Sameiningin - 01.08.1900, Qupperneq 8
88
tir eru fleiri en í fyrra. Tala sunnudagsskólanna er sama sem í fyrra
og nemendr álíka maigir.
p.t. Selkirk, Man., 21. Júní 1900.
Björn B. Jónsson,
skrifari kirkjufélagsins.
Séra Rúnólfr Marteinsson, formaðr nefndarinnar í missí-
ónarmálinu, lagði fram svo látanda nefndarálit:
1. V'ér ráðum til þess, að prestarnir séra Friðrik J. Bergmann, séra
Björn B. Jönsson, séra Jónas A. Sigurðsson og séra Jón J. Clemens sé
beðnir meö samþykki safnaða sinna að hafa á hendi á næstkomanda áii
missíónarstarf á svipaðan hátt og í fyrra, að svo miklu leyti, sem því
verðr við komið og þeir álíta það gagnlegt.
2. Vér ráðum til þess, að séra N. Steingrímr þorláksson sé heðinn,
ef söfnuðr hans er því samþykkr, að takast á hendr missíónarstarfsemi
fyrir kirkjufélagið um þriggja mánaða tíma á þessu ári og næsta ári
fram að næsta kirkjuþingi, og sé honum fyrir það borgaðir 50 doll. um
hvern mánuð auk ferðakostnaðar úr kirkjufélagssjöði.
3. Vér ráðum til þess, að séra Oddi V. Gíslasyni sé veittir 50 dolh úr
kirkjufélagssjöði til styrktar missíónarstarfi hans, og sé hann heðinn að
ferðast um byggðir og bœi meðfram Manitoba- og Norðvestr-járnhraut-
inni innan takmarka Manitoha, sérstaklega hyggðirnar á vestrstt önd
Manitoba-vatns; enn fremr ferðist hann til Winnipegosis, Swan B-iver,
Keewatin, Rat Portage, o. s. frv.
4. Vér ráðum til þess, að séra Stefáni Pálssyni, nú sem stendr þjón-
anda presti í New Rochelle, N. Y., sé sent köllunarbréf og hann heðinn
að gjörast missíónar-prestr kirkjufélagsins frá 1. Febrúar 1901, með 600
doll. árslaunum auk ferðaltostnaðar, meðan hann þjönar sem missíónar-
prest r.
5. Til þess að framfylgja tillögu þeirri, sem tekin er fram í fjörða
lið þessa nefndarálits, og einnig til þess að fá guðfrœðisstúdent Gunn-
laug .Tónsson í Philadelphia, Pa , til þess síðar að ganga í þjönustu
kirkjufélags vors, felum vér stjórnarneínd kirkjufélagsins að hafa á
hendi bréfaskriftir við þessa tvo menn, og ef nauðsynlegt er senda mann
austr til þeirra í þeim tilgangi að sannfœra þá um nauðsynina á því, að
þeir gangi i þjónustu vora, og enn fremr til þess að sannfœra forstöðu-
mann prestaskölans í Philadelphia um rétt vorn til vorra eigin manna
og nauðsyn á starfsmönnum hjá oss á yfirstandandi tíð, og sé stjörnar-
nefnd kirkjufélagsins gefið vnld til að vei ja fé úi kirkjufélagssjóði, sem
þarf, til að koma þessu í framkvsemd.
6. Óskum um prestsþjönustu frá Alberta-söfnuði og St. Jóhannesar-
söfnuði í Laufássbyggð getum vér ekki svarað á annan hátt, vegna
skorts á starfsmönnum nú sem stendr og óvissu viðvíkjandi því atriði í
framtíðinni, en að fela forseta kirkjufólagsins að nota þá krafta, sem
kirkjufélagið hefir ráð á, tii missíönar í þarflr þeirra, að svo miklu leyti,
sem œskt er og honum er unnt.
7. Vér ráðum til, að forseta sé falið að hafa á hendi aðal-umsjón
með missíónar-starfseminni.