Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1889, Qupperneq 31

Sameiningin - 01.07.1889, Qupperneq 31
—95— síðan aS Lyrjað var á þessum ofsóknum, sem smásaman hafa harðnaö. Nýlega hefur komið hraðfrjett frá St. Pjeturs- borg, sem segir, að stjórnin hafi. gersamlega svipt lútersku kirkjuna rjettinum að vera til á Rússlandi. Samkvæmt seinustu skýrslum rússnesku kirkjunnar frá 1885 voru 2,950,000 prótestantar á Rússlandi og meginið af þessari tölu eru Lúterstrúarmenn. Fylkin við Eystrasalt — Kúr- land, Estland og Lífland, hafa öll til samans 2,500,000 íbúa, og eru þeir nálega allir Lúterstrúar. Stjórn Rússa hefur gert hverja tilraunina á fætur annarri til að kyrkja þjóðernistilfinning fólks þessa, sem nálega allt er af þýzk- um uppruna, og þetta síðasta grimmdar-bragð, að lýsa lút- ersku kirkjuna rjettlausa þar í landi, er einn leikurinn í því mannúðarlausa tafli. Menn vonast eptir mótmælum frá Berlín, þar sem þessi yfirlýsing gengur út yfir ríkiskirkju Prússa. Að öðru leyti vita menn ekkert, hvernig þessi yfirlýsing liefur hljóðað. Samt er haldið, að rjettleysi þetta muni vera innifalið í því, að lúterska lcirkjan sje svipt eignum sínum, kii'kjum, skólum, spítölum og öðrum fasteignum, og um leið fyrirmunað framvegis að eiga nokkuð. — Nítjándu öldinni er hrósað fyrir mannúð, jafnrjetti og mannkærleik, og þó er þetta villumannalega níðingsverk framið af einu stórveldi Norðurálfunnar nú á síðustu áratugum aldarinn- ar. En sá, sem hefur látið gott leiða af svo mörgum grimmum ofsóknum, mun á sínum tíma gefa þessu lúterska fólki rjettindi sín aptur. Eins og mörgum af. lesendum vorum mun vera kunnugt, gjöreyddist skóla- lrygging Ncrsku Sýnódunnar, Luther College í Decorah, Iowa, í vor af eldi. En áöur en kólnaö var i rústunum, var fariö aö ráðgera að byggja skól- ann upp aptur. Margir af bæjum J>eim, sem eru aðalstöðvar Norðmanna suður frá, hafa gert hvert höfðingsboðið í kapp við annað, svo framarlega skólinn yrði reistur ]>ar. Bærinn La Crosse í Visconsin liauð 30,000 dollara í peningum og 20 ekrur af landi, sem var í rnjög háu verði. Iíöfuðstaður- inn í þessu sama ríki, Madison, gerði einnig framúrskarandi tilboð. Bærinn Decorah og hjeraðið ]>ar í kring, sem svo lengi hafði notið skólans, bauð 20,000 í peningum, ef hann yrði byggður á sínum gömlu stöðvum. St. Paul Park, 9 mílur frá St. Paul, bauð 30 ekrur af æskilegu Iandi, 100 ekrur af landi, sem skólinn mundi geta selt við háu verði eptir fá ár, og J>ar að auki 23,000 dollars í peningum. Fleiri boð hafa verið gerð, en J>etta síðasta hef- ur verið þegið, eptir langa yfirvegun, af 29 rnanna nefnd, sem kjörin var til

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.