Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1950, Síða 11

Sameiningin - 01.11.1950, Síða 11
Sameiningin 153 var á þessa leið: Gerðu eins og þér er sagt. Trúðu því sem kirkjan kennir, og þá mun vel fara. En Lúther var gæddur sterkri athyglisgáfu, og hann hafði grúskað of mikið í göml- um kirkjuþingasamþyktum og páfabréfum. Hann gat ekki betur séð en að heilmiklu af óviðkomandi efni hefði verið hlaðið ofan á hina einföldu kenningu Krists, eins og hún birtist í Nýja Testamentinu, það svo mjög að sjálfs kjarn- ans í kenningu frelsarans gætti ekki lengur. Þessi þróun hefir haldið áfram alt fram á þennan dag. Jafnvel nú á þessu merkisári, 1950, var því slegið föstu í páfagarði, að María móðir Jesú, hafi á sinni tíð stigið til himna í líkam- anum. Þetta er þá líka orðið sáluhjálplegt trúaratriði, eins og nóg væri ekki komið áður af hindurvitnum og hégóma í kenningarkerfi þessarar kirkjudeildar! Lengi vel sýndi Lúther kirkju sinni fulla hlýðni, en því meira sem hann las í ritningunni og bókmenntum páfa- kirkjunnar, því sannfærðari varð hann um að þetta tvent gæti ekki samrýmst. Það var annaðhvort ellegar. — Loks brauzt hin ódauðlega yfirlýsing fram í Worms: „Ég tek ekki gilt annað en vitnisburð heilagrar ritningar, eða skýr- ar skynsemisröksemdir, — samvizka mín harðfjötrar mig við Guðs orð, •— það er bæði erfitt og háskasamlegt að breyta á móti samvizkunnar röddu“. Þar með var teningn- um kastað. Hinn rammgjörvi kastali miðaldakirkjunnar hristist svo mjög og skektist í þeim umbrotum sem á eftir komu, að hann hefir ekki beðið þess bætur. En hvað um það, frelsið var fengið og í skjóli þess hafa dafnað hvers- konar þekking og framfarir sem menn nú njóta í svo rík- um mæli. Lúther á svo sem ekki upp á pallborðið hjá hinum ýmsu kirkjudeildum út um heiminn. Naumast getur „dapri djákninn“ (the gloomy dean) í London drepið svo niður penna, að hann ausi ekki úr sér fúkyrðum yfir Lúther, kirkju hans og kenningu. Þykja orð hans sem hin mesta véfrétt á meðal enskra. Er þó ekki hvað kirkjusiði snertir undramikið sem á milli ber anglikönsku og lútersku kirkjunnar, og er það öllum ljóst sem til þekkja að kirkjan á Englandi tileinkaði sér snemma á árum mikið af anda siðbótarinnar. En börnin eru stundum vanþakklát við for- eldra sína!

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.