Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1950, Side 4

Sameiningin - 01.11.1950, Side 4
146 Sameiningin yíir 10,000 dali, var allur gefinn. Frá öllum þessum al- kunnu tilraunum er auðvelt að skilja, hversu áríðandi það er, að gjöra almenningi kunnugt um gjörðir og framkvæmd- ir kirkjunnar, því, að síðustu, mun hið andlega ráða ör- lögum mannlífsins. Á morgni hverjum í þingsalnum var til reiðu fundargjörningur næsta dagsins á undan og líka blað sem auglýsti hinar mörgu og margvíslegu athafnir sem áttu sér stað dag frá degi. Með sanni má segja, að allur undirbúningur til þingsins hafi verið snildarlega skipu- lagður. Þeir sem tóku á móti þinginu, eða sem veittu gestum móttöku, höfðu á boðstólum alls konar skemtanir, sér- staklega fyrir þá gesti sem ekki voru erindrekar, því aðal verkefni erindrekanna var að sitja, sjá og hlusta og tala þegar andinn gaf þeim hvöt. Um þrjú hundruð konur sóttu þingið með mönnum sínum, og þeim gafst tækifæri að sjá margt og að kynnast mörgu, undir umsjón heimakvenn- anna. í sambandi við annríki erindreka má minnast þess, að meðal þeirra frá 8 kirkjufélögum sem létu sig al- drei vanta á þing voru erindrekar Islenzka kirkjufélagsins. Þingið hófst með hátíðlegri guðsþjónustu og altaris- göngu, kl. 10 f. h., í stórri og yndislegri kirkju, (S. John’s Lutheran Church). Söínuður þessarar kirkju telur 3500 manns. Fyrir altari þjónaði Dr. Reinartz, skrifari U.L.C.A. Prédikunina flutti hinn heimsfrægi kirkjuleiðtogi, Dr. Franklin Clark Fry, forseti U.L.C.A. Aðeins erindrekar og embættismenn kirkjunnar sóttu guðsþjónustuna og allir í þessum glæsilega mannsöfnuði meðtóku hið heilaga kvöld- máltíðarsakramenti Drottins vors. Fjórir kirkjufélags forset- ar útdeildu brauðinu og víninu. Síðast kraup forsetinn einn fyrir framan altari Drottins og meðtók hið heilaga kvöld- máltíðarsakramenti, en söfnuðurinn stóð á meðan. Þessi dýrðlega og andríka athöfn mun seint úr minni líða. Þegar eftir þingsetningu á fimtudagsmorgun, fór fram guðræknisstund í minningu um starfsmenn kirkjunnar, sem dáið höfðu á síðustu tveimur árunum. Nöfn hinna látnu voru lesin upp af skrifaranum, en athöfninni stjórnaði þing- presturinn Dr. Roth. Vel mátti finna þann djúpstæða sökn- uð sem þessi minningar athöfn vakti í hjarta þingheims. Töluverðar umræður áttu sér stað um eflingu á trúar- lífi og hversu allsvarðandi væri að koma á stað andlegri

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.