Sameiningin - 01.08.1900, Blaðsíða 11
9i
Við nefndarálitið gjörði Stefán Eyjólfsson þá breytingar-
tillögu, að árslaun kennarans væri $1000, í staðinn fyrir $900.
Klemens Jónasson studdi. Samþykkt.
Jósef J. Myres gjörði þá viðauka-tillögu, að fáist ekki séra
Friðrik J. Bergmann til að taka köllun þingsins, sé skólamáls-
nefndinni falið að reyna að fá annan mann til starfsins. Dr.
M. Halldórsson studdi þá tillögu, og var hún samþykkt.
Nefndarálitið var svo með áorðinni breyting borið undir
atkvæði og samþykkt í einu hljóði.
Stefán Eyjólfsson lagði til, að kosnir væri tveir menn til
að yfirskoða reikninga skólasjóðs. Jón þórðarson studdi til-
löguna, en málinu var frestað.
Fundi slitið.
11. fundr, 25. Júní kl. 9 f. m.
Fyrst var sunginn sálmrinn nr. 512; síðan las séra Jón
J. Clemens kafla úr ritningunni og flutti bœn.
Fjarverandi voru séra Friðrik J. Bergmann, séra Jónas
A. Sigurðsson, séra Rúnólfr Marteinsson, séra Oddr V. Gísla-
son, Stefán Eyjólfsson (farinn af þingi), Jóhannes Einarsson
og Gunnlaugr E. Gunnlaugsson.
G. B. Björnsson bar fram tillögu um,að kosning yfirskoð-
unarmanna skólasjóðs-reikninganna væri frestað j?ar til eftir að
skólamálsnefndin væri kosin. Stutt og samþ.
Tómas Halldórsson lagði fram yfirskoðaða reikninga
,,Sameiningarinnar“. Agrip þeirra er þetta :—-Tekjur á árinu
$484.80; útgj. borguð $484.80 (þar af prentkostnaðr $426.70);
skuldir alls $28.62 (þar af við prentfélag ,,Lögbergs“ $23.12).
Utistandanda á blaðið um $1,500.
Samkvæmt tillögu Bjarna Jones, studdri af Jóni þórðar-
syni, voru reikningar ,,Sam. “ samþykktir.
Bjarni Jones lagði til og G. B. Björnsson studdi, að
skólamálsnefndin frá síðasta ári (Magnús Paulson, séra Björn
B. Jónsson, séra Jónas A. Sigurðsson, Sigtryggr Jónasson
og Friðjón Friðriksson) væri endrkosin. Tillagan var sam-
þykkt í einu hljóði.
Guðmundr P. þórðarson kom með tillögu um, að nú