Sameiningin - 01.09.1898, Blaðsíða 3
—99—
Hinir fyrstu kristnu menn sýndu svo vel trú sína af verk-
unum, að heiðingjar dáðust að og sögðu : „Sjá, hvernig hinir
kristnu elska hver annan það hefir veriö sagt af manni, sem
þekkir vel til þessara mála, að kristindómrinn hafi í fyrstu
sigrað heiðindóminn eins mikið með því, sem hann gjör&i, eins
og með því, sem hann sagffi
Undir eins og kristinn söfnuðr var myndaðr í Jerúsalem
var unnið að því, að veita fátœkum, sjúkuin og sorgmœddum
alla þá aðstoð, hjúkrun og huggun, sem frekast var unnt. þeg-
ar söfnuðrinn stœkkaði, voru sérstakir menn, liinir sjö djáknar,
kjörnir til að sinna líknarstarfseminni sérstaklega. Konur eins
og Tabíta. Lydía, Priskilla og Febe voru starfandi í sömu átt.
Postulinn Páll var stöðugt líknandi um leið 0" hann var kenn-
andi. I bréfum sínum hvatti hann mjög til kærleiksríks lífernis,
og sjálfr sýndi hann í verkinu, hve hlynntr hann var þessari
starfsemi, t. d. með þeirri innilegu umhyggju, sem hann bar
fyrir hinum tatœka söfnuði í Jerúsalem. Oftar en einu sinni
fœrði hann þeim stórgjafir.. sem hann hafði safnað í söfnuðum
þeim, er hann myndaði á kristniboðsferðum sínurn.
það voru samt fleiri en leiðtogarnir, sem sinrrtu líknar-
starfseminni á þessu tímabili. Kristnir menn almennt álitu
það skyldu sína, að veita brœðrunum alla hjástoð, sem unnt
var. Hús þeirra og hjörtu stóðu stöðugt opin fyrir þeim, sem
bágt áttu.
þeir, sem á ofsóknartímum sátu í fangelsum, nutu allrar
þeirrar umönnunar, sem mögulegt var að veita. Með þræla var
sérstaklega vel farið, og í söfnuðinum stóðu þeir jafnir hús-
bœndum sínum. þegar stundir liðu fram, varð meir og meir
af því, að söfnuðirnir hefði sérstaka embættismenn til þess að
hafa umsjón yfir líknarstarfseminni. Voru það aðallega djákn-
arnir, bæði kvenfólk og karlmenn, sem inntu slíkar skyldur
af hendi.
Eftir að kristindómrinn liafði verið lögleiddr í hinu róm-
verska ríki á dögum Konstantíns fóru meir og meir að rísa upp
margvíslegar líknarstofnanir, sérstaklega þó sjúkrahús. Kirkju-
faðirinn Basíl mikli kom á fót ákaflega mikilli líknarstofnan
i bœnum Sesarea, og varði hann öllum sínum auði í þarfir liinna
nauðstöddu. Krysostomus (Jóhannes gullmunnr) stofnaði