Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1900, Page 25

Sameiningin - 01.08.1900, Page 25
io5 vér nú hér eftir fyllilega tœkjum bending Jesú í textanum til greina. Textinn er undr orðfár og óbrotinn, og þaö er mjög auðvelt að átta sig á honum. Jesús líkir guSs ríki þar, eins og J>ér heyrSuð, við súrdeig, sem kona nokkur tók og fól í þrem mælum mjöls j?angaö til þaS allt sýrðist. MeS þessu mjög auðskiljanlega líkingarmáli lýsir hann hinni guðlegu vaxtarákvörðun og hinum makalausa vaxtarhœfilegleik kristnu trúarinnar. Á þann hátt, sem hér er sýnt, ætlast frelsarinn til að kristindómrinn, þegar hann er búinn að ná sér niSri á þeim eða þeim stað í heiminnm, hjá þeim eða þeim manninum, læsi sig út ósýnilega, hœgt eSa fljótt, en með algjörlega ómótstœSilegu afli, til fleiri og fleiri mannslífa, þangað til allt mannfélagið er orðiS kristiS. En um leið og kristindómrinn þannig nær til fleiri og fleiri manna, þá er tilætlanin sú, aö hann hjá öllum þeim mannslífum verði aö framúrskaranda lyftingarafli, og þaö undantekningarlaust í öllum greinum. Tilætlanin, að áhrif hins guðlega súrdeigs komi allsstaðar fram í lífinu, aS kristindómrinn leggi þjóSlífiS undir sig, lyfti því upp, hrindi því áfram, endrfœSi þaS, um- skapi þaS, blási í þaS nýjum anda, heilögum anda. En til- ætlanin jafnframt, að þessi ummyndan og upplyfting fari þannig fram, aS ómögulegt sé fyrir náttúrlegt hyggjuvit manna aö gjöra sér neina grein fyrir því, á hvern hátt þetta eiginlega verör. Hér skal verða yfirnáttúrlegt kraftaverk. Og það skal verSa öllum heiminum augsýnilegt. En af því aS þar er um kraftaverk að rœöa, þá skal það æfinlega verða mannlegri skynsemi óskiljanlegt og órannsakanlegt. Textann minn þennan frá Jesú Kristi um súrdeigið valdi eg nú líka einmitt meS sérstöku tilliti til kristnitöku forfeöra vorra á Islandi á þessum degi árið iooo. því þaS blasir svo skýrt viö í sögunni um þann stórhátíðar-atburS, aS hinn mikli sannleikr, sem Jesús opinberar í því dýrmæta smábroti af boðskap sínum, hafi verið sterklega ráSandi í sálum höföingj- anna íslenzku, sem gengust fyrir því aö hleypa kristindómin- um inn í ]?jóðlífiS með hinni merkilegu alþingissamþykkt.— Eg skal með fám orSum leyfa mér að rifja upp fyrir yör, brœSr og systr, söguna um atburðinn. Landið var orSið tvískift út

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.