrifuð, nútímaleg saga um smáa atburði og stórar tilfinningar.“ Arndís Þórarinsdóttir, Fréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.