Sameiningin - 01.08.1902, Page 13
93
The Luther Leagne of America var fullmyndaö á þingi
einu, sem í því skyni var haldiS í Pittsburg, Pa., tvo seinustu
dagana í Október 1895. En fyrsti undirbúningr þess félag-
skapar er frá 1887, og má þá byrjan þakka ungmennafélagi í
þýzk-lúterskum söfnuði (St. Peter’s) í New York. Þetta alls-
herjar bandalag fyrir unga fólkið í lútersku kirkjunni hér í
Vestrheimi er ekki bundið við neina sérstaka deild þeirrar
kirkju. Hugmyndin er meðfram, að félag þetta geti orðið
band til þess að binda lútersku kirkjudeildirnar saman, nýtt
afl til að draga þær hverja nær annarri. En lang-mest gætir
í þeim félagskap enn sem komið er hinna enskumælandi
flokka í lútersku kirkjunni. Fyrirkomulagið er mjög svipað
því, sem er í Christian Endeavor og öðrum slíkum félögum
reformeruðu kirknanna. Og þaðan er hreyfingin runnin inn
í lútersku kirkjuna.
Meðlimatala í Luther League var fyrir 4 árum (sam-
kvæmt Lutheran Cyclopedia, sem þeir dr. Jacobs og Haas
prestr gáfu út 1899) getið til að vera myndi 70 þúsundir.
Þeirri tölu er enn haldið. Og virðist eftir því vöxtr félagsins
út á við fara seint.
Þess má geta, að Bandalag kirkjufélags vors kaus á fundi
þess að Garðar í Júnf séra Björn B. Jónsson til að mceta sem
erindsreki af vorri hálfu á Luther League-þinginu í St. Paul,
sem séra Jón J. Clemens segir frá. En hann hindraðist frá
að vera þar.
---------------------
Reuol eða Jetró og Hóbab.
Tengdafaðir Mósesar er, svo sem alkunnugt er, í biblí-
unni ýmist nefndr Regúel (Ragúel, réttara Reuel) eða Jetró.
Þá er maðr þessi birtist fyrst í hinni helgu sögu, er hann
nefndr Reuel (2. Mós. 2, 18). En mjög skömmu síðar er hann
kallaðr Jetró (2. Mós. 3, 1). Seinna koma nöfn þessi fyrir
til skiftis. Þetta hefir lengi þótt undarlegt. En gamla testa-
mentis ,,kritíkin“, sem nú tíðkast, gjörir sér grein fyrir því
með kenning sinni um það, á hvern hátt Mósesbœkrnar og