Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1900, Síða 26

Sameiningin - 01.08.1900, Síða 26
io6 af trúmálum. Kristniboð haföi um nokkur ár áör verið rekiS víösvegar um héruS af ýmsum mönnum meS talsverSum árangri. All-margir höfSu tekiS kristna trú, af hjartans sann- fœring. En meiri hluti, jafnvel lang-mestr hluti landslýSsins, hélt enn viS hinn heiSna siS. þaS er í þetta skifti mjög fjöl- mennttilalj^ingis; því allir vissu,aStrúmáls-ágreiningrinnmikli, sem farinn var aS mynda mjög ákveSna og ískyggilega flokka- skifting í landinu, hlyti aS verSa aðal-máliS á þinginu. Undir eins og á þingvöll er komið eru tilfinningarnar hjá talsmönn- um heiðninnar svo œstar, aS mjög nærri lá, að þeir legði til bardaga við andstœðingana kristnu. Og hvorir sögSu sig úr lög- um viS aSra. þá var þaS,að SíSu-Halli,,hinum ágæta manni,er helzt stóð fyrir fiokkinum kristna, hugsaSist þaS ráS, aS fá þorgeir Ljósvetninga-goSa, sem enn þá flyllti flokk heiSingja, til þess aS segja upp lög fyrir landiS um trúmálin. Og komu báSir flokkar sér saman um að una við lögmál það, er hann bæri fram. Eftir sólarhrings undirbúning gekk hann á þing og bar fram nýmæli sitt. SagSi hann þar svo fyrir, að allir landsbúar skyldi kristnir vera, trúa á þríeinan guS og láta af allri skurSgoSavillu ; væri blótaS eða fórnir fram bornar til handa hinum heiönu goðum svo aö opinbert yrSi, þá varðaöi þaö fjársekt, en var vítalaust, ef aS eins var gjört á laun. Og aö því, er snerti barna-útburö og hrossakjötsát, sem hvort- tveggja var mjög ákveðið heiSindóms-einkenni, þá skyldi hin fornu lög enn vera í gildi. MeS þessu lögmáli var þá kristin- dóminum veitt friShelg vist í þjóðlífi Islendinga. Meira var ekki veitt. þaS hefir sumum vorra samtíöarmanna þótt lítið, hlœgilega lítiS. Og því hefir verið fleygt fram, aS þaS beri vott um stórkostlegan skort á trúarlegri alvöru hjá talsmönn- um kristindómsins til forna, að þeir skyldi gjöra sig ánœgða með aSra eins tilslökun viS heiðingjana og hér kom fram. En sannleikrinn er nákvæmlega hið gagnstœða. Djúpskyggn, skarpvitr, sannkristileg alvara trúarinnar ræðr því hjá hinum kristnu mönnum, aS þeir fyrir sig og sitt mál heimta ekki meira en hér var veitt. þeir sáu, aS á meira var ekki þörf. þeir höfðu svo sterka trú á sannleiksmálefni kristindómsins, aS þeir voru hjartanlega sannfœrSir um þaS fyrirfram, aS því

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.