Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 88
64 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
IE-deild karla:
Keflavík-Tindastóll 82-76
Keflavík: Lazar Trifunovic 27/11 fráköst, Hörður
Axel Vilhjálmsson 23/9 fráköst/10 stoðsendingar,
Gunnar Einarsson 12/5 stoðsendingar, Þröstur
Leó Jóhannsson 5, Jón Nordal Hafsteinsson 4,
Valentino Maxwell 4, Sigurður Gunnar Þorsteins-
son 4/6 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 3.
Tindastóll: Hayward Fain 22/11 fráköst/8
stoðsendingar/3 varin skot, Sean Kingsley Cunn-
ingham 19/7 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 13/5
fráköst, Dragoljub Kitanovic 8/6 fráköst, Helgi
Freyr Margeirsson 7, Friðrik Hreinsson 4, Svavar
Atli Birgisson 3.
Fjölnir-Grindavík 69-86
Fjölnir: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 21/5
fráköst, Ægir Þór Steinarsson 17/9 fráköst/5
stoðsendingar, Ben Stywall 14/10 fráköst, Jón
Sverrisson 10/7 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson
5, Sindri Kárason 2.
Grindavík: Ryan Pettinella 20/9 fráköst, Páll Axel
Vilbergsson 16/10 fráköst, Ólafur Ólafsson 14/5
fráköst, Jeremy Kelly 14/7 fráköst/5 stoðsending-
ar, Þorleifur Ólafsson 10, Björn Steinar Brynjólfs-
son 6, Kjartan Helgi Steinþórsson 2, Ómar Örn
Sævarsson 2, Guðlaugur Eyjólfsson 2/5 fráköst.
Hamar-Snæfell 75-99
Hamar: Andre Dabney 19/8 fráköst, Darri
Hilmarsson 19/5 fráköst, Hilmar Guðjónsson 11,
Ellert Arnarson 10/5 stoðsendingar, Ragnar Á.
Nathanaelsson 8/8 fráköst/5 varin skot, Svavar
Páll Pálsson 8/6 fráköst.
Snæfell: Ryan Amaroso 38/11 fráköst, Jón Ólafur
Jónsson 16/6 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 10/6
fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 8, Sean Burton
7/8 fráköst/10 stoðsendingar, Egill Egilsson
6/4 fráköst, Atli Rafn Hreinsson 5, Sveinn
Arnar Davíðsson 5, Daníel A. Kazmi 2, Kristján
Andrésson 2.
KR-ÍR 100-82
Engin tölfræði barst úr leiknum.
Njarðvík-KFÍ Frestað
Haukar-Stjarnan 100-85
Haukar: Gerald Robinson 29/7 fráköst, Haukur
Óskarsson 22, Sveinn Ómar Sveinsson 19/5 frák-
öst, Semaj Inge 16/7 fráköst/10 stoðsendingar,
Emil Barja 6/9 fráköst, Davíð Páll Hermannsson
4, Óskar Ingi Magnússon 2/6 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Örn Sigurðarson 2.
Stjarnan: Marvin Valdimarsson 21/6 fráköst,
Jovan Zdravevski 20/9 fráköst, Justin Shouse 18,
Daníel G. Guðmundsson 9, Ólafur Aron Ingvason
7, Fannar Freyr Helgason 6/8 fráköst, Guðjón
Lárusson 4.
STAÐAN:
Snæfell 10 9 1 1002-902 18
Grindavík 10 8 2 891-783 16
Keflavík 10 7 3 888-848 14
KR 10 7 3 986-856 14
Stjarnan 10 5 5 880-884 10
Hamar 10 5 5 827-838 10
Fjölnir 10 4 6 877-891 8
Haukar 10 4 6 857-904 8
Tindastóll 10 3 7 790-871 6
Njarðvík 9 3 6 687-762 6
KFÍ 9 2 7 827-907 4
ÍR 10 2 8 869-935 4
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar
Snæfells eru enn á toppi Iceland
Express deildar karla eftir fínan
og öruggan útisigur á Hamri, sem
er heldur betur að kólna.
