Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1950, Page 5

Sameiningin - 01.11.1950, Page 5
Sameiningin 147 vakningu — auðvitað hefir þetta sama málefni ætíð verið fremst á dagskrá hjá leiðtogum kristnu kirkjunnar frá fyrstu tímum. Það hlýtur að skapa hugarangur í sann- kristnum hjörtum þegar hugsað er um þær miljónir í Ame- ríku og Evrópu, sem standa fyrir utan hina kristnu kirkju. Samkvæmt þeim skýrslum, sem voru framfærðar er kirkj- an að vakna til meðvitundar um alheimsstarf sitt, því gjafir til kirkjunnar hafa fjórfaldast á síðustu tíu árunum; enda hefir kirkjan síðustu árin lagt mjög mikla áherzlu á líknar- starf meðal þeirra bágstöddu í stríðslöndunum. Næst á dagskrá var málefni sem vakti áhugasamar umræður: Þingheimur var beðinn að ákvarða hvert að U.L.C.A. ætti að gerast fulltíða meðlimur í „National Council of Churches of Christ í Bandaríkjunum“. Þessi félagsskap- ur samanstendur nú af 36 kirkjudeildum. Þó að þessi sam- vinnutilraun virðist að vera í samræmi við framsetningu frelsarans um „eina hjörð og einn hirði“ þá samt var þess- ari samvinnuhugmynd sterklega mótmælt og uppástunga gerð að fresta þessu máli í tvö ár eða til næsta þings; uppá- stungan var feld með miklum meiri hluta og tillagan um inngöngu U.L.C.A. samþykt. Þessi jákvæða ákvörðun þings- ins með samvinnu meðal hinna ýmsu deilda mótmælenda kirkjunnar spáir góðu fyrir framtíðina, því þátttaka U.L. C.A. mun á alla vegu stórum styrkja þetta þýðingarmikla og kjarnríka fyrirtæki. Þær nefndir, sem hafa haft með höndum skipulagningu á samstæðri messugjörðartilhögun fyrir átta deildir Lút- ersku kirkjunnar í Ameríku færðu þinginu þær fréttir, að lokið yrði við þetta þýðingarmikla verkefni snemma á ár- inu 1954 þegar hin samstæða messutilhögunarbók yrði gef- in út. Þetta er róttækt spor í samvinnu áttina meðal Lút- erskra kirkjufélaga í Ameríku. Meðal þeirra fáu þingtíðinda sem hægt er að minnast á í þessari stuttu grein, ber að segja fáein orð um þá hreyf- ingu, sem nefnir sig „The Lutherans Laymen’s Movement“. Þessi félagsskapur tilheyrir U.L.C.A. og telur nú 831 með- lim. Hver meðlimur skuldbindur sig til að gefa að minsta kosti, 100 dali á ári til félagsins. Aðalverkefni þessarar hreyfingar er að vinna að eflingu andlegrar vakningar. Fé- lagsskapurinn er óðum að vaxa. Sívaxandi starf kirkjunnar eðlilega útheimtir meiri fjárinntektir.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.