Sameiningin - 01.09.1954, Síða 19
Sameiningin
73
hún verði jafnan heilagt Guðs hús, en að allt óhreint og
vanheilagt verði ávalt fjarri henni. Vér biðjum þess að
boðskapur hennar í ytra táknmáli, og túlkun innan veggja
verði ávalt þeim til blessunar sem leita sálum sínum styrks
og hvíldar í gleði og sorg.
-------------☆-------------
Hvaðanæfa
Fagnaðarboðinn Billy Graham lauk starfi sínu í Lun-
dúnum snemma í sumar; hann brá sér síðan til megin-
iandsins og prédikaði á fáeinum stöðum á Þýzkalandi,
Norðurlöndum og Frakklandi. Honum var vel tekið. Sjötiu
þúsundir sóttu samkomur hans í Berlín.
☆ ☆ ☆
Illa gengur bolsum að uppræta guðstrú og kristindóm
úr hjörtum fólks á bak við „járntjaldið“. Rússneska blaðið
Pravda flutti reiðilestur mikinn í sumar út af því efni;
ávítaði ungmennafélögin, leiðtoga verkalýðs og jafnvel
sjálfan kommúnistaflokkinn fyrir slælega baráttu við trúna.
Kommúnistar eru við völd í Júgóslavíu, þótt landið
teljist ekki með fylgiþjóðum Rússa. Áttatíu og fjórir af
hverju hundraði landsmanna töldust guðstrúarmenn í mann-
tali hjá Júgóslövum í sumar.
☆ ☆ ☆
Kirkjuráð alþjóða — The WorlcL Council of Churches,
háði allsherjarþing sitt, annað í röðinni, suður í Evanston í
ágústmánuði. Fyrsta þingið var haldið í Amsterdam á Hol-
landi fyrir sex árum. Flestar deildir mótmælenda eru nú með
í þessum félagsskap; svo og grísk-katólska kirkjan; en páfa-
menn sitja við sinn keip og koma þar hvergi nærri.
Þingið í Evanston vakti meiri eftirtekt og umræður hér
í landi, og sjálfsagt víðar um heim, heldur en títt er um
þing eða málfundi kirkjunnar. Margir erindrekar komu til
þessa lands nokkrum vikum áður en þingið hófst; tóku
þegar að ræða fundarmálin sín á meðal eða í áheyrn al-
mennings; en blöðin fluttu ljósar fregnir af allflestu því,
sem fram fór á þessu þingi.
Kirkjudeildunum ber vitaskuld margt á milli; var sumt
af þeim málum rætt í bróðerni, en þó með fullri alvöru,
bæði innan þings og utan. Sérskoðanir um altarissakra-