Sameiningin - 01.09.1898, Page 2
—98
þessi kærleikr er samt ekki undirstaða vors trúarlífs,
heldr ávöxtr þess. „Ávöxtr andans er kærleiki", segir postul-
inn. Trúin er grundvöllr þeirrar andlegu byggingar, sem maðr
reisir með lífi. sínu. Hún samtengir lijarta mannsins við guð al-
máttugan, en „guð er kærleikrinn". Um leið og vér þess vegna
£áum guð í hjartað veitist oss kærleikrinn. Vér £áum kraft,
sem heiðnir og vantrúaðir menn ekki hafa. Kærleikrinn er
hinn dýrðlegi ávöxtr vorrar kristnu trúar. þess vegna talar
Jesús um kærleikann sem hið nýja hoðorð og sem einkenni á
sinum lærisveinum.
Jesús Kristr hefir líka sjálfr sýnt heiminum, hvað kærleikr
er, með lífi sínu meðal mannanna og dauða á krossinum. því
„meiri elsku hefir enginn en þá, að hann láti líf sitt fyrir vini
sína.“ Allar hans gjörðir renna saman í eina mynd, hina áhrifa-
mestu mynd af kærleikanum, sem mennirnir geta virt fyrir sér.
það er hin sýnilega og áþreifanlega hlið hins kristilega
kærleika, eins og hann kemr fram í líknarstarfsemi kirkjunn-
ar, sem nú liggr fyrir oss. Til þess að binda hugsanir vorar
við eitthvað ákveðið skulum vér framsetja þrjár spurningar og
að einhverju leyti reyna að svara þeim.
I.
Hvað hefir kirkjan á liðinni tíð gjört til að sýna kærleik
sinn í verkinu ?
Manneðlið heimtar ætíð hið sýnilega og áþreifanlega. þess
vegna bjúggu menn sér til guði, sem þeir gæti séð og þreifað á.
Af þeirri ástœðu veifa menn reykelsi, búa til líkneski og
dýrka helga dóina í kaþólsku kirkjunni. Af sömu ástœðu
heimtar reformeraða kirkjan, að hver einasti maðr sýni trú
sína af einhverjum tilteknum, ákveðnum verkum, t. d. að forð-
ast vínnautn, tóbaksbrúkun og ósœmilegt orðbragð. Vegna
þess líka eru íslendingar stöðugt að staðhœfa, að siðferðið eitt
sé vert að taka til greina, en að trúin sé einskisverð. þetta
sama manneðli kemr einnig fram í því, að vilja aldrei aðhyllast
neina nýja andlega stefnu fyrr en hún er búin að sanna rétt
sinn til að lifa með sjáanlegum áhrifum. Kristindómrinn er
liáðr sama lögmálinu. Hans áhangendr verða stöðugt að vera
íciðubúnir að sýna trú sína af verkunum. .