Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 63

Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 63
FÖSTUDAGUR 10. desember 2010 39 Stjórnmálamenn eiga jafnt að takast á við málefni líðandi stundar, sem og að marka stefnu til framtíðar. Sjaldan er meiri þörf á skýrri framtíðarsýn en einmitt þegar gengið er í gegnum erfið- leika. Langtímamarkmið okkar er að hér verði mögulegt að búa áfram og það er hlutverk stjórn- málamanna að skapa skilyrði og umhverfi til að svo megi verða. Stærsta álitaefnið í því sambandi er líklega það hvort almenningur á Íslandi fái sanngjörn laun fyrir sína vinnu eða viljum við áfram búa almenningi þann veruleika að tvær myntir séu í landinu – þ.e. launakrónan í launa umslaginu og verðtryggða krónan í glugga- umslaginu? Það var sveiflan á milli þessara tveggja mynta sem orsakaði eignatjón almennings haustið 2008. Ef við ráðumst ekki að rót þessa vanda, er ekkert því til fyrirstöðu að við bjóðum börn- unum okkar uppá sama óréttlæt- ið eftir 10-15 ár og við höfum nú upplifað. Stærstur hluti erfiðleika íslenskra fyrirtækja og heimila snýst ekki um hrun bankakerfisins heldur miklu fremur um sveiflur í gengi erlendra mynta, launakrónu og verðtryggðar krónu. Ríkið tók á sig mikið högg vegna hruns bank- anna en tókst með neyðarlögunum að minnka það tjón og senda reikn- inginn að einhverju leyti til erlenda kröfuhafa. Tjón almennings er hins vegar miklu fremur tengt gengi krónunnar og því verðbólgu- skoti sem varð því samfara. Þannig hitti hrun launakrónunnar íslensk heimili miklu verr en banka hrunið. Íslendingar upplifa bæði banka- og myntkreppu, þegar önnur lönd glíma bara við bankakreppu. Sem dæmi hefur írskur almenningur ekki lent í stórkostlegu eignatjóni enda eru laun þeirra og skuldir í sömu myntinni. Stjórnmálamenn eiga að skapa skilyrði og umhverfi til að fólk vilji búa hér áfram. Sumir stjórn- málamenn hafa lagt á það áherslu að framtíð íslenskra neytenda, íslenskra skuldara og íslenskra launamanna sé best borgið í mynt- samstarfi við vinaþjóðir í Evrópu. Aðrir stjórnmálamenn hafa ekki lagt fram neina framtíðarsýn í þessum efnum. Nú er komið að almenningi að standa með sjálfum sér og krefjast breytinga. Íslensk- ur almenningur á skilið að laun og skuldir séu í sömu myntinni. Laun og skuldir í sömu mynt Efnahagsmál Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingarinnar Nú er komið að almenningi að standa með sjálfum sér og krefjast breytinga. AF NETINU Hvað um endur- skoðendur? Endurskoðunarskýrslurnar sem nú eru að birtast í fjölmiðlum eru komnar frá embætti sérstaks saksóknara. Þetta eru merkileg plögg sem sýna samfellda og stórfellda mis- notkun. Lán til tengdra aðila, lán sem aldrei virðist hafa staðið til að innheimta, falsaða reikninga. Það sem maður spyr sig er – þegar notaðar eru slíkar blekk- ingar til að halda bankastarfsemi gangandi er þá eitthvert hald í því sem gert var í skjóli þeirra? Er þetta þá ekki hrein svikamylla fyrst undirstaðan er ekki betri, og allt sem fylgdi svindilbrask meira og minna – hlutabréfamarkað- urinn, peningamarkaðssjóðirnir, Icesave, gjaldeyrislánin? Enginn hefði snert neitt af þessu hefði hann vitað um raunveru- lega stöðu bankanna og það sem fór fram inni í þeim. Og hvað þá með endurskoð- unarfyrirtækn. Er þeim yfirleitt treystandi eftir þetta eða eru þau alltaf til í að fylgja þeim ríku og voldugu hverju sinni? silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Árbót á pólitíska vini Þingheimur er samála um að almenningur í landinu borgi stórbændunum að Árbót tugi milljóna króna, engu breytir að hörmulega tókst til með rekstur heimilisins þar, sem var rekið á samningi við Barnaverndar- stofu, og ekki heldur þó forstjóri Barnarverndarstofu hafi ekki séð ástæðu til greiðslunnar. Fólkið á Árbót á pólitíska vini sem vernda það. Með pening- um úr almannasjóðum. Það var léttara að afgreiða tugi milljóna til þessa fólks en mæta þeim fjölmörgu sem eiga um sárt að binda eftir dvöl á heimilum þar sem illa tókst til. Vonandi er eftirgjöf stjórnmála- manna í Árbótarmálinu frekar sértæk aðgerð en almenn. Miðjan.is Sigurjón M. Egilsson Fráleit hugmynd Húsið Höfði er líklega frægasta hús landsins og gatan Höfðatún er kennd við það. Nú heyrir maður að ætlunin sé að leggja niður nafnið Höfða og kenna götuna við konu. Þetta finnst mér aldeilis fráleit hugmynd og það hlýtur að vera hægt að finna einhverja aðra götu sem hægt sé að skipta um nafn á. Raunar hefur svipað verið gert áður en þó ekki eins stórkarla- lega og nú er ætlunin að gera með því að leggja niður nafnið Höfðatún. blog.eyjan.is/omarragnarsson/ Ómar Ragnarsson náttúrulega Aubrey, húð og hársnyrtivörur hreinsa, stinna og styrkja húðina Engir parabenar. Henta fólki á öllum aldri. Nú líka fáanleg fyrir herra. Perlége ekta Belgískt súkkulaði Enginn sykur! Sætt með maltitol og hentar því sykursjúkum líka. Sonnentor lífræn krydd Einstök gæðakrydd! Finndu ilminn og kryddaðu jólamatinn með fersku Sonnentor kryddi. Í Heilsuhúsinu finnur þú mikið úrval af náttúrulegum og lífrænt vottuðum snyrtivörum, sælkeravörum, framandi kryddi og öllu því sem þarf til að gera góðan mat betri. Weleda Sturtusápa (án sápu) og handáburður úr Granateplum. Granateplin eru styrkjandi og nærandi fyrir húðina. Handáburðurinn er mýkjandi og notalegur ilmur. Verð: 3.490 kr Laugavegi • Kringlunni • Smáratorgi • Lágmúla • Akureyri • Selfossi • Reykjanesbæ Balocco og Amé Fullkomin uppskrift að jólum! Ítalska jólakakan í fallegum umbúðunum sem hægt er að nota aftur og aftur og frískandi og freyðandi AMÉ í fjórum bragðtegundum. Lavera lífrænt vottaðar húðvörur Lime Body Lotion og sturtusápa ásamt Basis handáburði. Verð: 2.990
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.