Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1900, Page 16

Sameiningin - 01.08.1900, Page 16
96 flutti eg því þá bröðurkveðju ldrkjufélagsins. Tók eg fram, að eg væri einungis fulltrúi bróðurhugans í kirkjufélagi voru gagnvart G. C. Enn fremr, að kirkjufélag vort myndi með tímanum verða einhuga um að ganga í bandalag við G.C., þött það væri sem stendr ýmsra hluta vegna ekki undir það búið að beiðast inngöngu. Séra Birni var sömuleiðis leyft að tala, og skýrði hann frá ástandi kirkjufélagsins. Sýndi þetta, að okkr báðum var boðið að tala, hvernig hugrinn hjá G. C. er til vor „fátœkra og fárra“. Enda varð eg ekki var við neitt annað en hinn allra hlýjasta bröðurhug til vor. Eins og menn líklega muna var ætlazt til þess, er eg var kosinn, að eg gæfi fölki upplýsingar um G C. eftir viðkynning þeirri, er eg fengi af því á þinginu. Samkvæmt því ritaði eg giein út af ferð minni í ,.Sam.“, 11. og 12. nr. f. ái'S og 1. nr. þ.á. Við það, sem þar er sagt, vil eg bœta því, að ekki fann eg nokkurn hlut hjá G. C., sem er ástœða fyr- ir oss að fælast. Þar er engin stefna ráðandi, að því er eg fæ sóð, sem gæti skaðað oss og vér þyrftum að óttast. Að því leyti álít eg ekki neitt því til fyrirstöðu, að vér göngum inn. Það, sem aðallega mun vera inngöngunni til fyrirstöðu, óttast eg að sé hjá sjálfum oss.“ þeir Bjarni Jones og Jón A. Blöndal, sem kosnir voru til aö ákveöa útgjöld kirkjufél. fyrir komanda ár, skýröu frá, aö þeir hefði komiö sér saman um 200 doll. upphæð, og var sú tillaga þeirra samþykkt. Séra Björn B. Jónsson bar fram svo hljóðandi tillögu til þingssamþykktar: ,,Vér, sem hér höfum setið á kirkjuþingi, viljum innilega þakka fólki safnaðarins í Selkirk fyrir bróöurlegar viðtökur og höfðinglegan viðrgjörning við oss, meðan vér höfum verið gestir safnaðarins. Ekkert hefir fólkið látið ógjört, er aukið gæti ánœgju vora, og í öllu hefir það sýnt oss kristilegan bróð- urkærleik“. ,,Oss er það mikil gleði,að vita söfnuðinn vera á framfara- vegi og sjá, að hinir dyggu starfsmenn safnaðarins, sem hér hafa svo lengi og trúlega starfað og barizt fyrir málefni kristin- dómsins, hafa fyrir drottins náð unnið sigr. Vér óskuin söfnuðinum til heilla og blessunar með hina nývígðu kirkju sína og með prestinn,sem nú hefir setzt að hjá honum. Einn- ig biðjum vér guð að blessa prestinn og árnum honum alls góðs ásamt söfnuðinum. “ Tillaga þessi var samþykkt í einu hljóði. Loks var sungið 3. versið af sálminum nr. 5; séra N. Steingr. þorláksson flutti bœn; þá var sungiö 2. versið af

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.