Ryan Amoroso hélt áfram að
fara á kostum í liði Snæfells en
hann skoraði 38 stig í gær og reif
niður ein 8 fráköst. Jón Ólafur
Jónsson skilaði sínu að venju fyrir
meistarana. Andre Dabney og
Darri Hilmarsson voru í sérflokki
hjá Hamarsmönnum.
Hamar byrjaði leiktíðina með
miklum látum en er að gefa hraust-
lega eftir.
Haukar gerðu sér lítið fyrir og
lögðu Stjörnuna að Ásvöllum en
Stjörnumenn eru ekki alveg að
standa undir væntingum í vetur.
Gerald Robinson fór mikinn í
liði Haukanna og skoraði 29 stig
og tók 7 fráköst. Semaj Inge var
einnig áberandi með 16 stig, 7
fráköst og 10 stoðsendingar.
KR vann síðan borgarslaginn
gegn ÍR en ekkert varð af leik
Njarðvíkur og KFÍ þar sem ekki
var flogið frá Ísafirði í gær.
- hbg
Grindavík, Keflavík og KR halda áfram að elta Íslandsmeistara Snæfells:
Meistararnir eru enn á toppnum
STERKUR Pavel Ermolinskij skilar alltaf sínu fyrir KR. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu
sterkan sigur gegn Fjölni, 86-69,
í tíundu umferð Iceland Express
deildar karla í körfubolta í gær,
en leikurinn fór fram í Grafar-
voginum.
Fjölnismenn voru með yfirhönd-
ina stóran hluta af leiknum en
gestirnir í Grindavík gjörsamlega
keyrðu yfir óreynda Fjölnismenn
í fjórða leikhlutanum og sigruðu
að lokum örugglega. Ryan Petti-
nella, leikmaður Grindvíkinga, var
atkvæðamestur hjá gestunum með
20 stig en Ægir Steinarsson skor-
aði 17 stig fyrir Fjölni.
„Þetta var erfiðari leikur en töl-
urnar gefa til kynna og við komum
hreinlega ekki tilbúnir til leiks,“
sagði Helgi Jónas Guðfinnsson,
þjálfari Grindvíkinga, ánægður
með sigurinn.
„Það hefur loðað aðeins við
okkur í vetur að mæta ekki til-
búnir í leikina. Í síðari hálfleikn-
um fórum við loksins að spila vörn
og sýnum fínan karakter hérna í
lokin. Mínir leikmenn eiga samt
sem áður mikið inni og geta spilað
mun betur“.
Grindvíkingar áttu í miklum
erfileikum með að koma boltan-
um í körfuna í fyrri hálfleiknum
en það breyttist heldur betur í
þeim síðari.
„Ég sagði við strákana í hálfleik
að ég vildi sjá öll skot syngja í net-
inu í seinni hálfleiknum því þetta
var alveg skelfilegt í byrjun leiks,“
sagði Helgi.
„Við bara sprungum í fjórða
leikhluta,“ sagði Örvar Kristjáns-
son, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn
í gær en hans menn voru að sýna
flott tilþrif framan af.
„Þetta var bara ekki nægilega
gott hjá okkur í kvöld en við verð-
um að halda út allan leikinn á móti
jafn góðu liði og Grindvík. Ég er
nokkuð sáttur við hvað strákarn-
ir mættu tilbúnir til leiks en ég er
hundfúll hvað við erum fljótir að
missa hausinn.
Grindvíkingar eru komnir með
frábært varnarlið og gerðu okkur
lífið leitt hérna í lokin, strákarnir
voru þvingaðir í allt of erfið skot,
sem í raun fór með leikinn,“ sagði
Örvar svekktur.
- sáp
Hið efnilega lið Fjölnis stóð lengi vel í sterku liði Grindavíkur en varð að játa sig sigrað að lokum:
Grindavík keyrði yfir Fjölni í lokaleikhlutanum
EKKERT GEFIÐ Fjölnismenn gáfu Grind-
víkingum ekki neitt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MÖGNUÐ TILÞRIF Leikmenn Grindavíkur og Fjölnis sýndu lipurleg tilþrif í
Grafarvoginum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI „Það er alltaf hiti sem
fylgir þessu, pústrar og svona.
