Sameiningin - 01.07.1889, Síða 25
—89—
Brandon-söfnuöur 46 )) 26 „ „ 72
Lincoln 85 )) 78 „ „ 163
St. Páls „ 51 )> 57 „ „ 108
Vesturh. „ 46 )) 36 „ „ 82
Marshall 24 )> 16 „ „ 40
2709 1588 4297
Aths. 4 síðasttöldu söfnuðirnir eru ekki í kirkjufje-
laginu, en þeir eru taldir hjer með, af því að prestur
þeirra, sjera Steingr. þorláksson er ineÖlimur þess. * merk-
ir, aö söfnuöurinn hafi ekki sent neina fólkstölu-skýrslu í
þetta sinn; fyrir aptan nöfn þeirra safnaöa stendur safn-
aðarmeðlima talan, eins og hún var auglýst í fyrra, þeg-
ar kirkjuþingið var haldið, nerna Victoria-safnaðarins, sein
ekki var þá í kirkjuljelaginu. Við tölu meðlima Syðri-Víði-
ness-safnaðar er þess og gætandi, að hann og Nyrðri Víði-
ness-söfnuður voru í fyrra einn söfnuönr, sem lijet Víöi-
ness-söfnuður. þar sem nú Syðri Víðiness-söfnuður sendi
engar skýrslur í þetta sinn, varö að eigna honum meðlima-
tölu Víðiness-safnaðar þá í fyrra, að frádreginni meðlima-
tölu Nyrðri V íðiness-safnaðar.
þá var lagt fram svar íslen/.ku safnaðanna í Minn-
esota upp á ávarp síðasta kirkjuþings til þessara safnaða,
Og var það þannig:
„Mínneota, 9. jdni, 1889.
Heiöruöu prestar og fulltrúar hins evangeliska lúterslca
kirkjufjelags íslendinga í Vesturheimi !
Um leið og vjer úskum yður lukku og blessunar í
framsókn yðar fyrir þeim mikilvæga starfa, sem þjer hatið
tekizt á hendur fyrir þjóðflokk vora, þá hljótum vjer,
þrátt fyrir ávarp yðar frá síðasta ársþingi, að gefa yður
svolátandi svar:
Sameiningarmálið hefur verið haft til meðferðar í söfn-
uðum vorum allt frá því er kirkjufjelagið hóf starfa sinn,
og einkum síðan ávarpið kom frá yður; samt sem áður
eru tiltölulega fáir í söfnuöum vorum, sem þessu máli eru
verulega hlynntir, svo vjer sjáum oss ekki fært að leita
inngöngu í kirkjufjelag yðar nú þegar.
J. JI. Frost, Jóhtinn Pjetwrss,, Higurbjörn Siffitröss., Kristinn S. Þórðars.“