Sameiningin - 01.08.1902, Side 11
9i
Það hefír fundi (þing) annað hvort ár, og sœkja þau þing full-
trúar félaga þeirra í ýmsum áttum, sem tilheyra því. Þar
eru borin fram hin sameiginlegu mál unglingafélaganna, rœð-
ur fluttar og fyrirlestrar haldnir af mörgum merkustu mönnum
kirkju vorrar hér í landi, til uppbyggingar og uppörvunar fyrir
unga og gamla. Félagskapr þessi fer vaxandi ár frá ári.
Enda þótt hann sé enn í barndómi, er talið víst, af þeim,
sem málinu eru kunnugastir, að meðlimatala bandalaganna
muni nema nálægt sjötíu þúsundum.
Þeir 175 bandalagsmeðlimir, sem þingið sóttu, komu frá
öllum landsins fjórðungum. Þeir komu frá NewYork, Tenne-
see, Nebraska og Dakota, og mörgum öðrum ríkjum. Þar
voru Þjóðverjar, Svíar, Norðmenn, Danir og fleiri þjóða
menn og konur; jafnvel Islendingar voru með, enda þótt þeir
hefði engan fulltrúa, sem mœtti fyrir þeirra hönd. Eg vona
samt, að þess verði ekki langt að bíða, að hin sameinuðu ís-
lenzku bandalög vor gefi sitt samþykki til þess að samlagast
brœðrum sínum í þessum góða félagskap. Bandalag vort hið
íslenzka gæti fengið inngöngu í allsherjar bandalagið, sem
District eða Central League, með því að gjalda $3.00 tillag
til þess árlega. Eg hefi umboð frá forseta félagsins, Wm.
Stoever (í Philadelphia) til að bjóða hinni ísl. deild vorri að
sameinast L. L. of Am. Vér eigum þessu félagi að nokkru
leyti tilveru bandalaga vorra að þakka, og ættum vér því ekki
að hafna þessu boði. Eg er hjartanlega sannfœrðr um, að
vér myndum hafa mikið gott af að komast í nánara samband
við félagsbrœðr vora í þessum félagskap, eins og öðrum.
Að undanförnu hefir áherzla ætíð verið lögð á sérstakt
efni á hverju þingi. Einkunnarorð fyrsta þingsins var:
Loyalty (trúmennska við kirkju vora). Annað árið var það:
Labor (vinna); og þriðja árið: Literature (bókmenntir).—
Orðtœkið, sem eins og rauðr þráðr gekk í gegn um allar
gjörðir þingsins í ár, var: Pray and Wotk (biðjið og starfið).
Einn af rœðumönnunum, dr. Whittaker, komst svo að orði:
,,Our prayers must be worked out, and our works must be
prayed out“, þ. e.: Vér verðum að framfylgja bœn vorri
með vinnu og vinnu vorri með bœn. Allir, sem á þinginu