Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1950, Síða 13

Sameiningin - 01.11.1950, Síða 13
Sameiningin 155 /yMaðurinn lifir ekki af einu saman brauðinu/' Eftir Mrs. RANNVEIGU K. G. SIGBJÖRNSSON Þetta, sem fleira þaðan, er talið sígilt. Það er talið óhaggandi af því að það á svo mikinn og sílifandi grunntón í reynslu mannanna. Mér hefir oft komið þessi málsgrein í hug, í sambandi við kirkjuhald vort íslendinga hér um slóðir. Það hefir oft verið erfitt, stopult og nú um mörg ár alls ekkert ákveðið nema það sem sérlega velhugsandi prestar hafa komið í frítímum sínum að sumrinu og em- bættað samkvæmt mætti og kröfum er til þeirra komu. Mér finst að fremur séu þessar kringumstæður okkur sjálf- um að kenna, að einstökum mönnum undanteknum, fremur en nokkrum öðrum. Það er partur af hinni frjálsu kirkju, að menn komi til prestsins — kalli hann eða á einhvern hátt auglýsi fyrir honum þarfir sínar. Sú aðferð er að minsta kosti góð byrjun málsins. Hitt ber þó ekki síður að virða, að áhuginn kirkj- unnar megin, er svo mikill, að sóknunum er sendur prestur- inn í einlægri viðleitni að vekja upp kristilegt trúarstarf. Þannig er nú ástatt hér í bygðum nú sem stendur eða hefir verið, að hjá oss hefir nú dvalið um það árlangt prest- ur frá United Lutheran Church in America, séra Skúli Sig- urgeirsson, góður prestur og um alt hinn framkomubezti maður. Kona hans frú Sigríður, er mjög aðlaðandi persóna og hefir inndæla söngrödd, sem allir vita, að er til ómetan- legs stuðnings í kirkjulegu starfi. Hér virðist vera tæki- færi að taka höndum saman og gera eitthvað ákveðið. Satt er það, að menn hér hafa orðið fyrir þungum búsifjum af völdum frostsins er stórskemdi kornið á ökrunum. Samt mun ekki vera um neina neyð að ræða á þessum stöðum sem betur fer. Nógur og góður matur í allra höndum og margir í Vatnabygðum eru stórefnaðir menn. Þrátt fyrir þetta hlýtur það að koma fram á einum sem öðrum, að ekki lifi maðurinn af brauðinu einu saman. Svo dýrmæt sem veraldargæðin eru rétt með farin, eru þau ekki mannssálinni næg. Þegar menn fjarlægjast kirkj- una þá smá máist menningin af sál þeirra. Þroskinn dvínar,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.