Það gerir þetta bara skemmti-
legra. Það voru allir snarvit-
lausir í húsinu og eintóm ham-
ingja,“ sagði Gunnar Einarsson,
leikmaður Keflavíkur, eftir að
hans lið vann nauman sigur gegn
Tindastóli á heimavelli sínum og
krækti þar með í tvö stig í Iceland
Express deildinni.
Mikill hiti var í Sláturhúsinu og
til handalögmála kom milli leik-
manna seint í leiknum. Á loka-
sprettinum voru það heimamenn
sem reyndust sterkari og náðu því
að hefna fyrir tapið þegar þessi
sömu lið mættust á sama stað í
bikarnum um síðustu helgi.
„Þetta var ekki alveg að
ganga í byrjun seinni hálf-
leiks en við náðum að rífa
okkur upp úr því og klára
dæmið. Þetta var algjör
baráttusigur. Það er
bara ein keppni eftir hjá
okkur og þar stefnum við
að því að vera númer eitt.
Þetta var bara eitt skref í
áttina að þessu stóra mark-
miði,“ sagði Gunnar.
Það voru gestirnir frá Sauð-
árkróki sem byrjuðu leikinn tals-
vert betur og strax mátti skynja
talsverðan pirring meðal leik-
manna Keflavíkur. Stólarnir
höfðu sjö stiga forystu eftir fyrsta
fjórðunginn en heimamenn náðu
að taka sig saman í andlitinu í
þeim öðrum og leiddu í hálfleik
með sex stigum.
Gestirnir voru þó síður en svo
búnir að leggja árar í bát og bar-
áttan hélt áfram eftir hlé
þar sem ákefðar-
stig beggja liða
var ansi hátt.
Stólarnir
náðu að
endur-
heimta forystu
sína og eftir
það kom kafli
þar sem liðin
skiptust á að
leiða.
Munurinn
fyrir lokafjórð-
unginn var aðeins
eitt stig, Kefla-
vík í vil. Þrátt
fyrir góðan
stuðning
á pöllun-
um og fína
frammi-
stöðu
þurftu gest-
irnir að fara
tómhentir
heim því taug-
ar heimamanna
reyndust sterkari
í lokin. Hörður Axel Vilhjálmsson
og Serbinn Lazar Trifunovic fóru
þar fremstir.
„Við vorum okkar versti óvin-
ur í kvöld,“ sagði Helgi Freyr
Margeirsson, leikmaður Tinda-
stóls. „Við áttum í vandræðum
gegn svæðinu þeirra í lokin og
svo misstum við of mörg frák-
öst. Við unnum þá í frákastabar-
áttunni í síðasta leik ásamt því
að við tengdum saman góða vörn
og góða sókn en náðum því ekki
núna.“
Hitinn og pústrarnir í lokin
komu Helga ekki á óvart. „Það er
allt undir og auðvitað verða alltaf
pústrar í svona leik. Okkur finnst
stundum á okkur hallað en þetta
jafnast allt út yfir allan leikinn.
Þegar hormónarnir fara upp
verður þetta svona,“ sagði Helgi,
sem leit samt á jákvæðu hliðarn-
ar enda allt annað að sjá Tinda-
stólsliðið í dag en í byrjun móts.
„Við vorum mánuði á eftir
öðrum liðum í undirbúningi og
fengum lélega sendingu af útlend-
ingum. Við vorum ekki komnir
með tíu manna æfingar fyrr en
seint í september. Svo erum við að
aðlagast nýjum mönnum og þetta
tekur allt sinn tíma. Nú erum við
komnir til að vera og leiðin er
bara upp á við.“
elvargeir@frettabladid.is
Það voru allir snarvitlausir í húsinu
Keflvíkingar náðu fram hefndum gegn Tindastóli í gær er liðin mættust öðru sinni á skömmum tíma í
Sláturhúsinu í Keflavík. Leikur liðanna var jafn og spennandi en heimamenn reyndust sterkari að lokum.
MAGNAÐUR Hörður Axel Vil-
hjálmsson átti sannkallaðan
stórleik fyrir Keflavík í gær
og var aðeins einu frákasti
frá því að ná þrefaldri tvennu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL