Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1889, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.07.1889, Blaðsíða 7
inga í Vesturheimi. Þó að nú sálnatala kirkjufjelagsins hafl að mun aukizt síðan í fyrra, há hygg jeg, að hún hafl naumast aukizt að sama skapi sem fólk af vorum þjóðflokki hefur á þessu siðasta ári fjöigað hjer í landinu. Og það bendir aptur á, að oss vantar nægi- lega krapta til að vinna meðal fólks vors fyrir það aðalendimark kirkjufjelagsins að safna íslendingum í landi þessu inn í þeirra eig- in lútersku kirkju. Þau tala átakanlega til vor nú þessi orð frels- ara vors: „Uppskeran er mikil, en verkamennirnir eru fáir“. Kirkju- fjelagið þarf endilega að sjá sjer fyrir fleirum hæfum verkamönnum fyrir málefni sitt hið allra bráðasta. Með nú verandi verkamannafæð fæ jeg ekki betur sjeð en að vjer liggjum undir í hinni kirkjulegu har- áttu vorri. Vjer þurfum nú þegar að fá nokkra nýja vel hæfa presta. Eu jafnframt er lifsspursmál að húa í haginn fyrir komandi tíð með því að hrinda málinu um stofnun æðri islenzks skóla (College) hjer í landi rösklega áfram. Og jeg vildi nú leggja það tii, að þetta kirkjuþing geri þetta skólamál vort að aðalmáli. Pjehirðir mun leggja fram skýrslu um fjárhag kirkjufjelagsins, og af henni verður þá sjeð, að hve miklu leyti þetta litla tillag til fjelagsins frá hinum einstöku söfnuöum, sem ákveðið hefur verið að þeir skyldu greiða, hefur greitt verið. Fyrir komandi ár tel jeg víst, að tekjur fjelagsins þurfl að aukast. Hinar standandi nefndir fjelagsins síðan í fyrra munu skýra þing- inu frá, hvað þær hafa hugsað og gert viðvíkjandi þeim einstöku málum, er þeim voru á hendur falin. Það hefur víst aldrei fyrr eins mikið verið tekið eptir kirkjufje- lagi voru heima á íslandi eins og einmitt á þessu siðasta ári. Það er nú greinilega komið fram, að hið kirkjulega starf vort hjer get- ur haft álirif á fólk í íslenzku kirkjunni heima. En slik áhrif þurfa að fara vaxandi, til þess að lieilir hópar af fólki voru ekki haldi áfram að koma hingað yflr um með algerðu kæruleysi fyrir og óbeit á því lífsspursmáli fyrir þjóðflokk vorn, sem kirkjufjelag vort hefur sett sjer að vinna fyrir og haida á lopti. Líklega hefur þó þetta síðasta ár verið vort mesta haráttuár. í baráttunní kennir veikleika vors; að minnsta kosti hef jeg aldrei betur en í síðustu tíð þreifað á því, hve lítið jeg dugi í baráttunni fyrir hið sameiginlega velferðarmál vort. En jeg veit af kærleiks- krapti guðs yflr oss í baráttu vorri og veikleika vorum. Og í trúnni á þann krapt er oss óhætt að halda áfram baráttunni i Jesú nafui. Fundi slitið kl. 12£ e. h. Eptir kl. 2 sama dag flutti sjera Jón Bjarnason fyr- irlestur um íslenzJcan nihilismus. Eptir fyrirlesturinn urðu umræður, sem margir tóku Jrátt í. Voru allir ræðumenn sjera Jóni Bjarnasyni þakklátir fyrir fyrirlesturinn, og óskuðu að hann yrði prentaður, Kl. C var umræðum lokið.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.