Sameiningin - 01.07.1889, Qupperneq 20
—84—
sje falið á hendur að íhuga vandlega hreytingaruppástung-
ur þær, er erindsrekinn flutti inn á þingið, iita Norður-
Yíðinessöfnuði um málið svo fljótt sein skeð getur, og að
lokum búa það undir næsta kirkjuþing.
Vjer viljum virðingarfyllst ráða þinginu til þess að fela
hinni standandi nefnd til meðferðar og undirbúnings til
næsta kirkjuþings málið um takmörkun á kirkjufjelagsgjaldi.
Út af ósk erindsrekans frá þingvallasöfnuði um það,
að ágrip af árlegum reikningum kirkjufjelagsins sje prent-
að í „Sam.“, leyfum vjer oss að mæla með því að reikn-
ingar kirkjufjelagsins verði prentaðir eins og þeir voru
lagðir fyrir kirkjufjelagið af fjehirði, yfirskoðaðir af revi-
sorunum, með þeim athugasemdum, er þingið kynni við þá
að gjöra“.
Nefndarálitið samþykkt. — Standandi nefndin í skóla-
málinu skýrði frá gerðum sínum. þrír menn kvaddir í
nefnd til að íhuga málið á þinginu: Sigtr. Jónasson, Ja-
kob Eyfjörð, Arni Friðriksson. — Samþykkt uppástunga um
að halda fund næsta sunnnudagskvöld.
Fundi slitið kl. 12 á hádegi.
Eptir kl. 2 flutti Einar Hjörleifsson fyrirlestur: Iívers
vefjna eru svo fdir meff? sem inngang að almcnnum um-
ræðum. jiær umræður stóðu ytír til kl. 0, og svo frá kl.
74 til kl. 10 um kveldið.
9. fundur. Sunnud. 23. júni, kl. 7£ e. h.
E. H. Bergman og Jóhann Briem fjarverandi. Gerðabók
síðasta fundar samþykkt. Nefndin í málinu um trúarboð
presbyteríananna lagði fram álit sitt á þessa leið:
„þar eð enn er ókomið endilegt svar frá Home mission
nefnd presbj’teríönsku kirkjunnar í Canada upp á áskorun
þá, er sjera Friðrik J. Bergmann hefur sent henni út af
árásum presbyteríana í Winnipeg á vora kirkju í þessum
parti landsins, þá vitum vjer ekki enn, hvort hinni svo
kölluðu Manitoba College Mission verður framvegis haldið
áfram í nafni presbyteríönsku kirkjunnar yfir höfuð. En
þar eð vjer búumst við, að dr. Bryce og hatis fylgifyskar
láti sjer ekki segjast, þó að hans eigin kirkjudeild hjer