Sameiningin - 01.08.1900, Page 10
90
rik J. Bergmann, séra Oddr V. Gíslason, séra Jónas A. Sig-
urðsson og séra Rúnólfr Marteinsson.
Skólamáliff tekið fyrir.
Séra Jón Bjarnason lagði fram fyrir hönd nefndarinnar,
er áðr á þinginu var sett í málið, svo hljóðanda nefndarálit:
Yér, sem í gær vorum kvaddir í nefnd hér á kirkjuþingi til þess að
íhuga skölamál kirkjufélagsins, höfum sameiginlega komizt að svo lát-
andi niðrstöðu:
Það dugir ekki að halda málinu framvegis í því horfi, sem gjört
hefir verið á kirkjuþingum nú um nokkur ár. Það þarf að taka upp á
einhverju nýju til þess að hjálpa þvi við í framtíðinni. Og er oss nú
únœgja að geta þess, að með tilboði því, er dr. M. Wahlström, forstöðu-
maðr Gustavus Adolphus skólans í St. Peter, Minn., hefir gjört kirkju-
félagi voru í nafni þeirrar deildar Ágústana-sýnódunnar sœnsku, er
hann tilheyrir, virðist hent á gott ráð til þess að hrinda skóiamálinu
áfram.
Oss dylst ekki, að það myndi verða kirkjufélagi voru störkostlegr
hagr — svo lengi sem vér ekki getum komið hinum fyrirhugaða skóla
vorum á fót—, að hafa sérstakan kennara við nefndan skóla, vel hœfan
mann af vorum þjöðflokki, sem tœki að sér að veita íslenzkum nemend-
um þar tilsögn á móðurmáli voru í íslenzku og íslenzkum bókmenntum,
svo og í kristilegum trúarfrœðum. Það myndi að einu leyti verða
skólamdlinu sá bezti stuðningr, er það gæti fengið í bráð. Og í annan
stað myndi það leiða til þess, að vér fengjum haldið hjá oss prestsefnum
þeim hinum íslenzku, er þangað verða framvegis send til náms. Prests-
máli kirkjufélagsins myndi með þessu móti einungis verða borgið.
Vér ráðum því til þess, að skölamálsnefad sú, er kosin verðr á
þessu þingi, gjöri hið fyrsta samning við stjórn Gustavus Adolphus
skólans út af áðr nefndu tilboði frá forstöðumanni þeirrar stofnunar, og
leitist við að komast að svo góðum kjörum fyrir kirkjufélagið, sem frek-
ast er unnt að fá.
Vér ráðum enn fremr til þess,—í von um að slíkr samningr takist—,
að kirkjufélagið kalli sóra Friðrik J. Bergmann til að takast kennara-
embætti þetta'á hendr, og sé honum til bráðabirgðar boðiu 900 dollara
árslaun, er borgist úr skölasjóði, en þar frá dragist þó sú upphæð, er
G. A. C llege borgar honum samkvæmt skuldbinding sinni fyrir
kennslustarf hans í þess þarfir. Kennaranum skal falið, að hafa með
höndum aðal framkvæmdir í_ skölamáli kirkjufélagsins, og í því skyni
að ferðast á milli safnaðanna í sumarleyfinu,
Skólamálsnefnd kirkjufélag-ins starfi framvegis að hinni fyrirhug-
uðu skólastofnan vorri og hafi yfirumsjón með kennaraembættinu og
íslenzku kennslunni i G. A College.
Kirkjufélagið setji sér það markmið, að auka sem fyrst skólasjóðinn
svo, að vextir hans nemi svo miklu sem útgjöld þau eru mikil. er kenn-
araembætti þetta hefir í för með sér, og só skölamálsnefndinni falið að
koma því í framkvæmd.
Jónas A. Sigurðsson, Björn B. Jónsson, W. H. Paulson,
Ólafr S. Thorgeirsson, Jón Bjarnason,