Sameiningin - 01.09.1898, Page 12
—ÍOS
grímr flutti í kirkjunni eftir að eg hafði lokið prédikan minni
við hina áminnztu guðsþjónustu, lagði hann mönnum meðal
annars þau orð á hjarta. Organ var flutt í kirkjuna og á það
leikið samfara söngnum við þetta trekifœri. Guðsþjónustan var
vel viðunanlega sótt. Seinna um kvöldið skírði eg tvö börn í
húsi einu spölkorn fyrir norðan kirkjuna. þarskildum við séra
Steingrímr. Hann fór norðr á eyjarenda til að vera þar til
taks, er gufubátrinn um nóttina kœmi að norðan. Og komst
hann næsta dag með bátnum til Selkirk, flutti þar fyrirlestr
sama kvöldið í kirkjunni ug prédikaði sunnudaginn næsta bæði
að morgni og kvöldi. A leiðinni suðr heim til sín oftir helgina
prédikaði séra Steingrímr í íslenzku kirkjunni í Pembina — á
þriðjudagsk völdið.
Sama dag, sem gufubátriun fór með séra Steingrím til Seb
kirk.lagði eg lika á stað til ferðar burt úr eynni til lands, og var
ferðinni lieitið upp í íslendingafljót. Hr. Einar þorkelsson veitti
mér far á góðum seglbáti. En er vér vorum komnir norðr og
og vestr fyrir eyjarendann, kom Jogn, og biðum vér leiðis alian
síðara hluta dagsins og nóttina næstu í húsi einu á vestrströnd
cyjarinnar norðarlega. Sjóferðin gekk vel eftir það. Eklci
komst eg þó upp til Lunds við Islendingaftjót fyrr en að áliðn-
um degi á laugardag. Hafði eg helzt hugsað mér að prédika ekki
þar við Fljótið næsta sunnudag, heldr á einhverjum öðrum stað
þar í grenndinni, annaðhvort suðr í Breiðuvík, eða uppi í Efri-
byggð — lengi’a upp með Fljótinu, eða norðr á ísafold — ný-
byggðinni norðr frá Fljótsósnum. En af því svo mjög var liðið
á laugardaginn, er eg komst í land, sá eg, að tíminn myndi of
naumr til að senda messuboð til þessara staða. Svo eg afréð, að
halda kyrru fyrir við Fljótið neðra — í Brœðrasöfnuði — fram
yfir helgina. Bjóst eg þá við að hlýða messu hjá séra Oddi V.
Gíslásyni þennan sunnudag, 28. Agúst, þar í skólahúsinu í
Lundi. ]rví eg vissi, að hann ætlaði að prédika þar þá. Hann
var ekki heima, er eg kom, og kom hann ekki heim fyrr en seint
um kvöldið. En er eg hitti hann á sunnudagsmorguninn, bað
hann mig að prédika í sinn stað, og þaö gjörði eg. Að guðs-
þjónustu aflokinni gjörði eg mönnurn meðnokkrum orðum grein
fyrir þessari ferð minni, og tók eg fram, bæði þar og annars-
staðar í Nýja íslandi, þar sem eg prédikaði, að eg væri ekki