Sameiningin - 01.09.1898, Side 8
—104—
var drengjunum skift niðr í smáflokka, og hafði hver flokkr
sitt litla heimili út af fyrir sig, en því var stýrt af heimilis-
föður og móður. Wichern sjálfr var fyrsti heimilisfaðirinn og
móðir hans fyrsta heimilismóðirin. þegar drengirnir fjölguðu,
varð líka að fjölga þeim, sem stýrðu. Til þess starfs voru valdir
menn, sem höfðu sérstaka hœfilegleika til þess ásamt sérstökum
undirbúningi. Yoru það oft kvæntir menn, sem höfðu konur
sínar sér til aðstoðar. Umfram allt var reynt að sýna drengj-
unum eins mikinn föðurlegan os; móðurlegan kærleika eins og
«1 o o O
unnt var. Fyrirkomulagið er hið sama enn.
Iðjuleysi er i þessari stofnan álitið eitt hið skaðlegasta
fyrir unglingana; er þess því gætt, að þeir hafi ætíð eitthvað að
gjöra. Meðal annars eru þeim kenndar ýmsar handiðnir, og
hafa þeir meðal annars í gangi mikilhœfa prentstofnan.
„Rauhe Hause“ hefir verið til fyrirmyndar mörgum sams-
konar stofnunum, cr síðan hafa komizt á fót á þýzkalandi og
víðar.
þetta og margt fleira var verk Jóhanns Wicherns, og
það ásamt því, sem á undan er sagt í þessum kafla, er dálítið
sýnishorn af því, hvernig kirkjan fer að sýna kærleik sinn í
verkinu á yfirstandandi tíð.
III.
Hvað getr svo vort eigið kirkjufélag gjört í þessu tilliti ?
Vér getum ekki að svo stöddu stofnað sjúkrahús eða mun-
aðarleysingjaheimili. En fyrst og fremst getum vér styrkt
slíkar stofnanir, er vér sjálfir njótum góðs af, meðal annars
sjúkrahúsin, sem svo margir íslendingar verða að sœkja; og
svo getum vér gjört það, sem brœðrnir á hinum fyrstu öldum
gjörðu áðr en nokkrar líknarstofnanir komu upp.
Af andstœðingum kirkju vorrar er því stöðugt slegið fram-
an í oss hér vestra, að vér séum ekkert betri í líferni voru en
þeir, sem ekki standi í neinni kirkju. „Sýn mér trú þína af
verkum þínum“ eru hin egnandi orð, sem þeir sífellt hrópa í
eyru vor. Með öðrum orðum: þeir mana oss til að sanna, að vor
trú sé betri en þeirra trúleysi. þar sem svona stendr á, hlýtr
hver hugsandi sannkristinn maðr í kirkjufélagi voru að sjú, hve
nauðsynlegt það er að sýna, að hver einasti sannr lærisveinn
Jesú Krists er merkisberi kærleikans. Eins og kristindómrinn