Sameiningin - 01.07.1889, Qupperneq 1
Mánað'arrit til stuðnings lcirhju og kristindómi fslendinga,
gejið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. í Vestrheimi.
RITSTJÓRIJÓN BJARNASON.
4. árg. WINNIPEG, JÚLÍ, 1889. Nr. 5.
Hið 5. á r s þ i n g hins ev. lút. lcirkjufjelags Islernl-
inga í Vesturheimi kom saman í kirkju Argyle-safnaða í
Manitoha miðvikudaginn 19. júní 1<S89, kl. 10. f. h. Sam-
koman byi’jaði með opinberri guðsþjónustu. Fyrst var sung-
inn sálmurinn nr. 617, „Vjer komum saman á kirkjufund“.
því næst prjedikaði sjera Friðrik J. Bergtnann, og lagði
út af 1. Pjet. 2. 4—5. Að prjedikaninni lokinni var sung-
inn sálmurinn nr. 102, „Verði Ijós, verði hjer ljós.“ For-
seti kirkjufjelagsins, sjera Jón Bjarnason, las ];á upp bæn.
Erindsrekar safnaðanna og prestarnir lásu því næst upp-
hátt hina postullegu trúarjátning og faðirvor. þá setti for-
seti þingið f nafni föður, sonar og heilags anda.
því næst skýrði forseti frá nöfnutn safnaða þeirra
sem til heyra kirkjufjelaginu, og lýsti yfir þvi, að allir
aðalembættismenn fjelagsins væru viðstaddir. þar á móti
vantaði einn af varaembættismönnunum, sjera Magnús
Skaptasen. þrjá menn (Friðjón Friðriksson, P. S. Bardal
og Sigurð Christophersson) kvaddi hann í nefnd til þess
að veita kjörbrjefum erindsreka móttöku. Sú nefnd skýrði
innan skamtns frá því, að þessir prestar, embættismenn og
fulltrúar ættu sæti á kirkjuþinginu.
I. Prestar og embættismenn:
Sjera Jón Bjarnason, forseti kirkjufjelagsins; sjera Frið-