Sameiningin - 01.07.1889, Qupperneq 18
—82—
til kl. 4, uröu á eptir fyrirlestrinum, og tóku prestarnir
einir þátt í þeirn. ]reir þökkuðu fyrirlesaranum fyrir það
verk, sem hann heföi þar leyst af hendi.
6. fuqdur. Föstud. 21. júní, kl. 44 e. h.
Allir á fundi, nema Sigtr. Jónasson ókominn. Skólamálið
var tekið fyrir, en samkvæmt beiðni nefndarinnar í málinu
var því frestað til óákveðins tíma. — 'Barnablaðsmálið tekið
fyrir, og 5 nrenn kvaddir í nefnd: Sjera Stgr. þorláks-
son, Arni Friðriksson, P. S. Bardal, Jón Blöndal og Sig.
Christopherson. — Tekið til umræðu mál um takmörkun á
rjetti kirkjuþings til að leggja kirkjufjelagsgjald á söfn-
uðina; vísað til nefndar þeirrar sem áður hafði verið seti
til að íhuga tillöguna um lagabrcytingar. Að síðustu tek-
ið fyrir kirkjuagamál, og fimm menn kvaddir í nefnd: E.
H. Bergman, Sveinn Sölvason, Pálmi Hjálmarsson, P. S. Bar-
dal og Pjetur Pálsson.
Fundi slitið kl. 6 e. h.
7. "furjdur. Föstud. 21. júní, kl. 8. e. h.
Allir á fundi, nema Arni Friöriksson fjarverandi og
Sigtr. Jónasson ókominn. Nefndin í kirkjuagamálinu lagði
fram svo hljóðandi álit:
„Nefndin í kirkjuagamálinu hefur nú yfirvegað það mál,
og sjer hún ekki nauðsynlegt fyrir kirkjuþingið að taka
það til frelcari meðferðar, þar eð reglur þar að lútandi eru
skýrt teknar fram í frumvarpi til safnaðarlaga, sem prent-
að er í „Sam.“ nr. 9, 2. árg. í -3. og 8. gr. sbr. við 5. gr.
grundvallarlaga kirkjufjelags vors, um frelsi safnaðanna í
þeirra cigin málum.
Enn fremur ráðleggjum vjer að söfnuðir kirkjufjelagsins
hætti að viðhafa orðið kirlcjuagi“.
Fyrri grein nefndarálitsins var samþykkt, en síðari
greinin felld.
Nefndin í prestsleysismálinu lagði fram álit sitt. Eptir
nokkrar umræður var málinu vísað aptur til nefndarinnar
til frekari undirbúnings.—Fundi slitið kl 10| e. h..
8. fuqdur. Laugard. 22. júní, kl. 9 f. h.
Sungið fyrsta og síðasta vers af sálm. 642. Sjera Fr.