Sameiningin - 01.08.1900, Blaðsíða 15
9$
Jón Bjarnason lagöi til, að afskrift af þeim væri send biskupi
Islands, og var þaS samþykkt.
þá samþykkti þingiö að taka á móti boðum frá söfnuðum
um að hafa hjá sér kirkjuþing næsta ár.
Kristján Sigmar bauð, að þingið sé haldið í söfnuðunum
í Argyle; dr. Móritz Halldórsson, að það sé haldið að Garðar,
og Benedikt Frímannsson, að það sé haldið að Gimli.
Séra Jón J. Clemens bar fram tillögu, sem Guðmundr P.
þórðarson studdi, um að boðið frá Gimli væri þegið. Samþ.
Séra Björn B. Jónsson lagði til, að þeim Bjarna Jones
og Jóni A. Blöndal væri falið að ákveða útgjöld kirkjufélags-
ins fyrir næsta ár. Stutt og samþykkt.
Fundi slitið.
12. fundr, sama dag kl. 8 e. m.
Sunginn sálmrinn nr. 259. Fjarverandi voru séra Rún-
ólfr Marteinsson, Stefán Eyjólfsson og Jóhannes Einarsson.
T'rúmálsunirœður.
Forseti sagði, að nú lægi fyrir hinar áðr auglýstu umrœður
um trúaratriðið ,,réttlæting af trúnni“. Séra Jónas A. Sig-
urðsson hóf umrœðurnar með langri inngangsrœðu. Auk hans
tóku þessir þátt í umrœðunum: séra N. Steingrímr þorláksson,
Sveinn Sölvason, séra Friðrik J. Bergmann, séra Björn B.
Jónsson, Gunnlaugr E. Gunnlaugsson, Jóhann P. Sólmunds-
son (með sérstöku leyfi þingsins), Gunnlaugr Pétrsson og séra
Jón Bjarnason.
Að loknum umrœðunum var aftr gengið að starfsmálum
þingsins.
Séra N. Steingr. þorláksson lagði fram svo látandi skýrslu
um sendiferð hans á Gen. Council-þingiö síðastliðið haust:
Samkvæmt því, sem mér var fyrir lagt á síðasta kirkjuþingi, mœtti
eg sem fraternal delegate kirkjufélagsins á þingi Gen. Gouncils, er haldið
var í Chicago síðastliðið haust, síðustu dagana af September og fyrstu
dagana af Október. Sat egnær því allt þingið út, ásamt skrifara kirkju-
félagsins, séra Birni B. Jénssyni, er slóst í förina með mér. Var mér
sönn ánœgja að sitja á þessu þingi, og gafst mér tœkifœiá til að kynnast
dálitið nákvæmar leiðandi mönnum Gen. Oouncils og málmm þess betr
en áðr.
Á morgunfundi annars dags var mér leyft að ávarpa þingið, og