Sameiningin - 01.09.1898, Síða 13
—109—
kominn til þess aS eiga neitt viS kirkjumál byggSaríags þessa
hið ytra, heldr eingöngu til þess að heilsa upp á menn í Jesú
nafni og eftir mætti að hvetja menn til að glœöa hjá sér ljós
kristinnar trúar í hjörtunum og húsunum. — Næsta dag, mánu-
dag, fór eg fótgangandi norðr í ísafoldarbyggð, og fór hr. Bjarni
Marteinsson, sem stýrir sunnudagsskóla Brœðrasafnaðar og er
einn af safnaðarfulltrúunum þar, með mér norðr þangað. Messu-
boð voru send daginn áðr, en þau komust ekki í nærri því öll
húsin. Guðsþjónustan í ísafoldar skólahúsi þennan dag varð
því fremr fámenn. Eitt barn skírði eg þar. — A þriðjudag fór
eg ríðandi suðr í skólahús Breiðvíkinga, sem nefnist Baldr, og
prédikaði þar. Við þá guðsþjónustu voru 3 til altaris. — Á
miðvikudag prédikaði eg í Geysis skólahúsi í Efri-byggö. þar
telr kirkjufélagið einn söfnuð sér tilheyranda — Fljótshlíðar-
söfnuð; en hann hefir að undanförnu nálega legið í dái. En það
heyrði eg á mönnum þar, að fegnir vildu þeir, að eitthvað væri
þar gjört til þess að glœöa kirkjulegan félagsanda. Og góða
von hefi eg um, að sunnudagsskóli komist þar á hið fyrsta.
Skólakennarinn þar, hr. J. Magnús Bjarnason, er slíkri starf-
semi mjög hlynntr. Sama löngan er lifandi hjá ýmsum góðum
mönnum í Breiðuvíkr byggðinni. Frá Geysi fór eg niðr með
Fljótinu, og hefir mér aldrei áðr þótt plássið þar eins fagrt.
Á fimmtudaginn ók hr. Gunnsteinn Eyjólfsson með mig suðr
að Hnausum í Breiðuvík. En þaðan liélt eg degi síðar ásamt
Bjarna Marteinssyni suðr í Árnesbyggð. Á þessu svæði er smá-
söfnuðr einn kirkjufélaginu tilheyrandi—Árnessöfnuðr. Flutti eg
þar þann dag tvær guðsþjónustur, sína í hvoru skólahúsi þeirrar
byggðar, og skírði börn á báðum stöðunum. Héldum við svo á
laugardaginn áfram reiðinni suðr frá Dagverðarnesi að Girnli.
þar prédikaði eg á sunnudaginn 4. Sept. í kirkjunni. Og var
býsna fjölmennt við þá guðsþjónustu. Tvö börn skírði cg þar.
Að guðsþjónustu lokinni skildi Bjarni Marteinsson við tnig og
liélt norðr heim til sín. Kirkjan á Gitnli er eina kirkjan á megin-
landi Nýja íslands, úr sama efni gjör og Mikleyjarkirkja, og
ekki óálitlegt hús tilsýndar; en innan í hana hefir aldrei verið
smíðað neitt. því áðr en farið væri við það verk að eiga leyst-
ist söfnuðrinn, sem komið hafði húsi þessu upp, í sundr. Trúar-
fráhvarf séra Magnúsar Skaftasens iciddi til þeirrar cyðingar,